Feykir - 01.04.2015, Qupperneq 2
2 13/2015
Þegar rætt er við fólk sem flust hefur héraða og landhorna á
milli vaknar oft sú spurning hvaðan menn séu eða hvers
„firska“ eða „dælska“ þeir skilgreina sig eftir mismunandi langa
búsetu á tilteknum stað. Sjálf á ég oft í tilvistarkreppu með
þetta, hafandi búið álíka lengi á
Ströndum og á æskustöðvuðum
og þar á eftir dvalið hlutfallslega
lengst í Skagafirði.
Það fór hins vegar ekki á milli
mála þegar rætt var við Óskar
Pétursson frá Álftagerði að þar
var á ferð Skagfirðingur með
stóru essi eða eins og segir í
kvæðinu og í ævisögutitli
Andrésar H. Valberg, „Skagfirð-
ingur skýr og hreinn.“ Í mínum
huga er Óskar hinn dæmigerði
Skagfirðingur, lífsglaður söngmaður sem tekur hvorki sjálfan
sig né lífið of alvarlega og húmorinn er aldrei langt undan.
Vonandi táknrænt fyrir það að nú sé komin á sátt um Lands-
mótsstað og allir leggist á eitt um glæsilegt mót. Þetta tvennt,
söngurinn og hestamennskan, sameinaðist við hátíðlega athöfn
á Hólum, þar sem samningur um LM 2016 var undirritaður sl.
föstudag. Hestamenn stóðu heiðursvörð meðan samstarfsaðilar
kvittuðu undir, við söng Karlakórsins Heimis. Hvað er nú
skagfirskara en það?
Það er ósjaldan jafn mikið um að vera og á þessum árstíma.
Tónleikar, árshátíðir, hestamannamót, leiksýningar og svo
mætti lengi telja. Hvort sem farið er um Húnavatnssýslur eða
Skagafjörð er menningarlífið í blóma, sem og vonandi náttúran
sjálf. Eftir erfiðan vetur er fátt betra en að lyfta sér aðeins upp
og bregða sér á mannamót.
Ekki veit ég hvort það er sérstaklega praktískt að vera svona
allra héraða kvikindi eins og ég gæti kannski sem best skilgreint
mig, hafandi ekki náð tveimur áratugum í sama héraði. Það
væri nú kannski helst að það gæti gagnast ef maður færi í
framboð, að geta tengt sig við sem flest byggðarlög í kjör-
dæminu! En þar sem það stendur engan veginn til ætla ég bara
að einbeita mér að núinu og reyna að standa undir því að vera
Skagfirðingur skýr og hreinn – jafnvel skáld og listamaður.
Gleðilega páska!
Kristín S. Einarsdóttir, blaðamaður.
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Skagfirðingur skýr og hreinn Heilbrigðiseftirlitið
fundar með vatnsveitum
Norðurland vestra
Heilbrigðiseftirlitið stóð fyrir
fundi meðal umsjónarmanna
vatnsveitna á Norðurlandi
vestra þann 23. mars sl., þar
sem umfjöllunarefnið var
innra eftirlit vatnsveitna.
Á vef Heilbrigðiseftirlitsins
segir að krafa um innra eftirlit
komi ekki einungis úr opinberu
regluverki heldur einnig frá mat-
vælaframleiðendum sem þurfa
að gera kaupendum skilmerki-
lega grein fyrir að neysluvatn og
starfsemi vatnsveitu uppfylli alla
gæðastaðla.
Markmið fundarins var ekki
einungis að heilbrigðisfulltrúar
kæmu upplýsingum á framfæri
en þau Sigríður Hjaltadóttir og
Sigurjón Þórðarson voru með
stutta kynningu, heldur ekki síður
að tæknimenn sveitarfélaganna
gætu borið saman bækur sínar.
„Tæknimenn fámennra sveitar-
félaga hafa í mörg horn að líta og
þurfa sinna margvíslegum verk-
efnum og því mikilvægt að þróa
einfalt og skilvirkt verklag sem
tryggir öryggi neysluvatnsins,“
segir á vefnum. /BÞ
Gönguleiðir
bættar og bekkj-
um fjölgað
Skagaströnd
Bæjarmálafélagið á
Skagaströnd hefur sent
sveitarstjórn Skaga-
strandar bréf þar sem
kynntur er áhugi, sem fram
hafi komið á fundum
Bæjarmálafélagsins, um
að gönguleiðir verði bættar
og komið verði fyrir
bekkjum meðfram þeim.
Bréfið var lagt til kynningar
á fundi sveitarstjórnar
þann 27. mars sl.
