Feykir - 16.10.2014, Blaðsíða 5
39/2014 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Loftur Páll, Guðrún
Jenný og Hrafnhildur best
Viðurkenningar veittar í lokahófi meistaraflokka Tindastóls
Lokahóf meistaraflokka Tindastóls í
knattspyrnu var haldið á Kaffi Krók 20.
september sl. Að sögn Ómars Braga
Stefánssonar, formanns knattspyrnu-
deildar, var fínasta mæting hjá
knattspyrnufólki sem skemmti sér
ljóm-andi vel og naut matar sem var
framreiddur af þýsku matreiðslufólki.
Ómar Bragi segir uppskeru þessa tímabils
frekar rýra. Meistaraflokkur karla féll niður
í 2. deild og meistaraflokkur kvenna var um
miðja deild. Hinsvegar var engan bilbug að
finna á iðkendum og tilhlökkun til næsta árs
er mikil. /BÞ
Eftirtaldir leikmenn fengu viðurkenningar:
M.fl. karla:
Bestur Loftur Páll Eiríksson
Efnilegastur Hólmar Daði Skúlason
Markakóngur Mark McGee
M.fl. kvenna:
Best Guðrún Jenný Ágústsdóttir
Efnilegust Ólína Sif Einarsdóttir
Markadrottning Guðrún Jenný Ágústsdóttir
2. fl. kvenna:
Best Hrafnhildur Björnsdóttir
Efnilegust Hrafnhildur Björnsdóttir
Markadrottning Hrafnhildur Björnsdóttir
Við afhendingu viðurkenninga
hjá m.fl.karla, frá vinstri; Haukur
Skúlason, Hólmar Daði Skúlason,
Loftur Páll Eiríksson, Bjarni Smári
Gíslason sem tók við verðlaunum
f.h. Mark McGee og Bjarki Már
Árnason.
Við afhendingu viðurkenninga hjá m.fl.kvenna, frá
vinstri; Guðrún Jenný Ágústsdóttir og Ólína Sif Ein-
arsdóttir, ásamt Guðjóni Erni Jóhannssyni þjálfara.
Hrafnhildur Björnsdóttir hlaut viðurkenningu í öllum flokkum
í 2. flokki kvenna, best, efnilegust og markadrottning. Hér er
hún ásamt Guðjóni Erni Jóhannssyni þjálfara.
Snilldar endurkoma Stólanna
Dominos-deildin í körfubolta: Stjarnan - Tindastóls 80-85
Fyrsta umferð í Dominos-
deildinni í körfubolta hófst í
síðustu viku. Tindastólsmenn
renndu suður í Garðabæ þar
sem þeir léku við Stjörnuna.
Framan af leik voru strákarnir
ekki í gírnum en síðustu 15
mínútur leiksins snéru þeir á
heimamenn svo um munaði
og unnu á endanum frækinn
sigur, 80-85.
Dagur Jónsson setti niður
fyrstu 3ja stiga körfu leiksins og
kom Stjörnumönnum í forystu
sem þeir héldu þangað til þrjár
og hálf mínúta voru eftir af
leiknum. Heimamenn höfðu
frumkvæðið í fyrsta leikhluta og
voru yfir, 27-20, að honum
loknum. Tindastólsmenn létu
það síðan alveg vera að skora
fyrstu fimm mínútur annars
leikhluta og og staðan orðin 39-
20 áður en Ingvi Rafn setti niður
þrist fyrir Stólana. Í hálfleik var
staðan 46-30.
Stjarnan byrjaði þriðja leik-
hluta af krafti og náði fljótlega
20 stiga forskoti. Justin Shouse
setti síðan niður þrist og staðan
orðin 59-36. Þá fannst Tinda-
stólsmönnum komið nóg og
þeir hófu endurkomu sína með
fantagóðum varnarleik sem
varð til þess að á rúmum þrem-
ur mínútum gerðu Stólarnir 16
stig án þess að heimamenn
næðu að svara, staðan 59-52 og
allt orðið opið. Þegar þriðja
Loftur Páll Eiríksson er 22 ára
Skagfirðingur, frá Beingarði
í Hegranesi. Hann er sonur
Stefaníu Birnu Jónsdóttur og
Eiríks Loftssonar. Loftur Páll er
nú búsettur í Kópavogi. Hann
hefur verið sem klettur í vörn
mfl. Tindastóls í fótboltanum
síðustu sumur og var á
dögunum valinn besti leikmaður
Stólanna í sumar.
