Feykir - 01.04.2015, Síða 5
13/2015 5
af okkur og er búinn að yrkja
mikið um okkur. Þetta er ekki
allt saman kirkjuhæft, en það
má láta það fara þarna.“ Í lok
maí ætla Óskar og Kristján
Jóhannsson að ýta tenórnum
Árna Geir Sigurbjörnssyni frá
Sauðárkróki „úr hreiðrinu“ með
nokkrum tónleikum, meðal
annars í Miðgarði.
Í Hörpu leikur hljómsveit
undir stjórn Gunnars Þórð-
arsonar með Álftagerðisbræðr-
um, sem og Skagfirðingurinn
Stefán Gíslason. „Stebbi er
búinn að fylgja okkur alla tíð,
ætli hann fylgi okkur ekki út
yfir gröf og dauða. Hann er
afskaplega traustur maður og
hefur reynst okkur vel. Ef hann
segði skilið við okkur myndi
fyrirbærið Álftagerðisbræður
fjara út á augabragði, hann er
límið okkar.“ Ásamt því að sjá
um undirleik útsetur Stefán
fyrir þá bræður. „Það er ekkert
allra að vera með svona menn.
Við erum þannig raddlega settir
að menn þurfa að þekkja okkur
afskaplega vel til að geta útsett
upp í okkur,“ útskýrir Óskar.
Bræðurnir syngja allir tenór,
en eru misjafnlega háir eins og
Óskar kemst að orði. „En þessi
akkilesarhæll okkar er sá að við
erum slappir niður. Nema Gísli
getur verið nokkuð góður, tala
nú ekki um ef hann hefur fengið
sér duglega kvöldið áður, þá nær
hann drjúgt niður. Þannig að
við höldum nú frekar að honum
víni einum til tveimur dögum
fyrir tónleika svo hann dýpki, þá
er hann ansi liðtækur bassi.“
Menningarvitar
og hálfvitar
Tónleikar þar sem Óskar kemur
fram eru ævinlega kryddaðir
með gamanmáli og hefur hann
verið fenginn sem veislustjóri
eða kynnir á ýmsum viðburðum.
„Þetta hefur bara þróast. Ég
álít, án þess að fullyrða það,
að við bræður höfum byrjað á
því að vera með svona léttleika
og glannaskap í orðum á milli
laga á tónleikum og síðan hafi
aðrir tekið þann sið upp. En það
hefur einhvern veginn ekki hæft
okkur að vera of alvarlegir. Þegar
við erum komnir á vígvöllinn þá
er svo gaman, að sjá öll andlitin
brosandi og jafnvel veltast um af
hlátri.“
Þarna rifjar Óskar upp sög-
una af því þegar þeir bræður
sungu í Grindavíkurkirkju en
Tjarnarkvartettinn hafði sungið
þar skömmu áður og var kirkju-
vörðurinn að velta fyrir sér hvort
það væri einhver munur á svona
kvartettum. „Pétur svaraði því
að það væri reginmunur, þeir
væru menningarvitar en við
værum hálfvitar!“
Undirbúningur er oft á tíðum
lítill fyrir tónleika, hvort sem er
hjá bræðrunum eða á öðrum
tónleikum sem Óskar tekur þátt.
„Við fáum okkur bara í nefið og
segjum sögur, það er upphitunin.
Fyrir tónleikana í Hofi útsetur
Gunnar allt, sendir nótur á
mannskapinn og mætir daginn
áður, það er byrjað að æfa eftir
hádegi á föstudegi, hætt að æfa
Gunnar Þórðarson og Óskar hafa starfað mikið saman í gegnum tíðina.
MYND: ÚR EINKASAFNI
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Tinna Mjöll Karlsdóttir.
ÁRGANGUR: 1982 .
FJÖLSKYLDUHAGIR: Á móður, föður, systur, máf (já, það er skrifað
svona), systurdóttur, sambýling og naggrís.
BÚSETA: Hinn nafli alheimsins, Breiðholt.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Dóttir Dísu í Skaffó og
Kalla á Kaupfélagsskrifstofunni. Ólst upp í Barmahlíðinni [á
Króknum].
STARF / NÁM: Meistaranemi í kynjafræði.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Vinna í mastersritgerðinni og skila henni
inn í desember 2015.
Hvernig nemandi varstu? -Ég var
og er alveg hreint frábær nemandi.
Held ég.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? -Gríðarleg
einbeiting að detta ekki í hvíta
kuflinum.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? -Bóndi. Sá draumur varð
að engu þegar ég áttaði mig á því að
mér fannst fjósalykt vond. Svo hefur
forsetaembættið freistað. Útiloka
ekkert í þeim efnum.
Hvað hræðistu mest? -Umferðar-
dólga.
