Feykir - 10.04.2014, Side 5
14/2014 Feykir 5
Heilir og sælir lesendur góðir.
Í síðasta þætti spurði ég um höfund að vísu
sem ort var í fjármálaráðherratíð Matthíasar
Á. Mathiesen. Hef nú fengið góðar upplýsingar
um vísuna, frá Sauðárkróki, sem ég þakka
ónefndum vísnaunnanda þar vel fyrir.
Stjórnin leggur skatt á skatt
skattanetin þéttast.
Alltaf þyngist Matti Matt
meðan aðrir léttast.
Þessi vísa mun vera eftir Hauk Gíslason sem
ættaður var frá Eyvindarstöðum í Blöndudal.
Bjó hann um skeið á Sauðárkróki, en flutti svo
suður á Reykjavíkursvæðið. Haukur var sonur
Gísla Jónssonar bónda á Eyvindarstöðum
sem var einn af forystumönnum að stofnun
Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps 1925. Höfum
við félagar í kórnum sungið ljómandi fallegt lag
eftir Hauk við ljóð Guðrúnar Gísladóttur sem
einnig bjó á Sauðárkróki. Heitir það Söknuður
og var Guðrún einnig ættuð héðan að vestan,
faðir hennar Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum.
Einhverju sinni á meðan Haukur átti heimili
á Sauðárkróki var haldinn dansleikur á Bifröst
með hljómsveit Ingimars Eydal, sem þá var
landsfræg danshljómsveit ef svo má að orði
komast. Dreif Haukur sig á ballið en var af
einhverjum ástæðum ekki mjög hrifinn af leik
hljómsveitarinnar. Varð það tilefni eftirfarandi
vísu.
Margur átti á meiru von
maður, en koma virtist.
Þegar Ingimar Eydalsson
upp á sviðinu birtist.
Mikið ágæti finnst undirrituðum næsta vísa
Hauks. Mun hann þar vera að biðja vinkonu
sína að gera sér greiða.
Mikið hefurðu mjúkan hupp
margur af því dáist.
Lyftu kjólnum lengra upp
svo leikvöllurinn sjáist.
Pálmi Jónsson á Sauðárkróki er höfundur að
þessari.
Armæða af illsku hlýst
elskumst meðal vina.
Andartakið eigum víst
ekki framtíðina.
Þar sem nú fer að nálgast það í tímatali sem
kallast vor er vel við hæfi að rifja næst upp vísu
sem gerð er harðindavorið 1979. Höfundur
er Jón Sigurðsson, þá bóndi í Skollagróf í
Hrunamannahreppi. Er reyndar vikið að því í
vísunni að fráfarandi landbúnaðarráðherra var
Steingrímur Hermannsson.
Þá var mörgum þungt um sporið
þegar frusu göturnar.
Stóð ég af mér Steingrímsvorið
stráin teygði um jöturnar.
Er ekki alveg viss en minnir að næstu vorvísur
séu eftir þann ágæta Harald Hjálmarsson frá
Kambi.
Vísnaþáttur 615
Bændur henda hrossataði
á harðar grundir.
Það mun ekki þykja skaði
um þessar mundir.
Konur hleypa kúnum út
með köldu blóði.
Smali rekur rúinn hrút
með rollustóði.
Kannski hef ég áður í þessum þáttum birt
þessa ágætu vísu. Man því miður ekki eftir
hvern hún er.
Sannleikur er seinn í för
seggja fær ei hylli,
En lygin þýtur líkt og ör
landshornanna á milli.
Önnur ágæt, en höfundarlaus kemur hér næst.
Þó að lifi og leiki mér
léttur mjög í sinni.
Finn ég samt að fallvalt er
flest í veröldinni.
Er þessi þáttur er í smíðum glymur auglýsing
í útvarpi um að landsins börn eigi að tryggja
sér sem fyrst aðgöngumiða að Landsmóti
hestamanna næsta sumar. Held að það hafi
verið Böðvar Guðlaugsson sem orti eitt sinn
svo á stórmóti hestamanna.
Þunga krossa bera hross
bjóða kossa fýsur
Renna í fossum yfir oss
ásta og hrossa vísur.
