Feykir - 22.01.2015, Page 3
3/2015 3
Tindastólsmenn gerðu sér
lítið fyrir og skelltu liði
Snæfells í Stykkishólmi sl.
laugardag í 8 liða úrslitum
Powerade-bikarkeppninnar.
Stólarnir náðu yfirhöndinni
undir lok fyrsta leikhluta og
héldu forystunni nokkuð
örugglega allt til leiksloka.
Lokatölur voru 70-83.
Síðustu þrjár mínútur fyrsta
leikhluta og rúmar fimm þær
fyrstu í öðrum leikhluta gerðu
heimamenn ekki eitt einasta stig
og munar um minna. Staðan í
hálfleik var 30-36 og það var í lok
þriðja leikhluta sem Stólarnir
náðu 14 stiga forskoti sem
heimamenn náðu ekki að brúa.
Dempsey var atkvæðamestur
hjá Tindastóli með 23 stig og 11
fráköst en Lewis var skammt
undan með 21 stig. Þá var Ingvi
Rafn góður með 12 stig og 6
fráköst. Hittni heimamanna
innan teigs var slök en þeir settu
niður 13 körfur úr 41 tilraun en
Poweradebikarinn: Snæfell - Tindastóll 70-83
Bikarsigur í Hólminum
leikhlutanum en lið Tindastóls
náði að jafna þegar skammt var
eftir af leiknum, 91-91. Það voru
hins vegar heimamenn í Þór sem
gerðu fleiri stig í lokin og þriðja
tap Tindastóls í Dominos-
deildinni því staðreynd.
Bestur í liði Stólanna var
Darrel Lewis en hann gerði 32 stig
og tók 14 fráköst. Helgi Margeirs
gerði 21 stig og var sjóðheitur þó
ekki hefði gengið að bora niður
þristi í blálokin. Að þessu sinni var
það varnarleikurinn sem brást.
Stig Tindastóls: Lewis 32, Helgi Margeirs 21,
Dempsey 18, Flake 8, Svavar 6, Helgi Viggós
5, Ingvi 2, Pétur 2 og Hannes 1.
KR slagir framundan
Í kvöld mæta Tindastólsmenn
taplausu meistaraliði KR í Síkinu
og hefst leikurinn kl. 19:15.
Stuðningsmenn eru hvattir til að
fjölmenna og ekki er verra að frítt
er í Síkið í boði K-Taks.
Þá var í vikunni dregið í
undanúrslitum Poweradebikars-
ins og þar drógust Stólarnir
einmitt gegn liði KR og verður
leikið í Vesturbænum. Eða eins og
kerlingin sagði: Þetta verður
eitthvað! /ÓAB
Stólarnir 26 í 55 tilraunum.
Snæfellingar hittu betur utan 3ja
stiga línunnar en vítahittnin var sú
sama þó heimamenn fengju
heldur fleiri vítaskot í leiknum. Þá
reyndust Tindastólsmenn sterkari
undir körfunni og tóku 49 fráköst
á móti 41 Snæfellinga.
Stig Tindastóls: Dempsey 23, Lewis 21, Ingvi
12, Flake 6/9 frk., Helgi Rafn 6/6 frk., Pétur
4/5 frk./5 sts., Finnbogi 3, Sigurður 3, Hannes
2, Viðar 2 og Svavar 1.
Þór Þ - Tindastóll 97-95
Tveimur dögum fyrir Snæfells-
leikinn léku Tindastólsmenn við
Þór í Þorlákshöfn og eftir hörku-
leik reyndust heimamenn sterkari
á endasprettinum og sigruðu 97-
95.
Dempsey fékk tvær villur strax
í upphafi leiks og naut sín ekki
sem skildi fyrir vikið. Staðan í
hálfleik var 44-48 fyrir Stólana en
Þórsarar náðu 12-2 kafla í upphafi
síðari hálfleiks en jafnt var, 72-72,
fyrir fjórða leikhluta. Þórsarar
náðu mest 11 stiga forystu í
Sævar Jónatansson er fæddur
árið 1997 og býr á Sauðárkróki.
Hann er sonur Ingu Jónu
Sigmundsdóttur og Jónatans
Sævarssonar. Sævar á þrjú
systkini, þau Ásrúnu, Eyþór og
Evu Zilan.
Deild í FNV: -Viðskipta- og hag-
fræðibraut.
Þrjú lýsingarorð sem lýsa þér
best: -Hress, aktívur og hávaxinn.
Hvar finnst þér best að vera:
-Með félögunum.
Hvernig líkar þér að vera í FNV:
-Bara nokkuð vel.
Hvað finnst þér best við skólann:
-Þegar tímar falla niður.
Hvaða viðburður í skólanum
finnst þér skemmtilegastur:
-Menningarkvöld NFNV.
Helstu áhugamál: -Borða.
Uppáhalds matur: -Piparsteik.
Besta kvikmyndin: -Engin kvik-
mynd sem stendur uppúr, bara
þættirnir Blue Mountain State, ég
get horft á þá endalaust.
Hvaða þekktri persónu vildirðu
helst kynnast: -Machine Gun
Kelly, það væri klikkað.
Hvað er það versta sem gæti
komið fyrir þig: -Það væri mjög
slæmt að missa hendurnar.
