Feykir - 16.10.2014, Side 10
10 39/2014
Grunnskólinn á Hofsósi
Hin árlega Rakelarhátíð var haldin í Höfðaborg á Hofsósi
síðast liðinn sunnudag. Það er Grunnskólinn austan Vatna á
Hofsósi sem stendur fyrir hátíðinni, í minningu Rakelar
Pálmadóttur sem lést af völdum reiðhjólaslyss árið 1988.
Nær árlega síðan hefur hátíðin verið haldin og sjá nú
grunnskólanemendur og starfsfólk um framkvæmd
hennar.
Að vanda var boðið upp á metnaðarfull skemmtiatriði; Jóhann
Bjarnason skólastjóri setti samkomuna og kom fram í máli hans
að minningarsjóður Rakelar hefur nýlega styrkt bæði kaup á
sófum í félagsaðstöðu nemenda og endurnýjun á sjónvörpum
fyrir skólann. Reynir Freyr Hauksson og Ófeigur Númi
Halldórsson kynntu dagskrána. Kristín S. Einarsdóttir flutti
hátíðarræðu, grunnskólabörn léku og sungu fjölbreytt atriði
og Rögnvaldur gáfaði og Summi úr Hvanndalsbræðrum léku
nokkur lög.
Að lokum ávarpaði Pálmi Rögnvaldsson samkomuna og
færði þakkir frá fjölskyldunni.
Rakelarhátíðin vel
sótt að vanda
Bændadagar í Skagfirðingabúð
Hinir árlegu Skagfirsku bændadagar voru
haldnir í Skagfirðingabúð í síðustu viku og
fóru þeir fram úr björtustu vonum, að sögn
Árna Kristinssonar verslunarstjóra. Þar mátti
gera ýmis kostakaup á kjöt- og mjólkurvörum
og skapaðist mikil stemning þegar bændur
mættu í verslunina til að bjóða upp á smakk.
Mest seldist af hinu klassíska íslenska
lambalæri en þar á eftir var nautahakkið vin-
sælast. Fleiri andlit mátti sjá í versluninni í ár en í
fyrra og var meiri sala en áður. Samkvæmt tölum
voru afgreiðslur 750 talsins sem þýðir að minnst
1000 manns hafi heimsótt Skagfirðingabúð
þessa tvo daga. Þá kemur fólk víða að til að gera
góð kaup á Bændadögum og segir Árni sífellt
fleiri koma frá nágrannabyggðunum, s.s. Akur-
eyri, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Húnavatns-
sýslum.
Meðfylgjandi myndir tók Sveinn Brynjar
Pálmason. /BÞ
Lambalærið vinsælast