Örugglega hefur þessi kunna gleðskaparvísa
verið kveðinn á mörgu hestamannamóti. Vildi
óska að einhver gæti sagt mér rétt og satt eftir
hvern hún er.
Hér er drengja hópur stór
hér má lengja vöku.
Inn ég gegn í kvæðakór
kann þó enga stöku.
Tilefni næstu vísu mun hafa verið það, að
kaupfélagsstjórinn á Hofsósi ákvað að koma
því í verk að gifta sig. Af því tilefni orti Halli
Hjálmars frá Kambi.
Margur sig að búskap ber
besta lífs á skeiði.
Kristján Hallsson kominn er
á kot sem stóð í eyði.
Gott að enda með annarri vísu eftir Halla. Er
hann þar að tala til ákveðins hótelstjóra, sem
hann var í góðum kynnum við.
Virðar segja að Valgarður
sé viku hverja á þambi.
Hann er verri en Haraldur
Hjálmarsson frá Kambi.
Verið þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) kristin@feykir.is
Sérstök upplifun að fara
í Buddah brúðkaup
Andri Valur Ómarsson frá Varmahlíð
verður fermdur af sr. Gísla
Gunnarssyni í Glaumbæjarkirkju
þann 8. júní. Gísli er sonur
Ómars Bragasonar og Guðbjargar
Steinunnar Sigfúsdóttur.
Hvers vegna valdir þú að fermast? Ég valdi að
fermast af því að ég trúi á Guð og vil staðfesta
skírnina.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? Ég
hef velt trúmálum nokkuð fyrir mér. Ég hef lært
heilmikið í skólanum og í fermingarfræðslunni.
Ég hef stundað sunnudagaskólann hjá sr. Gísla
frá því að ég var lítill og tók þátt í TTT þegar ég
hafði aldur til. Í skólanum höfum við líka lært
um önnur trúarbrögð, ég hef farið í Buddah
brúðkaup, það var sérstök upplifun.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið
háttað? Við erum búin að gera drög að gestalista
og erum aðeins farin að spá í fermingarfötin og
matinn. Ég er búinn að fá áprentaða sálmabók.
Hvar verður veislan haldin?
Veislan verður haldin á Löngumýri.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum?
Það er ekki búið að ákveða endanlega hvað verður
á matseðlinum, en það verður matarhlaðborð og
kökur á eftir. Óli kokkur ætlar að elda matinn fyrir okkur, mamma bakar kökurnar og Heiðbjört
amma gerir kransakökuna. Sennilega höfum við líka ístertu.
Er búið að finna fermingarfötin? Það er ekki búið að finna fermingarfötin, það verður gert í
páskafríinu. Mig langar að kaupa jakkaföt.
Hver er óska fermingargjöfin? Mig langar í fartölvu og pening, en verð ánægður með allt .
Alltaf trúað á Guð
Áróra Árnadóttir frá
Sauðárkróki verður
fermd af sr. Sigríði
Gunnarsdóttur í
Sauðárkrókskirkju þann
8. júní. Áróra er dóttir
Árna Gunnarssonar og
Þ. Elenóru Jónsdóttur.
Hvers vegna valdir þú að
fermast? Fyrst og fremst vegna
þess að ég trúi á Guð og líka
vegna þess að það er eiginlega
hefð.
Hefur þú velt trúmálum mikið
fyrir þér? Nei, ekki mikið vegna
þess að ég hef alltaf trúað á Guð
og hef eiginlega ekkert efast um
trú mína.
Hvernig hefur fermingarundir-
búningnum verið háttað? Bara
á hefðbundin hátt. Við höfum
fræðst um kristna trú og tekið þátt
í kristilegu starfi.
Hvar verður veislan haldin?
Veislan sjálf verður haldin í
matsal Árskóla.
Er búið að ákveða hvað verður á
matseðlinum? Nei, en ég er búinn að ákveða að kakan verður ísterta.
Er búið að finna fermingarfötin? Já.
Hver er óska fermingargjöfin? Ætli það sé ekki fartölva eða iPad.
FERMINGIN MÍN / Andri Valur Ómarsson FERMINGIN MÍN / Áróra Árnadóttir