Feykir - 16.10.2014, Blaðsíða 4
4 39/2014
Aðalfundur Skalla, félags
smábátaeigenda á
Norðurlandi vestra, var
haldinn á Sauðárkróki 19.
september sl. Fundinn sóttu
félagsmenn, allt frá
Hvammstanga að Siglufirði.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
kemur fram að Sverrir
Sveinsson, formaður Skalla, hafi
flutt ítarlega skýrslu um starf-
semina á árinu. Fram kom að
mikið hafi farið fyrir baráttu
félagsins við að fá opnað
reglugerðarhólf á Fljótagrunni,
en þar hafa handfæraveiðar
verið bannaðar undanfarin ár.
„Beiðni félagsins var keyrð
gegnum Hafrannsóknastofnun
þar sem lögð var fram tillaga um
nýja viðmiðunarpunkta byggða
á upplýsingum frá heima-
mönnum. Þrátt fyrir að sýna-
tökur sýndu að smáfiskur væri í
óverulegu magni á því svæði
sem tillaga var gerð um að opna
var ekki fallist á breytingar.
Skalli undi ekki þeirri niður-
stöðu og krafðist aðkomu ráð-
herra að málinu. Það bar ekki
tilætlaðan árangur þar sem
hann hafnaði einnig breytingar-
tillögu Skalla,“ segir í fréttatil-
kynningu. „Að sögn kunnugra
er það hvergi þekkt í víðri veröld
að stjórnvöld banni hand-
færaveiðar vegna mælinga sem
gefa til kynna að 25% af afla
á tilteknu svæði sé undir
ákveðnum stærðarmörkum.“
Á fundinum kynnti Steinar
Skarphéðinsson skýrslu sem
hann hafði unnið um strand-
veiðar og komu þar fram kostir
og ókostir strandveiða. Sjónar-
mið Steinars voru mikið rædd
og lauk með samþykkt tillögu
um rýmkun á reglum um
strandveiðar.
Í umræðu um grásleppumál
voru fundarmenn sammála um
að markaðsaðstæður ættu að
ráða fjölda veiðidaga. Þá hafnaði
aðalfundur Skalla þeirri að-
ferðarfræði sem Hafrannsóknar-
stofnun beitir við stofnstærðar-
mælingu á grásleppu. /BÞ
Aflatölur 4.-11. október
Rúmlega 300 tonn að landi
Í viku 41 var rúmum 127 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var rúmum 172 tonnum landað á
Sauðárkróki og rúmum 6 tonnum á Hofsósi. Ekkert var róið frá Hvammstanga. Samtals var
landað um 300 tonnum, sem er hundrað tonnum minna en í síðustu viku. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KGSKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Blær HU-77 Landb.lína 759
Dagrún HU-121 Þorskanet 1.648
Hafrún HU-12 Dragnót 4.422
Hamar SH-224 Lína 13.756
Muggur KE-57 Landb.lína 2.388
Ólafur Magnús. HU-54 Þorskanet 2.139
Sighvatur GK-57 Lína 90.341
Stella GK-23 Landb. lína 5.443
Alls á Skagaströnd: 127.386
Farsæll SH-30 Botnvarpa 38.606
Gammur SK-12 Þorskfisknet 1.556
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 3.258
Klakkur SK-5 Botnvarpa 127.818
Már SK-90 Handfæri 476
Óskar SK-13 Handfæri 526
Vinur SK-22 Handfæri 302
Alls á Sauðárkróki 172.542
Ásmundur SK-123 Landb. lína 6.183
Alls á Hofsósi 6.183
Hafna aðferðarfræði Hafró við
stofnstærðarmælingu á grásleppu
Aðalfundur Skalla, félags smábátaeigenda á NLV
Sverrir Sveinsson, Siglufirði,
formaður Skalla.
Undanfarin ár hafa
lífsstílssjúkdómar orðið algengari.
Það skiptir miklu máli að auka
lífsgæði okkar og vera heilbrigðari
lengur. Reglubundin þjálfun
minnkar áhættuna sem fylgir
reykingum, offitu, sykursýki, of
háum blóðþrýstingi og hjarta- og
æðasjúkdómum. Bætt þrek getur
gert gæfumuninn. Að hreyfa sig
daglega er nauðsynlegt. Fyrir
andlega, félagslega og líkamlega
vellíðan. Með því að hreyfa okkur
daglega getum við betur tekist á
við lífið og tilveruna. Reynum að
minnka kyrrsetuna og hreyfum
okkur meira.
