Feykir - 22.01.2015, Síða 8
Sauðkrækingurinn knái, Halldór
Broddi Þorsteinsson hefur í
vetur æft með 3. flokki norska
fótboltaliðsins Sandnes ULF og
spilað nokkra leiki með liðinu í
landshlutadeild vestur Noregs.
Hann hefur sýnt að hann kann
ýmislegt fyrir sér í varnarleiknum
og hefur núna verið valinn til að
taka þátt í æfingum fylkisliðs Rogalands en í þann hóp
eru valdir bestu leikmenn árgangsins í fylkinu. Fleiri
spennandi verkefni eru framundan í fótboltanum hjá
Halldóri Brodda, þar sem Sandnes ULF tekur þátt í nýrri
úrvalsdeild þriðjaflokksliða þar sem sterkustu lið Noregs
í árganginum munu mætast. /ÞB
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
3
TBL
22. janúar 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Ásdís Aþena og Hrafnhildur
Kristín sigurvegarar
Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra
Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings
vestra fór fram í Félagsheimilinu
Hvammstanga sl. föstudagskvöld. Keppninni
var skipt í tvo aldursflokka, yngri og eldri,
í yngri flokki fagnaði Ásdís Aþena
Magnúsdóttir sigri og Hrafnhildur Kristín
Jóhannsdóttir í þeim eldri.
Í yngri flokk voru sex atriði en fjögur atriði í þeim
eldri. Sigurvegarinn Ásdís Aþena Magnúsdóttir flutti
lagið „Laugardagur“ (korter yfir sex) eftir Braga
Valdimar Skúlason. Í 2. sæti varð Guðmundur Grétar
Magnússon en hann söng „Gefðu allt sem þú átt“, með
Jóni Jónssyni. Það var svo Axel Nói Thorlacius sem
söng „Lagið um það sem er bannað“ og náði 3. sæti.
Hrafnhildur Kristín Jóhannsdóttir, sigurvegari í
eldri flokki, flutti íslenska útgáfu af laginu „The Story“
með Brandy Carlile. Í 2. sæti varð Dagný Guðmunds-
dóttir en hún söng lagið „Elín“ sem er á plötunni
Fólkið í blokkinni. Þriðja sætinu náðu svo Ísak Líndal
og Viktor Ingi Jónsson, en þeir tóku lagið „Best Song
Ever“ með One Direction, með frumsömdum íslensk-
um texta.
Myndir eru fengnar frá Norðanátt.is en fleiri
myndir frá keppninni má finna á vefnum. /BÞ
Kallaður á æfingar fylkisliðs Rogalands
Halldór Broddi í stuði
Halldór Broddi.
...hvað er svo glatt sem góðra
vina fundur!
FÖGNUM ÞORRA
Þorrahlaðborð
í KS Varmahlíð
alla helgina
23., 24. og 25.janúar
VARMAHLÍÐ ...verið velkomin
ÞORRI HEFST Á BÓNDADEGI NK. FÖSTUDAG