Besti ilmurinn? -Af nýjum bókum.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? -Jiiii… vil ég rifja
það upp? Örugglega hef ég verið
að hlusta á GusGus og Todmobile…
Britney Spears, Weezer og Skímó
koma líka upp í hugann.
Hvaða lag er líklegast að þú takir í
Kareókí? -Gin and Juice með Snoop
Dog. Mikil stemming í því.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? -Útsvari. Er dyggur
stuðningsmaður team Skagafjarðar
og býð mig hér með fram sem
liðsmann. Ekki sem símavin samt,
týni símanum of oft til þess að
að hægt sé að stóla á mig í því
hlutverki.
Besta bíómyndin? -Trainspotting.
Allt við þessa mynd er gjörsamlega
frábært.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? -Sollu systur
minni og ævintýrum hennar í 10
km hlaupi í Reykjavíkurmaraþoni
og að sjálfsögðu honum Helga
Frey, að mínu mati - lykilmanni í
körfuboltaliði Tindastóls.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? -Sofa.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu? -Tófúpottréttur. Snilldin
fólst í því að þrátt fyrir allskonar
krydd, jurtir og grænmeti var hann
samt eins og svampur á bragðið.
Tinna Mjöll
Hættulegasta helgarnammið?
-Armani prosecco freyðivín.
Hvernig er eggið best? -Í brauð-
tertum. Ef einhver heldur öðru fram
þá hefur viðkomandi rangt fyrir sér.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? -Reyni að sýna sjálfri
mér umburðarlyndi en mætti vera
stundvísari á köflum.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? -Stundvísi. Ég kem
alltaf verr út í samanburðinum.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitn-
un? -Góðir hlutir gerast hægt.
Mottóið mitt í ritgerðarskrifum og
strætóferðum.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? -Af litlu systur minni að reyna
að ala mig upp. Hún hefur ekki hætt
síðan!
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín? -Peter Griffin í Family
Guy.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? -Er ansi sátt í
eigin skinni en ef ég þyrfti að velja
einhvern þá væri það tvímælalaust
Elísabet Englandsdrottning. Hún veit
of mikið af leyndarmálum sem mig
langar að komast yfir og á fullt af
flottum veskjum og kórónum.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? -Ásta Sigurðar-
dóttir og Svava Jakobsdóttir eru
án nokkurs vafa uppáhalds rithöf-
undarnir mínir. Get ekki valið á milli
verka þeirra.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? -„Afsakið hvað ég er sein.“
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? -Ég
á erfitt með að ákveða mig þannig
að ég vil tileinka þennan titil öllum
einstaklingum og minnihlutahópum
sem hafa brotist undan kúgun,
barist fyrir tilvistarrétti og hlotið
viðurkenningu, innlendis og erlendis.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu? -Myndi fara aftur til
Hallgerðar og Gunnars þegar hún
neitaði honum um hárlokk. Gefa
henni high five og fara sátt til baka.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
-Ævintýri Tinnu á Bessastöðum.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
...á Svalbarða. Þekki engan sem
hefur farið þangað og er búin að bíta
það í mig að þar sé paradís á jörðu.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? -Sæng, kodda og rúm.
Restinni verður reddað á staðnum.
uppúr hádegi á laugardegi og svo
tvennir tónleikar.“
Óskar er ennþá mikill
Skagfirðingur, en segir að þrátt
fyrir það hafi sér alltaf liðið
vel á Akureyri, en þurfi hann
að segja einhver deili á sér sé
hann Skagfirðingur. „Það er
lýsandi dæmi um það þegar ég
var að horfa á Akureyringa og
Skagfirðinga keppa í Útsvari
um daginn. Ég vissi nú ekki í
hvorn fótinn ég átti að stíga. En
ég var helvíti drjúgur þegar þetta
var búið, ég verð að koma út úr
skápnum með það!“
Óskar á erfitt með að gera
upp á milli þeirra sem hann
hefur komið fram með í gegnum
tíðina en nefnir þó að það sé
ótrúlega gaman að koma fram
með Ragga Bjarna og Diddú.
Einnig sé Valgeir Guðjónsson
minnisstæður. Það sé líka
skemmtileg minning að hafa
staðið á sviði við hliðina á Stefáni
Íslandi. „Þegar ég söng fyrst með
Kristjáni Jóhannssyni fannst mér
eins og ég gæti farið að pakka
saman, nú væri ég búinn að ná
öllu sem ég ætlaði mér. En ég
hef náttúrulega ekki sungið með
Björk og Leoncie. Eigum við ekki
að enda á því að þessar tvær séu í
sigtinu hjá mér?“
Óskar sofandi hjá Hjálmu, þar sést glöggt hversvegna hann varð ekki bóndi. -Þarna
ungur fannst þú frið / til framtíðar þó ekki verði / hlýjan upp við kúrðir kvið
/ kýrinnar í Álftagerði. MYND: ÓLAFUR PÉTURSSON