Feykir - 01.04.2015, Síða 1
á
BLS. 4-5
BLS. 3
Anna María Oddsdóttir er
áskorendapenninn
Á endanum
snýst þetta allt
um kaloríur
BLS. 6
Óskar Pétursson frá
Álftagerði er í opnuviðtali
Feykis
Gæti ekki án
söngsins verið
Fredrica Fagerlund er í
knapakynningunni
Komst í B-úrslit
í fimmganginum
13
TBL
1. apríl 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
„Með tilkomu þessa töfrateppis
aukum við fjölbreytnina í fjallinu og
getur fólk sem ekki á gott með að
fara í lyftu notað það,“ sagði Viggó
Jónsson frkv.stj. Skíðadeildar
Tindastóls en töfrateppið reyndist
mjög vel þegar það var tekið ó
notkun í fyrsta sinn um helgina.
Einungis þrjú skíðasvæði á landinu
státa af slíku teppi, í Bláfjöllum og
Hlíðarfjalli, og ríkir mikil ánægja með
þessa nýjung. Yfir páskahátíðina
flykkjast landsmenn á skíði en
skemmtileg dagskrá verður í Tindastóli
fyrir hátíðirnar með Crazy Roller,
sleðabrautir og göngubrautir, bæði
fyrir lengra komna og byrjendur.
Bakarísmótið verður haldið á föstu-
daginn og geta allir keppt í því, t.d. geta
fullorðnir þá keppt á móti krökkunum
sínum.
„Síðan verður hægt að renna sér frá
toppi skíðasvæðisins alveg niður á veg,
ef fólk vill klára daginn þannig að
einhver bíður þar með bílinn. Um að
gera að koma upp í fjall og hafa gaman
að,“ sagði Viggó að lokum. /BÞ
Ánægja með nýtt töfrateppi
Mikið um að vera á Skíðasvæði Tindastóls um páskana
Fermingargjafir
Græjubúð Tengils er
stútfull af frábærum
fermingartilboðum
Frá undirritun samnings á Hólum síðastliðinn föstudag. MYND: KSE
SÖLUSTJÓRI
NORÐURLANDI VESTRA
Þröstur I. Jónsson hefur hafið störf hjá
BYKO sem sölustjóri og þjónustar
alla íbúa frá Skagafirði til Hólmavíkur.
Þröstur verður staðsettur á Sauðárkróki en
mun vinna út frá verslun okkar á Akureyri.
Sími: 821 4059 • tj@byko.is
Hátíðleg athöfn á Hólum
Samningur um LM 2016 undirritaður
Á föstudaginn var undirritaður
samningur milli Landssambands
hestamanna, Gullhyls ehf., og
Sveitarfélagins Skagafjarðar um
Landsmót hestamanna á Hólum
2016. Fjölmenni var við athöfnina
sem var afar hátíðleg. Hestamenn
riðu fánareið að Þráarhöllinni, þar
sem undirskriftin fór fram og stóðu
heiðursvörð og Karlakórinn Heimir
söng nokkur lög. Lárus Á. Hannesson,
formaður LH, stýrði athöfninni.
Lárus sagði í samtali við blaðamann
Feykis eftir athöfnina að kostnaður við
framkvæmdir vegna mótsins væri
áætlaður 113 milljónir og þar af væri
búið að fjármagna 50 milljónir. Leitað
hefði verið til sveitarfélaganna, fyrirtækja
á svæðinu og annarra velunnara um
fjármögnun. „Það er vonandi að nú stilli
Skagfirðingar og Norðlendingar allir
saman strengi sína um að gera þetta
landsmót sem best úr garði.“
Lárus sagðist bjartsýnn á að fram-
kvæmdir næðust í tæka tíð, enda væru
þær ekki eins miklar og margir ef til vill
héldu. Hann sagði fyrsta mál að útbúa
manir fyrir áhorfendur og þökuleggja
þær og eins þyrfti að huga að tjaldsvæðum
og keppnisvöllum. Til stendur að beina
umferðinni í hring um dalinn, auk þess
skipulagðar verða strætóferðir til að létta
umferð á mótssvæðinu sjálfu.
„Hólar bjóða upp á ótrúlega spenn-
andi möguleika. Ég lít á LM sem nokkurs
konar karneval hestamannsins, þar er
ekkert kynslóðabil og það þarf að ríkja
fjölbreyttni, við eigum ekki að binda
okkur við einn mótsstað á landinu. Þetta
svæði hér á Hólum bíður upp á spennandi
möguleika, hér er mekka hestamennsk-
unnar og hér liggja ræturnar,“ sagði
Lárus að lokum. /KSE
GLEÐILEGA PÁSKA