30 mín á dag - allir geta verið með
Markmiðið er að hvetja fólk til að
hreyfa sig daglega í a.m.k. 30
mínútur og að gera hreyfingu að
daglegri venju. Tilvalið fyrir vinnustaði
t.d. að setja upp plaggat og merkja
inn hreyfinguna á blaðið. Það væri
einnig hægt að búa til einhver lið
og vera með liðakeppni. Þetta
er frábært til að auka samheldni
og vera sjálfum sér og öðrum til
fyrirmyndar.
30 mín á dag er ekki hugsað sem
átak heldur að hvetja fólk til að
hreyfa sig og gera hreyfingu að
sínum lífstíl. Við tannburstum okkur
á hverjum degi og förum með bílinn
okkar í skoðun einu sinni á ári,
af hverju þá ekki að hreyfa okkur
einnig á hverjum degi og fara í
heilsufarsskoðun einu sinni á ári?
Hreyfiseðillinn er hugsaður sem
verkefni sem hægt væri að vinna
t.d. á virkum dögum í einn mánuð.
Um leið og þú hefur lokið við eitt
verkefni þá krossar þú yfir það. Allir
geta aðlagað hreyfiseðilinn að sínum
áhugamálum.
Hvers virði er góður starfskraftur?
Það á ekki að vera nóg að fyrirtæki
ráði starfsmann í vinnu og hugi svo
ekki að heilsu hans. Vinnuumhverfið
þarf að vera öruggt og heilsusamlegt.
Ánægður starfsmaður skilar mun
meiri vinnu og betri og hlýtur að vera
mun minna frá líka vegna veikinda.
Hvernig væri að fyrirtæki greiddi
niður (að einhverjum hluta) fyrir
starfsmanninn sinn t.d. í líkamsrækt?
Eða byði starfsmönnunum
sínum uppá einhverskonar tíma/
námskeið? Já eða kæmi til móts við
starfsmanninn ef hann vildi ganga
með barninu sínu í skólann og
„lofaði“ honum þá að koma aðeins
seinna til vinnu (ef það er hægt) og
svona mætti endalaust halda áfram.
Við vitum öll að góður starfsandi er
ómetanlegur.
Heilsufarsvandamál sem tengjast
lifnaðarháttum fólks hafa aukist á
undanförnum árum. Gott heilsufar
einstaklinga er allra hagur, ekki
eingöngu fyrir einstaklinginn sjálfan
heldur einnig samfélagið, þar
sem velferðarsjúkdómar eru mjög
kostnaðarsamir.
Verum góð fyrirmynd fyrir börnin
okkar. Þau læra það sem fyrir þeim
er haft.
Góð heilsa er gulli betri!
Erla Jakobsdóttir, íþróttafræðingur,
Metabolic kennari og ÍAK
einkaþjálfari
- - - - -
Erla skorar á Önnu M. Sigurðardóttur
á Blönduósi að taka við pennanum.
Erla Jakobsdóttir á Blönduósi skrifar
Settu heilsuna í 1. sætið
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
Húsnæði óskast til leigu
Íbúðarhúsnæði um 100 fm að stærð auk bílskúrs óskast til leigu á
Sauðárkróki frá desember nk. Reglusemi og góðri umgengni heitið.
Fyrirframgreiðsla í boði fyrir langtíma leigu.
Upplýsingar í heimasíma 478 1384 og GSM 892 4063.
Kór Lindakirkju í Kópavogi, undir stjórn Óskars
Einarssonar, heldur tónleika föstudaginn
17. október kl. 20:30 í Hólaneskirkju
Skagaströnd.
Í fréttatilkynningu frá kórnum kemur fram að
kórinn hafi staðið í stórræðum í sumar og tekið
upp nýja plötu sem ber heitið Með fögnuði.
Um er að ræða gospeltónlist sem nær öll er
samin af starfsfólki Lindakirkju, Áslaugu Helgu
Hálfdánardóttur, Óskari Einarssyni, tónlistar-
stjóra og sóknarprestinum sr. Guðmundi Karli
Brynjarssyni. Kór Lindakirkju syngur öll lögin á
plötunni ásamt einsöngvurum úr röðum kórsins.
Hljóðfæraleikur á plötunni er í höndum Ósk-
ars Einarssonar, Sigfúsar Óttarssonar, Friðriks
Karlssonar og Jóhanns Ásmundssonar. /BÞ
Íslenskt gæðagospel á Skagaströnd
Tónleikar föstudaginn 17. október