Feykir


Feykir - 19.11.2009, Blaðsíða 6

Feykir - 19.11.2009, Blaðsíða 6
6 Feykir 43/2009 Axel Kára Axel Kárason er einn af okkur mönnum í meistaraflokki Tindastóls í Körfubolta. Axel er sonur Kára umsjónarkennara hjá 8. bekk og Skagfirðingur í húð og hár. Fjölmiðlaval Árskóla tók Axel í netta yfirheyrslu. Hver er maðurinn? -Ég er sonur Kára Maríssonar og Katrínar heitinnar Axelsdóttur. Fæddur hér á Króknum árið 1983 og uppalinn um nánast allan fjörð, fyrst að Sólheimum í Blönduhlíð, síðar í Varmahlíð og loks hér á Sauðárkróki. Við hvað starfar þú? -Ég er starfsmaður hjá Höfuð-verk ehf. og námsmaður hjá dýrlæknaskólanum í Búdapest. Af hverju ákvaðst þú að verða dýra- læknir? -Ég er alinn upp á sveitabæ og hef alltaf langað til að verða bóndi. Þegar við fluttum þá langaði mig alltaf að vinna í kringum landbúnað og dýralæknirinn heillaði mig mest. Hvað kom til að þú ákvaðst að vera hér í vetur? -Í fyrra var ég að læra út í Búdapest og reyndi að taka tvö fyrstu árin í einu og náði því að stærstu leyti nema á eftir að taka lokapróf 2. árs. Þannig að í vetur er bara að taka þessi próf þannig það skiptir engu máli hvar í heiminum ég er. Fjölmiðalval Árskóla Hvernig finnst þér nýi þjálfarinn? -Ég er mjög ánægður með hann. Ég þekki hann nú frá fornu fari en aldrei spilað undir hans stjórn, en hann fer vel af stað. Hann hefur þann kost að tapa aldrei gleðinni. Heldur þú að Daanish eigi eftir að hjálpa í leik Tindastóls? -Já, það er ekki spurning hann hefur margt sem við höfum ekki. Hann getur hoppað, er sterkur, en það er alltaf erfitt að segja til um þegar svona stutt er liðið síðan hann kom. Nú var Tindastóll að keppa leik við Breiðablik, hvernig fannst þér leikurinn ganga? -Vörnin var mjög góð sérstaklega þegar við byrjuðum að taka sóknar- fráköstin. Við náðum að stoppa þá í þeim enda sást það á stigaskorinu. Miðað við vörnina og hvernig Breiðablik spilaði þá hefði maður viljað sjá fleiri stig á töflunni. Þú ert að þjálfa unglingaflokk drengja hvernig finnst þér þeim ganga í upphafið tímabils? -Kannski byrjuðum við ekki nógu vel, held kannski að ástæðan að lið úti á landi eiga erfiðara með að taka æfingaleiki og það sást á fyrstu leikjunum að liðin fyrir sunnan voru ekki að spila sína fyrstu leiki en meðan strákarnir taka framförum í hverjum leik, þá er ég ánægður. Nú spilar þú alltaf í fótboltasokkum, af hverju? -Reyndar eru þetta ekki fótboltasokkar heldur háir körfubolta- sokkar. Haustið 2002 þá gaf systir mín mér svona eitt par af háum sokkum og ég prófaði að spila í þeim og hef haldið því sem hjátrú. Hefur þú einhverja aðra hjátrú eða hvernig undir býrðu þig undir leik? -Með hjátrú þá reynir maður að gera það sama og maður gerði fyrir síðasta sigurleik en varðandi undirbúning þá passa ég mig alltaf að borða nóg fyrir hvern leik. Ertu á lausu? -Já, það verður að viðurkennast. Ég bý hjá pabba, konunni hans og tveimur hundum. Þið vitið það kannski báðir að betra er autt rúm en illa skipað. Að hverju ertu þá að leita? - Ég veit það þegar ég finn það. Arnar Geir, Dagur Bjarki og Helga Fjölmiðlavali Árskóla Leikföng fullorðna fólksins Yfir 1200 manns mættu í reiðhöllina á Sauðárkróki s.l. laugardag til að líta augum útilífssýninguna Kraft 2009, en þar sýndu nokkur félaga- samtök í Skagafirði tæki sín og tól. Að sögn Eyþórs Jónassonar fram- kvæmdastjóra reiðhallarinnar gekk sýningin vonum framar og var það ákveðið af þeim félagasamtökum sem að þessari sýningu stóðu, að endurtaka leikinn síðar. Sýningargestir komu víða að og sagði Eyþór að margir þeirra hefðu lýst ánægju sinni með sýninguna, ekki hvað síst hve fjölbreytt hún væri. Kraftur 2009 Skotfélagið Ósmann stóð fyrir glæsilegri byssusýningu. Axel Kárason til vinstri í búningi númer 4. Bílar af öllum stærðum og gerðum voru til sýnis á Krafti 2009. Leikföng fullorðna fólksins glöddu augu sýningargesta. Gamlir og nýir sleðar voru dregnir fram.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.