Feykir - 13.02.2014, Qupperneq 2
2 Feykir 06/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Bjartir tímar
Nú er ég komin til starfa á ný eftir níu mánaða fæðingarorlof en
í þetta sinn tek ég mér sæti í ritstjórnarstólnum. Ég verð að
viðurkenna að því fylgja blendnar tilfinningar, að þurfa að
kveðja frábæran samstarfsmann, Pál Friðriksson fráfarandi
ritstjóra, sem var sönn ánægja að kynnast og starfa með. Á hinn
bóginn fæ ég tækifæri til að takast á við nýjar áskoranir og hef
eignast nýjan samstarfsfélaga, Kristínu Sigurrós Einarsdóttur,
og efast ég ekki um að bjartir tímar séu framundan á
ritstjórnarskrifstofu Feykis.
Viðfangsefni okkar eru óþrjótandi og eru margir spennandi
viðburðir handan við hornið, s.s. kvikmyndahátíð á Skaga-
strönd, Vetrarhátíð í Skagafirði, Söngvarakeppni Húnaþings
vestra, Sæluvika Skagfirðinga, og svo sveitarstjórnarkosning-
arnar í maí og margt margt fleira. Feykir mun að sjálfsögðu
færa fréttir af þessum viðburðum sem og öðrum sem viðkoma
íbúum Norðurlands vestra. Einnig höldum við áfram að
skyggnast dýpra í mannlífið í landshlutanum og birtum viðtöl
við áhugavert fólk.
Að þessu sögðu vil ég nota tækifærið og hvetja þá sem hafa
einhverja lífsreynslu í farteskinu sem þeir vilja deila með
lesendum Feykis, eða jafnvel þekkja til einhvers sem gæti haft
slíka, að hafa samband. Öllum ábendingum verður vel tekið og
er það okkar ánægja að færa áskrifendum Feykis stútfullt blað
af áhugaverðu efni viku hverja. Markmið okkar er alltaf að gera
gott blað betra!
Berglind Þorsteinsdóttir, ritstjóri
Beit mann í nefið
Sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás Með bakáverka eftir
vélsleðaslys
Féll 10
metra niður
í gilið
Björgunarsveitin Skagfirð-
ingasveit sótti unga konu
sem hafði ekið snjósleða
fram af hengju í Laxárdal
sl. sunnudag. Konan var
með bakáverka en þegar
Feykir ræddi við lögregluna
á Sauðárkróki var ekki
ljóst hversu alvarlega.
Björgunarmenn fóru auk
sjúkraflutningamanns á
staðinn með bíl og tvo
vélsleða. Þegar að var komið
reyndist hægt að aka björg-
unarsveitarbílnum beint á
slysstað og var konunni ekið
þangað sem sjúkrabíll beið
hennar og flutti á sjúkrahús.
Konan, sem er um tvítugt,
var með meðvitund þegar
hún var flutt á Heilbrigðis-
stofnunina á Sauðárkróki til
aðhlynningar.
Slysið átti sér stað í Hest-
gili og fór sleði konunnar
fram af snjóhengju og féll,
ásamt konunni, um 10 metra
niður í gilið áður en þau stað-
næmdust. /KSE
Héraðsdómur Norðurlands
vestra dæmdi í desember sl.
pólskan ríkisborgara fyrir
stórfellda líkamsárás, sem
átti sér stað í október sl.,
þegar hann beit mann í nefið.
Ákærði var dæmdur í 45
daga skilorðsbundið fangelsi
og var gert að greiða
fórnarlambinu 400 þúsund
krónur í bætur vegna
áverkanna.
Í dómsskjölum kemur fram
að ákærði hafi bitið 0,5
fersentímetra stykki framan af
hægri nös og nefbroddi manns
með þeim afleiðingum að
hann hlaut 2x2 sm sár hægra
megin á nef, missti part af
hægri nasavæng og skaði varð
á brjóski nefsins. Sá sem fyrir
árásinni varð þurfti að undir-
gangast aðgerð til lagfæringar á
nefinu og eru fleiri aðgerðir
fyrirhugaðar.
Mennirnir tveir eru einir til
frásagnar um upptök átaka
þeirra en í niðurstöðu dómsins
segir að þeir hafi sammælst um
að reyna með sér einhverskonar
bardagatækni en ákærði neitar
því og bar að hinn hafi áttu
upptökin að átökum þeirra.
„Ákærði og Y [fórnarlambið.
Innsk. blm]eru sammála um
að þeir hafi í tvígang tekist á en
fyrri átökum þeirra hafi lokið
án nokkurra afleiðinga. Af
hegðan þeirra fyrir og eftir
átökin verður ekki annað ráðið
en að átökin hafi ekki stafað af
illindum þeirra í milli,“ segir í
dómsskjölum. Hvernig síðari
átökin hófust verður að miða
við að þeir hafi tekist á með
samþykki þeirra beggja. „Tóku
þeir því báðir ákveðna áhættu
á því að þeir myndu meiðast í
átökunum, sbr. niðurlag 13.
kap. Jónsbókar. Sú háttsemi
ákærða að bíta Y í nefið er hins
vegar utan við það sem Y mátti
vænta frá ákærða í fang-
brögðunum,“ segir jafnframt í
niðurstöðu dómsins. /BÞ
Hrósar Ungmennaráði
Húnaþings vestra
Á dögunum átti
ungmennaráð Húnaþings
vestra fund með Vali Rafni
Halldórssyni, starfsmanni
ungmennaráðs Ölfuss. Hélt
hann fyrirlestur um
ungmennaráð hérlendis.
