Feykir


Feykir - 13.02.2014, Blaðsíða 4

Feykir - 13.02.2014, Blaðsíða 4
4 Feykir 06/2014 ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport Kertaljós ÓLAFUR HALLGRÍMSSON SKRIFARFRÁ LESENDUM Safnaðarstarf er ofið ýmsum þáttum. Einn hinn mikil- vægasti er kirkjukórinn. Segja má, að í hverjum söfnuði sé kirkjukórinn eins konar burðarás safnaðar- starfsins ásamt sóknarprest- inum. Í kirkjukórum starfar fólk, sem leggur á sig ómælda vinnu og fyrirhöfn í þágu kirkjustarfsins. Það er fólkið, sem mætir á æfingar, stundum um langan veg, syngur í messum og við aðrar athafnir í kirkjunni án þess að spyrja um tíma eða fyrirhöfn. Hlutur þess verður seint of- metinn. Stundum er kirkju- kórinn kannski sá eini sem mætir. Síðari ár hefur hlutur einraddaðs söngs í messum nokkuð farið vaxandi, og er það í sjálfu sér góðra gjalda vert, því þannig verður e.t.v. almennari þátttaka í söngnum, því margir kynoka sér við að taka undir með kirkjukórnum. Engu að síður er hlutverk kirkjukórsins jafn mikilvægt. Á stærstu stundunum í kirkjunni viljum við hafa kirkjukór, t.d. á stór- hátíðum, við útfarir o.s.frv. Þá er kirkjukórinn bókstaflega ómissandi. Ýmsir kirkjukórar hafa brugðið á það ráð að æfa upp sérstök prógröm til hliðar við hið hefðbundna messuhald og efna til tónleika, stundum með annars konar lögum í bland. Slíkt vekur ánægju og skapar tilbreytingu í söngstarfinu, sem öllum er holl. Það færist í vöxt, að kirkju- kórar gefi út geisladisk með söng sínum. Einn slíkur er Kirkjukór Glaumbæjarpresta- kalls, en frá hendi hans kom út nú skömmu fyrir jól nýr geisla- diskur, sem ber nafnið Kertaljós og hefur að geyma hugljúfa jóla- og aðventutónlist. Árið 2006 gaf kórinn út Mín helgistund með ýmsum sálmalögum. Að þessu sinni hefur kórinn fengið til liðs við sig stúlknakór úr Varma- hlíðarskóla undir stjórn Helgu Rósar Sigfúsdóttur, sem syngur með kórnum í þremur lögum. Hefur stúlknakórinn starfað í nokkur ár. Stjórnandi kirkjukórsins er Stefán R. Gíslason, tónlistar- kennari. Stefán er sannarlega enginn nýgræðingur í skag- firsku tónlistarlífi. Hann hefur verið organisti og stjórnandi kirkjukóra Glaumbæjarpresta- kalls frá árinu 1984, auk þess 1. deild karla í körfubolta : Fjölnir - Tindastóll 95-78 Fyrsta tapið Tindastólsmenn fengu skell sl. föstudag þegar þeir léku við lið Fjölnis í Grafarvogi og þar með var fyrsta tapið í 1. deildinni í vetur staðreynd. Leikurinn var í járnum fram að fjórða leikhluta en þá tættu heimamenn gestina í sig. Lokatölur 95-78. Leikurinn var jafn í fyrsta leikhluta en þá var Helgi Rafn, sem var langbestur Stólanna í leiknum, í miklum ham og gerði 11 af 19 stigum Stólanna sem voru yfir að leikhlutanum loknum, 17-19. Stólarnir voru skrefinu á undan heimamönn- um framan af öðrum leikhluta en um hann miðjan náði Fjölnir góðum kafla og breyttu stöðunni úr 29-30 í 35-30 og þeir náðu að hanga á forystunni fram að hléi og voru yfir 38-34. Fjölnir jók muninn í sjö stig í byrjun síðari. Þegar fimm mínútur voru til leiksloka var munurinn orðinn 17 stig og til að gera langa og nöturlega sögu stutta þá sigraði Fjölnir með 17 stiga mun, 95-78. Það má kannski segja Stólunum til af- sökunar að þeir spiluðu erfiðan leik gegn ÍR í undanúrslitum bikarsins síðastliðinn mánudag. En 20 stiga tap gegn Fjölni á auðvitað ekki að vera í spilunum. Næsti leikur Tindastóls er hér heima annað kvöld gegn Hvergerðingum í Hamri og þá er vonandi að strákarnir verði búnir að berja sig saman. /ÓAB Ólöf Egilsdóttir og Kristín Björg. Mynd: Þorgerður Eva Þórhallsdóttir. Sunddeild Tindastóls Gerðu góða ferð á Gullmót Krakkarnir í sunddeild Tindastóls gerðu góða ferð á Gullmót KR sem haldið var í Laugardalshöll um sl. helgi. Alls fóru níu keppendur á aldrinum 10-14 ára og kepptu fyrir Tindastól. Að sögn Þorgerðar Evu Þórhallsdóttur, formanns sund- deildar, sem jafnframt var fararstjóri í ferðinni, stóðu krakkarnir sig vel. „Margir bættu tímana sína og svo voru nokkrir sem unnu riðlaverðlaun og fengu Hámark-drykk að launum. Við eigum frábæra og duglega krakka og unglinga í sundinu.