Íþróttagrein: -Æfi og keppi í knatt-
spyrnu, stunda einnig frjálsar
íþróttir hjá FH.
Íþróttafélag/félög: -Er án félags
eins og stendur.
Helstu íþróttaafrek: -Þegar ég
spilaði á móti Kyrie Irving í Borgar-
nesi árið 2008. Fyrir þá sem
ekki þekkja hann, þá spilar hann
sem leikstjórnandi fyrir Cleveland
Cavaliers í NBA deildinni í dag.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Það eru tvö augnablik sem standa
upp úr, annarsvegar úrslitaleikur
Íslandsmótsins í 3. flokki á móti
FH í Borgarnesi og hinsvegar
úrslitaleikurinn í Football Festival
Århus cup á móti Hammerby.
Neyðarlegasta atvikið: -Þegar
ég tapa á móti bróður mínum í
íþróttum.
Einhver sérviska eða hjátrú?
-Nei, engin hjátrú, reyni samt að
halda mig við sömu rútínu fyrir
hverja æfingu og hvern leik.
Uppáhalds íþróttamaður? -Held
mikið upp á tvo knattspyrnumenn,
Andres Iniesta og Paul Pogba.
Ef þú mættir velja þér andstæð-
ing, hver myndi það vera og í
hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? -Ég myndi skora á Sigurð
Halldórsson, að taka leik við mig
í körfubolta 1 á móti 1 upp í 11.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? Jafn leikur þangað til í
endann, þá tekur Sigurður upp
á því að klína tveimur þriggja
stiga körfum í andlitið á mér,
spjaldið ofan í, og vinnur 12-8 og
fagnar sigrinum með „moonwalk“
dansinum.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Það eru engin sérstök afrek
fyrir utan íþróttirnar.
Lífsmottó: -Hef ekkert lífsmottó.
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Michael
Jordan hefur alltaf verið mín
fyrirmynd.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Er að klára mitt síðasta
ár við íþróttafræðisvið í Háskóla
Reykjavíkur.
Hvað er framundan? -Klára BSc í
íþróttafræði, svo er stefnan sett út
fyrir landsteinana.
Loftur Páll Eiríksson / knattspyrna
Helsta afrekið
að spila á móti
Kyrie Irving
( GARPURINN ) berglind@feykir.is
Loftur Páll, til vinstri, í búningi Tindastóls. MYND: ÓAB
leikhluta lauk var munurinn
aðeins fjögur stig, 62-58.
Góður leikur Tindastóls-
manna hélt áfram í fjórða leik-
hluta en Stjörnumenn voru ekki
tilbúnir að gefa eitt eða neitt.
Með góðum varnarleik náðu
Stólarnir að setja heimamenn í
þá stöðu að taka erfið skot. Helgi
Margeirs minnkaði muninn
snemma í eitt stig, 64-63, en það
tók Stólana þó dágóðan tíma að
ná forystunni í leiknum. Það
gerði einmitt Helgi Margeirs
með þriðju 3ja stiga körfu sinni í
leikhlutanum. Æsispenna var
síðustu mínúturnar en Stólarnir
með Helgana tvo í baráttuhug
héldu haus, á meðan kanónur
heimamenn fóru á taugum á
vítalínunni, og fögnuðu í lokin
sætum sigri. Næsti leikur er í
kvöld gegn Þór Þ. /ÓAB
Stig Tindastóls: Dempsey 22, Helgi
Viggós 18, Helgi Margeirs 15, Lewis 14,
Ingvi 13 og Pétur 3.