Fréttablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 29
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
1. Deiliskipulag fyrir landið Steinhólar (Skálmholt land F lnr. 199346) í Flóahreppi. Bygging íbúðarhúss, gestahúss og
útihúss.
Kynnt er tillaga að deiliskipulagi sem nær til hluta lands sem í dag heitir Skálmholt land F lnr 199346. Fyrirhugað er að
landið fái heitið Steinhólar og að á því verði heimilt að byggja íbúðarhús, bílskúr, útihús, geymslu og fjölnotahús.
Aðkoma að landinu er af Skeiða- og Hrunamannavegi rétt norðaustan vegtengingar við Suðurlandsveg.
2. Deiliskipulag fyrir tvær íbúðarhúsalóðir úr landi Langholts 2 í Flóahreppi.
Kynnt er tillaga að deiliskipulagi fyrir tvær íbúðarhúsalóðir á um 4 ha lands úr landi Langholts 2 austan við núverandi
bæjartorfu þar sem heimilt verður að byggja íbúðarhús, bílskúr og hesthús/skemmu.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
3. Deiliskipulag fyrir Sandamýri úr landi Einiholts 1 í Bláskógabyggð. Íbúðar- og aðstöðuhús á landbúnaðarlandi.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagi fyrir 10,36 ha spildu úr landi Einiholts 1 sem kallast Sandamýri (lnr. 223807). Liggur
spildan upp að landi Gígjarhólskots 2, milli Einiholtslækjar og Einiholtsvegar. Fyrirhugað er að stofna lögbýli á landinu og
byggja þar íbúðarhús og aðstöðuhús fyrir dýralækningar.
4. Deiliskipulag fyrir 15,7 ha landbúnaðarspildu úr landi Einiholts í Bláskógabyggð.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagi sem nær til 15,7 ha spildu (lnr. 222396) úr landi Einiholts í Bláskógabyggð. Landið er
norðan bæjartorfu Einiholts og liggur milli Einiholtslækjar og Einiholtsvegar. Gert er ráð fyrir að stofnað verði lögbýli á
spildunni og að þar verði heimilt að byggja íbúðarhús, landbúnaðarbyggingar og lítil gestahús.
5. Deiliskipulag Kjóastaðir 2, í Biskupstungum í Bláskógabyggð.
Auglýst er tillaga að deiliskipulagi fyrir lóð undir ferðaþjónustu bænda í landi Kjóastaða 2 í Biskupstungnahreppi. Um
er að ræða 0,94 ha land þar sem heimilt verði að reisa 10 tjöld til útleigu. Flatarmál hvers tjald er um 30 fm. Á lóðinni er
afmarkaður 100fm byggingarreitur þar sem heimilt er að reisa allt að 50 fm hús undir salernisaðstöðu og sturtur sem
þjóna munu öllum tjöldunum. Aðkoma að svæðinu er frá Kjóastaðarvegi og gert er ráð fyrir bílastæðum syðst á lóðinni.
6. Deiliskipulag nýbýlisins Hrafnshagi úr landi Arabæjar í Flóahreppi. Íbúðarhús og landbúnaðarbyggingar.
Skipulagið nær til nýbýlisins Hrafnshagi sem er 45,3 ha að stærð úr landi Arabæjar. Gert er ráð fyrir að á svæði ofan við
Villingaholtsveg nr. 305 verði afmarkaður byggingarreitur þar sem heimilt verður að byggja íbúðarhús og landbúnaðar
byggingar (t.d. hesthús, reiðhöll), samtals allt að 5.000 fm.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, hjá Umhverfis- og tæknisviði
Uppsveita, Dalbraut 12, Laugarvatni, frá kl. 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar
sjálfar á heimasíðu Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita, http://www.utu.is.
Skipulagstillögur nr 1-2 eru í kynningu frá 9. maí til 25. maí 2018 en tillögur nr. 3 - 6 frá 9. maí til 22. júní 2018.
Athugasemdir og ábendingar við tillögur nr. 1 – 2 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 25. maí 2018 en 22. júní
fyrir tillögur nr. 3 - 6 Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Berglind Sigurðardóttir
Skipulagsfulltrúi
berglind@utu.is
Til félagsmanna í Félagi fasteignasala.
AÐALFUNDUR 2018
Aðalfundur Félags fasteignasala verður haldinn
fimmtudaginn 24. maí kl. 16:30 síðdegis
á Grand Hótel Reykjavík.