Með bréfinu var tillaga og
greinargerð um markvisst
skipulag útivistarsvæða í
sveitarfélaginu en sérstaklega
er hvatt til að bekkjum verði
fjölgað við fjölförnustu
gönguleiðir. Erindi Bæjar-
málafélagsins var rætt á
fundinum og var sveitarstjóra
falið að vinna áfram með
málið og koma upp tveimur
bekkjum við gönguleiðir. /BÞ
Dagana 22. - 28. mars var 207 tonnum landað á Skagaströnd, tæpum þremur tonnum á
Hvammstanga, rúmum sjö tonnum á Hofsósi og 222 tonnum á Sauðárkróki. Alls gera þetta
um ríflega 440 tonn á Norðurlandi vestra.
Að sögn Gunnars Steingrímssonar hafnarvarðar hjá Skagafjarðarhöfnun er grásleppuveiði hafin
og eru þrír bátar byrjaðir á Hofsósi sem og á Sauðárkróki. „Veiðin fer vel af stað, en í dag er bræla
svo ekki verður vitjað um. Skárra veðri er spáð er líður á vikuna,“ sagði Gunnar í samtali við Feyki
á mánudaginn. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Gammur SK 12 Grásleppunet 3.980
Klakkur SK 5 Botnvarpa 114.889
Málmey SK 1 Botnvarpa 185.822
Már SK 90 Rauðmaganet 1.300
Nona SK 141 Grásleppunet 784
Röst SK 17 Rækjuvarpa 8.928
Steini G. SK 14 Grásleppunet 6.695
Alls á Sauðárkróki 322.398
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landb.lína 2.317
Auður SH 94 Grásleppunet 232
Bergur Sterki HU 17 Grásleppunet 8.821
Dröfn RE 35 Rækjuvarpa 6.491
Fjölnir GK 657 Lína 80.738
Hafrún HU 121 Dragnót 2.192
Ólafur Magnús. HU54 Handfæri 2.448
Sandvík EA 200 Dragnót 10.660
Sæbjörg EA 184 Þorskanet 45.643
Þorleifur EA 88 Þorskanet 48.395
Alls á Skagaströnd 207.937
HOFSÓS
Geisli SK 66 Línutrekt 2.497
Skáley SK 32 Grásleppunet 13.602
Sæborg EA 125 Grásleppunet 6.156
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 10.560
Alls á Hofsósi 32.815
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 2.858
Alls á Hvammstanga 2.858
Aflatölur 22.-28. mars
Grásleppuvertíðin hafin
Næsta blað
16. apríl
Feykir í páskafrí
Vegna komandi páska-
hátíðar kemur enginn
Feykir út í næstu viku,
heldur verður næsta blað
þann 16. apríl nk.
Við minnum á Feyki.is á
vefnum. Gleðilega hátíð! /BÞ
Hættulegar sprungur
í Ketubjörgum
Lögreglan á Norðurlandi vestra sendir út aðvörun
Lögreglan varar við miklum
sprungum sem myndast hafa
í Ketubjörgum í Syðri-
Bjargavík á Skaga. Lögreglan
hefur girt svæðið af og er
allur aðgangur bannaður af
öryggisástæðum. Málið var til
umfjöllunar í byggðaráði
Skagafjarðar sl. fimmtudag
en þarna er vinsæll útsýnis-
staður ferðamanna yfir
björgin og út á Skagafjörðinn.
Stefán Vagn Stefánsson,
yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki
og formaður byggðaráðs, segir í
samtali við Morgunblaðið sl
laugardag að sprungan sé sérstök
að því leyti að hún gangi þvert á
landslagið á löngum kafla, ekki
bara í einu bjargi þó að hún sé
mest áberandi þar. Þar sé bjargið
í raun orðið laust frá klettunum
og geti fallið í sjó fram á hverri
stundu. Lausa bjargið er um átta
metrar á breidd efst og 50-60
metra hátt.
Málið er til skoðunar, í sam-
ráði við jarðvísindamenn, hvað
beri að gera í framhaldinu til að
koma í veg fyrir slys. Til greina
kemur að sprengja lausa bjargið
frá en það sé með öllu óákveðið á
þessu stigi, að sögn Stefáns Vagns,
fara þurfi varlega þar sem um
viðkvæmar náttúruminjar sé að
ræða en mikil hætta er á hruni
þegar frost fer úr jörðu. /BÞ
Leit að myndum
Sölvi Sveinsson skrifar
Í haust ætla ég að gefa út bók
sem heitir Dagar handan við
dægrin. Minningabrot í
skuggsjá tímans, um það bil
300 bls. bók. Þetta eru, eins
og nafnið bendir til, minninga-
brot frá uppvaxtarárum mínum
á Króknum.
Sumt af þessu hef ég gefið út
áður og sent vinum og kunn-
ingjum fyrir jólin, en þarna er
líka ýmislegt breytt og sumt nýtt
af nálinni. En mig vantar myndir
frá Króknum frá árunum 1956-
65, bæði af fólki, stöðum og
viðburðum.
Þeir sem vildu leggja mér lið
og kannski lána myndir eru
beðnir að hafa samband í
netfanginu solvi@verslo.is.