“ /KSE sem hann hefur um langt árabil verið stjórnandi Karlakórsins Heimis og undirleikari hjá Álftagerðisbræðrum ásamt því að standa fyrir margs konar tónlistarviðburðum innan hér- aðs og utan. Um undirleik á diskinum sjá Eyþór Ingi Jónsson, organisti Akureyrarkirkju, á orgel, og Berglind Stefánsdóttir, dóttir Stefáns, á þverflautu. Upptökur fóru fram í Blönduóskirkju undir stjórn Hilmars Sverris- sonar. Á diskinum eru þrettán lög, allt aðventu- og jólalög, og lagavalið fjölbreytt. Titillagið nefnist Það kerta- ljós, nýtt lag eftir Stefán söng- stjóra við texta Sigurðar Björnssonar frá Framnesi, hugljúft lag og texti við fyrstu kynni, sem ég gæti trúað að ætti eftir að heyrast oftar á jóla- tónleikum. Síðan koma jóla- lögin hvert á fætur öðru, þekkt og minna þekkt, í fallegum flutningi kórsins. Fyrst Kom þú, kom vor Immanúel við latn- eskan sálm í þýðingu Sigur- björns Einarssonar. Þá Fögur er foldin við ljóð sr. Matthíasar og lagið Einu sinni í ættborg Davíðs, sem ekki heyrist mikið sungið. Síðan hið hrífandi jólalag, Jesús, þú ert vort jólaljós við texta sr. Valdimars Briem, sem er of sjaldan sungið á jólum. Þar syngur kórinn aðeins 1. versið sem er í sálmabókinni, en sálmurinn er þrjú vers. Hugsanlega hefði mátt syngja fyrsta vers og síðasta versið, en sleppa á móti t.d. einu versli úr næsta lagi á eftir, Guðs kristni í heimi, þar sem kórinn syngur öll fimm erindin. En þetta er smekksatriði. Í hinu sívinsæla jólalagi, Jólin alls staðar, eftir Jón Sigurðsson við texta Jóhönnu G. Erlingsson, syngur stúlkna- kórinn með, og setur söngur hans fagran blæ á flutninginn. Því næst kemur lagið Þá nýfæddur Jesús og svo Oss barn er fætt við ljóð Ágústs Böðvarssonar, afar fallegt lag, en ekki mikið kunnuglegt. Í hinu þekkta jólalagi Ingibjargar Þorbergs, Hin fyrstu jól, við texta Kristjáns frá Djúpalæk, syngur stúlknakórinn og gerir vel með aðstoð undirleikaranna. Þá kemur lagið Ó, helga nótt, eftir A. Adams, sem manni finnst alltaf vera hápunktur á hverjum jólatónleikum, svo máttugt sem það er í sinni fegurð. Ekki verður maður fyrir vonbrigðum með það í flutningi kórsins, og nýtur flautuleikur Berglindar Stefánsdóttur sín einkar vel þar og í fleiri lögum. Síðasta lagið á disknum er Opnast himins hlið, franskt lag frá 16. öld í íslenskri þýðingu Sigurðar Pálssonar, hressilegur jólalofsöngur með viðlaginu, Dýrð sé Guði í upphæðum (Gloría... Hosanna in excelsis). Fallegur endir á jóladiski. Kirkjukór Glaumbæjar- prestakalls býr yfir góðum raddstyrk, enda fjölmennur kór og margt vant söngfólk. Söngur kórsins er afar fágaður og nær vel að fanga hugblæ jólanna. Undirleikararnir tveir styðja vel við kórinn hvor á sinn hátt, og stjórnandinn hefur alla þræðina í hendi sér. Hér standa fagmenn að verki og útkoman er einkar fallegur diskur, sem óhætt er að mæta með. Frágangur disksins er hinn smekklegasti. Framan á honum er mynd af altari Víðimýrarkirkju, en í textaskrá m.a. myndir af kirkjum presta- kallsins og frá starfsemi kórsins. Á bakhlið nöfn kórfélaga. Til hamingju með flottan disk. Ólafur Hallgrímsson Efstar í 1. deild í körfunni Blússandi byr í seglum Stólastúlkna Kvennalið Tindastóls bauð uppá frábæra skemmtun í Varmahlíð sl. laugardag er þær tóku á móti Grindavík b í 1. deild kvenna í körfubolt- anum. Spiluðu stelpurnar eins og englar allan leikinn og sigruðu af öryggi 65-49. Stólastelpurnar voru skref- inu á undan þeim gulklæddu frá fyrstu mínútu og uppskáru frábæran liðsheildarsigur. Á heimasíðu Tindastóls segir að ótrúlega gaman sé að sjá hve margir eru að mæta á leikina hjá stelpunum og styðja vel við bakið á þeim. Lið Tindastóls trónir nú efst í 1. deildinni ásamt liðum Breiðabliks og Stjörnunnar en Blikar eiga einn leik til góða. /ÓAB

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.