Í máli Vals kom fram
sérstakt hrós til
Ungmennaráðs Húnaþings
vestra, sem hann segir
með þeim virkustu á
landsvísu.
Í fyrirlestri sínum gerði
Valur ráðinu grein fyrir
hlutverki ráðsins, en skv.
æskulýðslögum er hlutverk
ungmennaráða að vera
sveitarstjórnum til ráðgjafar
um málefni ungs fólks í
viðkomandi sveitarfélagi.
Þetta kemur fram í fundargerð
ungmennaráðs frá 3. febrúar
sl. en hún er birt á vef
Húnaþings vestra. /KSE
Óvenjumikil ófærð í vetur
Það hefur vart farið framhjá
vegfarendum sem lagt hafa
eða ætlað að leggja leið sína
um Þverárfjall að vegurinn
hefur óvenju oft verið lokaður
vegna ófærðar í vetur. Að
sögn Sveins J. Einarssonar
verkstjóra hjá Vegagerðinni á
Sauðárkróki er ekki haldið
utan um neina tölfræði um
fjölda daga sem tilteknir
vegir eru ófærir.
Sveinn segir þó ljóst að
Þverárfjallsvegur hafi mjög oft
orðið ófær í vetur. Það er
einfaldlega veður sem veldur
því, eins og staðan er núna (um
miðjan dag á þriðjudag) er hægt
að sjá í myndavélunum að sami
vindhraði er á Vatnsskarði og
Þverárfjalli. Það er bjart á Vatns-
skarði en nánast stórhríð á
Þverárfjalli. Það hefur sett niður
mikinn snjó á Skaga sem nær að
skafa þaðan og svo stoppar
hann í vegriðinu við Þverá og
þar fyrir ofan. Af því veður er
svona gott á Vatnsskarði höfum
við beint umferðinni meira
þangað, heldur en að skapa
hættu með því senda smábíla á
Þverárfjall í misjöfnu veðri og
færð,“ sagði Sveinn í samtali við
Feyki. /KSE
Vegurinn um Þverárfjall
Einna
virkust á
landsvísu
Fyrsti þátturinn í kvöld
Hestaíþróttir á Norðurlandi sjónvarpaðar á Stöð 2 Sport
Skottafilm hefur gert
samning við 365 miðla um
framleiðslu á sjö þáttum um
hestaíþróttir á Norðurlandi í
vetur og verða þeir til
sýningar á Stöð 2 Sport á
hálfsmánaðar fresti fram í
apríl. Fyrsti þátturinn verður
sýndur í kvöld kl. 21:30.
Þáttur kvöldsins fjallar um
Meistaradeild Norðurlands,
KS deildina, en að sögn Árna
Gunnarssonar hjá Skottafilm
munu fimm þættir fjalla um
KS deildina en þar mætast
sterkustu knaparnir og bestu
hestarnir á Norðurlandi, að
sögn Árna. Einnig verður
Opna Bautamótið í tölti, sem
verður haldið í Skautahöllinni
á Akureyri, og Ístöltmótið á
Svínavatni til umfjöllunar í
þáttaröðinni. Stöð 2 Sport mun
sýna frá 21 þáttum um
hestaíþróttir í vetur; 14 fjalla
um hestaíþróttir á Suðurlandi
og sjö á Norðurlandi.
„Ég vil hvetja fólk til að vera
duglegt að mæta í reiðhöllina
og hvetja sitt lið áfram. Það er
mikilvægt að sýna hve mikill
áhugi er fyrir íþróttinni hér
fyrir norðan,“ segir Árni að
endingu /BÞ
Ánægja með blótsgesti
Lögreglufréttir
Mikil skemmtanahelgi er nú
að baki í Skagafirði en tvö
stór þorrablót voru haldin
beggja vegna Héraðsvatna;
Króksblótið á Sauðárkróki og
Þorrablót Hóla- og
Viðvíkurhrepps á Hofsósi.
Lögreglan á Sauðárkróki var
hæstánægð hve blótin fóru
vel fram en þau voru mjög
fjölmenn, eða 660 manns á
Króksblótinu og um 300
manns á Hofsósi.
„Við vorum mjög duglegir
að mæla ölvunarakstur þegar
leið á nóttina, bæði á
Sauðárkróki og Hofsósi og það
kom allt mjög vel út -við vorum
alsælir með þetta,“ sagði
talsmaður lögreglunar í samtali
við Feyki.
Bílaþjófnaður í rannsókn
Um síðustu helgi var lýst eftir
upplýsingum um bíl sem fannst
mannlaus en í gangi á Þverár-
fjalli þegar mokstursmenn fóru
á stúfana snemma á sunnudags-
morgni. Hafði bílnum verið
stolið frá heimili eigandans á
Sauðárkróki um nóttina. Leit
var gerð að farþega eða farþeg-
um en upp úr hádegi var leit-
nni frestað, enda engin merki
um að viðkomandi væri hætta
búin. Að sögn Stefáns Vagns
Stefánssonar lögreglustjóra á
Sauðárkróki var leitinni síðan
hætt, enda hafði ekki verið til-
kynnt um að neins væri saknað.
Bílþjófnaðurinn verður rann-
sakaður áfram og er það mál í
ferli að sögn Stefáns. /BÞ & KSE