Á dagskrá aðalfundar FF verða eftirtalin mál:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemina á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
3. Kosning tveggja meðstjórnenda
4. Kosning tveggja varamanna
5. Kjör skoðunarmanna reikninga
6. Kjör laganefndar
7. Önnur mál, er upp kunna að vera borin.
Stjórnin
Aðalfundur Fasteignaleitar ehf
verður haldinn fimmtudaginn 24. maí
kl. 18:00 á Grand Hótel.
DAGSKRÁ:
1. Ársskýrsla fasteignaleitar ehf
2. Endurskoðaður reikningur fyrir liðið reikningsár.
3. Önnur mál.
Léttar veitingar í lok fundar
Stjórnin
Kvennaskólinn í Reykjavík auglýsir
eftirfarandi stöður lausa til umsóknar:
• Hagfræði: 50% staða skólaárið 2018-2019.
• Umhverfisfræði: 50% staða skólaárið 2018-2019.
• Íslenska: 80-90% staða á haustönn 2018 og 65-70%
á vorönn 2019.
Kröfur til umsækjenda: háskólapróf í viðkomandi greinum
eða skyldum greinum ásamt kennsluréttindum í fram-
haldsskóla.
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírteinum og
sakavottorði berist Kvennaskólanum í í rafrænu formi í
netfangið hjalti@kvenno.is. Ekki er sótt um á sérstökum
eyðublöðum og ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2018.
Umsóknarfrestur er til 21. maí 2018. Laun kennara eru
samkvæmt kjarasamningi KÍ og fjármálaráðuneytis. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
liggur fyrir.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr.
92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við fram-
haldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum
XXII. kafla almennra hegningarlaga.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður, auk aðstoðarskóla-
meistara, í síma 580 7600 á skrifstofutíma
(netföng: hjalti@kvenno.is og oddnya@kvenno.is).
Sjá einnig www.kvenno.is
Skólameistari
MIÐBÆJARSKÓLINN AÐALBYGGING UPPSALIR
SKIPULAGSBREYTING
Breyting á deiliskipulaginu Hafnarörður Miðbær - Lækjargata 2 og Suðurgata 7
Skipulags- og byggingarráð Hafnararðar samþykkti á fundi sínum 09.02.2018 að auglýsa tillögu að
breyttu deiliskipulagi lóðanna við Lækjargötu 2 og Suðurgötu 7 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga
nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulaginu Hafnarörður Miðbær.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að á lóðinni Lækjargata 2, þar sem “Dvergurinn” stóð áður, verði heimilt að reisa
5 hús ásamt sameiginlegri bílageymslu í kjallara. Lóðarmörkum á götuhliðum verði hliðrað til og kvöð um
gönguleið verði inn á lóðina frá Brekkugötu. Landnotkun lóðarinnar verði óbreytt og í samræmi við Aðalskipulag
Hafnarfjarðar 2013 – 2025. Gert er ráð fyrir íbúðum, verslun og þjónustu á lóðinni. Á lóð austan Suðurgötu 7
verði kvöð um bílastæði felld úr gildi, einnig kvöð um aðkomu að þeim nyrst á lóð Suðurgötu 7, þess í stað verði þar
kvöð um gönguleið. Kvöð um skrifstofur á 2.hæð Suðurgötu 7, í “Góðtemplarahúsinu”, verði felld úr gildi og heimilt
verði að setja glugga og dyr á austurhlið hússins. Lóð austan Suðurgötu 7 verði opið almenningssvæði.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu
Norðurhellu 2 frá 09.05. til 20.06.2018. Einnig er hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna á hafnarfjordur.is.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim
skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 20.06.2018. Þeir sem eigi
gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Skipulagsfulltrúi.
HAFNARFJARÐARBÆR
RÁÐHÚS HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 6
ÞJÓNUSTUVER
OPIÐ FRÁ KL. 8.00 – 16.00
ALLA VIRKA DAGA
585 5500
hafnarfjordur.is
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir
· Hótel Lækur, Hróarslæk, Rangárþingi ytra
· Malar– og sandnám í Fossárvík í Berufirði
· Jarðgerð Moldarblöndunnar í Gufunesi, Reykjavík
skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr.
106 /2000. Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni
7b, Reykjavík og á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Ákvörðun má
kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála til 11. júní 2018.
0
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
8
-6
2
5
8
1
F
B
8
-6
1
1
C
1
F
B
8
-5
F
E
0
1
F
B
8
-5
E
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K