Fréttablaðið - 09.05.2018, Side 9
Í hverjum mánuði greiða landsmenn umtalsverðar upphæðir af launum sínum til lífeyrissjóða, bæði í sam-
eign (skyldulífeyrir) og margir hverjir
einnig í séreign (viðbótarlífeyrir).
Það er því mikið hagsmunamál fyrir
almenning að allar upplýsingar um
ávöxtun og aðra frammistöðu þessara
sjóða séu aðgengilegar en til að bera
saman sjóði hefur þurft að vinna sig
í gegnum talnaefni ársreikningabóka
FME sem er ekki aðgengilegt fyrir
almenning og samanburður erfiður
nema með mikilli talnavinnu.
Ávöxtunartölur fyrir séreignasjóði
voru birtar í Kastljósi fyrir ári. Til að
ná að taka saman tölur um ávöxtun
sameignarsjóða, hafa undirritaðir
nú í nokkurn tíma unnið að því að
gera þessi gögn aðgengileg þannig að
almenningur geti séð raunávöxtun
sinna sjóða yfir langt tímabil. Þessari
vinnu er í meginatriðum lokið og liggja
nú fyrir niðurstöður sem verða birtar
á næstunni.
Skoðaðir voru allir sjóðir frá árs-
byrjun 1997 til ársloka 2016 og tekið
tillit til sameininga sem átt hafa sér
stað. Árið 1997 voru þetta 50 sjóðir
en í dag hefur þeim fækkað með sam-
einingum í 27 lífeyrissjóði. Það vekur
fyrst athygli hve munurinn er mikill á
milli sjóða. Á þessu 20 ára tímabili var
ávöxtun þess sjóðs sem náði bestum
árangri að þessu leyti nær ferfalt hærri
en hjá þeim sjóði sem skilaði lakastri
ávöxtun. Hvert prósentustig í meðal-
ávöxtun yfir langan tíma hefur mikil
áhrif á þann lífeyri sem greiddur er
að lokum og bendir allt því til þess
að fólk muni búa við nokkuð mis-
jöfn kjör á eftirlauna árum vegna mis-
mikillar ávöxtunar sjóða. Alls 6 sjóðir
(af 27) eru með meðalraunávöxtun á
bilinu 1-2% yfir tímabilið en 8 sjóðir
hafa ávöxtun á bilinu 2-3%. Það er
svo þriðjungur sjóða (9 sjóðir) sem
sýna ávöxtun á bilinu 3-4% yfir þetta
langa tímabil, sem hlýtur að teljast góð
ávöxtun og að lokum eru 4 sjóðir með
meðalraunávöxtun yfir 4%.
Ávöxtun í fortíð er auðvitað ekki
ávísun á örugga ávöxtun í framtíð
en samt hlýtur þetta skref sem við
höfum unnið að, að teljast mikil-
vægt sem liður í því að auka gagnsæi
og að kynna sér hvernig gengið hefur
að ávaxta lífeyrisfé landsmanna sem
allir eru skyldaðir til að láta af hendi. Í
flestum nágrannalöndum hafa þessar
upplýsingar verið birtar á aðgengi-
legan hátt um langt skeið. Er þetta
verkefni undirritaðra upphafið að því
að almenningur geti gengið að þessum
upplýsingum vísum því ráðgert er að
uppfæra tölurnar reglulega og gera
aðgengilegar öllum. Jafnframt verður
talnaefnið notað í akademískar rann-
sóknir.
Stór hluti launþega hefur ekki
beint val um það í hvaða lífeyrissjóð
þeir greiða heldur renna iðgjöld ein-
faldlega í þann lífeyrissjóð sem verka-
lýðsfélag hvers og eins hefur valið. Í
ljósi verulegs munar í ávöxtun sjóða
er því staða lífeyris við starfslok eins
konar lífeyrishappadrætti fyrir hvern
og einn sem getur skipt miklu fyrir
lífskjör á efri árum. Einnig skiptir máli
að hópurinn sem greiðir í hvern sjóð
getur verið mjög ólíkur, t.d. er kynja-
skipting iðulega mjög mismunandi á
milli sjóða, sem getur haft veruleg áhrif
á lífeyrisgreiðslur. Ýmsar endurbætur á
þessu fyrirkomulagi væri vert að íhuga,
m.a. að leyfa launafólki að greiða í
nokkra sjóði til að dreifa áhættu. Þá er
mikilvægt að kerfið sé eins gegnsætt og
kostur er, m.a. þannig að ávöxtunar-
tölur séu aðgengilegar og auðvelt að
bera þær saman milli sjóða.
Ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða
Dr. Gylfi
Magnússon
dósent í við-
skiptafræðideild
Háskóla Íslands
Hallgrímur
Óskarsson
verkfræðingur
Misjöfn ávöxtun íslenskra
lífeyrissjóða 1997-2016
7%
6%
5%
4%
3%
2%
1%
0%
Lægsta ávöxtun sjóðs = 1,25%
Hæsta ávöxtun sjóðs = 6,16%
Það er kunnuglegt stef að það fólk sem stígur fram til varnar náttúru og lífríki Íslands þarf
iðulega að sitja undir persónulegum
árásum og illmælgi. Ómar Ragnars-
son fékk að kenna á slíkum með-
ulum þegar hann gerðist málsvari
hálendisins og Tómas Guðbjarts-
son læknir hefur þurft að sæta sömu
meðferð vegna sinnar stórmerkilegu
umhverfisbaráttu.
Gunnar Steinn Gunnarsson er á
þessum slóðum hér í blaðinu í gær
þegar hann veitist að félaga mínum,
Ingólfi Ásgeirssyni, stofnanda The
Icelandic Wildlife Fund.
Gunnar kynnir sig til leiks sem líf-
fræðing en lætur þess ógetið að hann
hefur verið viðriðinn laxeldi í ára-
tugi og starfar nú sem framleiðslu-
stjóri fiskeldisfyrirtækisins Laxa.
Gunnar skammast yfir starfi Ingólfs
sem flugstjóra, en þó eru flugvélar
nógu góðar til að fljúga með afurðir
fyrirtækis hans á erlendan markað.
Þetta er sorglegur tvískinnungur og
dæmi um ógöngur sem menn rata í
þegar þeir hafa veikan málstað að
verja.
Grein Gunnars er þar að auki
uppfull af ýmsum rangfærslum um
ógnina af erfðablöndun eldislax
við villta stofna. Sú ógn hefur þegar
raungerst í Noregi þar sem 66 pró-
sent villtra stofna hafa skaðast.
Kjarni málsins er að tæknin, sem
fyrirtæki Gunnars og önnur sjókvía-
eldisfyrirtæki nota, er hættuleg
náttúru og lífríki. Sjókvíar eru bara
netapokar í sjó. Þetta er svo frum-
stæð og ófullkomin tækni að það
sleppur alltaf fiskur úr kvíunum.
Spurningin er bara hvenær og í hve
miklu magni.
Mengunin frá þeim er líka hroða-
leg. Skólpið streymir beint frá þeim
í sjóinn. Í hverri kví eru um 200 þús-
und fiskar. Á botninum fyrir neðan
þær myndast fjöll af rotnandi fóður-
afgöngum og saur.
Og það er meira. Aðbúnaður eldis-
dýranna er hræðilegur í sjókvíunum
eins og við höfum því miður hrika-
leg ný dæmi um úr íslensku eldi,
bæði fyrir vestan og austan. Í rekstr-
aráætlunum fiskeldisfyrirtækja er
beinlínis gert ráð fyrir að 20 prósent
eldisdýranna lifi ekki af aðbúnaðinn
í kvíunum. Það er grátlegur vitnis-
burður um þennan iðnað.
Það þarf að fara með fiskeldi upp á
land. Þar er staðan allt önnur. Skólp-
ið er hreinsað, hægt er að stýra hita-
stigi í kerjunum þannig að fiskurinn
strádrepst ekki úr kulda og svo stafar
villtum laxastofnum ekki hætta af
fiski sem er alinn á landi, fremur en
öðrum lífverum í hafinu.
Auðvitað eigum við að taka hönd-
um saman um eldisaðferðir sem
eru betri fyrir umhverfið, lífríkið og
eldisdýrin sjálf. Annað er stórkostleg
tímaskekkja.
Hættulegt fyrir
umhverfið og lífríkið
Jón Kaldal
blaðamaður og
félagi í
The Icelandic
Wildlife Fund
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Renault KADJAR & CAPTUR
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.750.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.550.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
0
8
3
R
e
n
a
u
lt
2
x
b
íl
a
r
c
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
m
a
í
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9M i ð V i k u D A G u R 9 . M A í 2 0 1 8
0
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
8
-6
C
3
8
1
F
B
8
-6
A
F
C
1
F
B
8
-6
9
C
0
1
F
B
8
-6
8
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K