Hvað gleður þig mest: -Djamm.
Uppáhalds félag í íþróttum:
-Tindastóll all the way!
Skrýtnasti félaginn: -Það er klár-
lega Atli Freyr.
Hver er helsta fyrirmyndin: -Engin
spes, vill vera „one of a kind“.
Uppáhalds tónlist: -Alveg ótrúlegt
hvað ég get hlustað á allskonar
tónlist.
Uppáhalds teiknimyndapersóna:
-Jóakim aðalönd.
Uppáhalds stjórnmálamaðurinn:
-Simmi.
Lífsregla: -Hafa gaman.
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti: -Henda í
góða ferð til Benidorm eða eitthvað
álíka.
Draumatakmark: -Lifa hátt.
Sævar skorar á Agnar Inga
Ingimundarson að svara
spurningum Feykis næst.
Sævar Jónatansson
Hress, aktívur
og hávaxinn!
( FJÖR Í FJÖLBRAUT ) berglind@feykir.is
Setjum okkur að gera lífið skemmtilegt
Það eftirminnilegasta...
Eftirminnilegast á liðnu ári er Þýskalandsferð
sem við hjónin fórum í ásamt góðum ferða-
félögum úr Húnavatns- og Skagafjarðar-
prófastsdæmi. Farið var á slóðir Marteins
Lúthers og saga siðbótarinnar rifjuð upp m.a. í
Wittenberg þar sem Lúther starfaði lengst af.
Það skemmtilegasta...
Af öðrum skemmtilegum minningum kemur
upp í hugann reiðtúr sem ég fór í ásamt fleirum
frá Gilsbakka að Ábæjarkirkju þegar þar var
messað í byrjun ágúst. Það var í fyrsta sinn sem
ég fór yfir Merkigil og á leiðinni nutum við
mikillar gestrisni á bænum Merkigili á báðum
leiðum.
Hjá mér var árið 2014 ár kosninga og var ég
kosinn á kirkjuþing til næstu fjögurra ára og í
framhaldi af því kjörinn til áframhaldandi setu
í kirkjuráði. Þar eru mörg mál til umfjöllunar
og ég held að samband ríkis og kirkju verði
nokkuð í deiglunni á þessu kjörtímabili.
Jól og áramót...
Aðventan hófst hjá mér með því að ég hélt
hátíðarræðu á aðventuhátíð íslenska safnaðar-
ins í Kaupmannahöfn fyrsta sunnudag í að-
ventu. Að því loknu var súkkulaði í Jónshúsi.
Síðan var farið í gögnutúr um söguslóð Kaup-
mannahafnar með góðum leiðsögumanni og
að lokum borðað í Gröften í Tívolí.
Síðan voru aðventuhátíðir hér heima.
Messur voru á öllum mínum kirkjum á að-
fangadag og jóladag og síðan var áramótamessa
í Glaumbæjarkirkju á gamlársdag.
Litið um öxl
á nýju ári
Gísli Gunnarsson sóknarprestur í Glaumbæ í Skagafirði
14/15
Matarboð voru milli jóla og áramóta og
okkar árlega jólabingó fór fram á Laugaveginum
í Varmahlíð annan í jólum.
Nýtt ár...
Ég er nokkuð bjartsýnn varðandi nýja árið.
Vona að Íslendingar almennt fari að minnka
karp og leiðindi og fari að finna sig aftur sem
eina þjóð með sameiginlega hagsmuni.
Held þó reyndar að kjaramál verði mikið í
umræðunni á árinu og að nokkur harka geti
verið á þeim vettvangi. Hræddur um að ekkert
nýtt gerist í atvinnumálum Skagfirðinga.
Við skulum samt horfa björtum augum mót
nýju ári og setja okkur að gera lífið skemmtilegt.
Láta ekki hinar ýmsu hindranir, hvort sem þær
eru raunverulegar eða bara í huganum stoppa
okkur í því að láta drauma okkar rætast. Og alls
ekki að láta eitthvað sem engu máli skiptir hafa
neikvæð áhrif á líf okkar. Ég óska okkur öllum
gleðilegs og farsæls árs.
kristin@feykir.is
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR >> Þú finnur fleiri íþróttafréttir á www.feykir.is
Keppendur UMSS stóðu sig vel á fyrsta
stórmóti ársins í frjálsíþróttum,
Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum (RIG),
sem fram fóru í Laugardalshöllinni í
Reykjavík sl. laugardag.
Á fimmta hundrað erlendra gesta komu til
leikanna í ár, til viðbótar við 2000 íslenskra
þátttakenda, samkvæmt vef ÍSÍ. Keppt var í 20
íþróttagreinum.
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir sigraði í
hástökki kvenna, stökk 1,64m. Jóhann Björn Sigurbjörnsson varð í 3.
sæti í 60m hlaupi karla, hljóp á 7,01sek. Ragna Vigdís Vésteinsdóttir
varð í 4. sæti í hástökkinu með 1,58m (pm). Ísak Óli Traustason varð
í 4. sæti í 60m grindahlaupi á 8,85sek. (pm) /BÞ
Frjálsar íþróttir
Þóranna sigraði í hástökki