Feykir - 01.04.2015, Page 7
13/2015 7
Hveiti, sykur, salt, kanill og lyfti-
duft, hrært saman. Vanillu-
dropum, mjólk, smjöri, eggjum
bætt við og hrært meira. Eplin
flysjuð og skorin í skífur.
Smyrjið eldfast mót með
smjöri, setjið eplaskífurnar í
botninn og hellið helminginn af
deiginu yfir. Setjið svo restina af
eplaskífunum yfir deigið (en
geymið nokkrar til þess að setja
ofan á í restina)
Hellið restinni af deiginu yfir
og raðið restinni af eplaskífunum
ofan á snyrtilega. Bakið í ofni við
180°C í 35-40 mínútur.
Verði ykkur að góðu!
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
getur einbeitt sér að því að halda gleðilega páska.
Spakmæli vikunnar
Það er ekki endilega slæmt þó aðrir séu á annarri skoðun en þú.
- Maj Munk
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... ljós skegg vaxa hraðar en dökk?
... í mannslíkamanum eru 96 kílómetrar af æðum?
... hver fertomma af mannshúð inniheldur u.þ.b. 625 svitakirtla?
... pappírspeningar voru fyrst notaðir í Kína?
... bein hverrar dúfu vega minna en fjarðrir hennar?
... flamingó-fuglar geta aðeins borðað þegar höfuðið er á hvolfi?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
Jón var á leiðinni heim frá Þýskalandi til Íslands í páskafrí frá námi.
Við innritun segir hann: „Væruð þið til í að senda stóru ferðatöskuna
mína til New York og þá litlu til London?“ –„Því miður,“ segir stúlkan í
afgreiðslunni, „við getum það ekki…“ „Í alvöru? Mikið er ég feginn að
heyra það. Það er nefnilega það sem þið gerðuð um jólin!"
Krossgáta
GEIRMUNDUR VALTÝSSON
Menntaskóli:
-Gagnfræðiskóli Sauðárkróks.
Hvað borðar þú mörg páskaegg
um páskana?
-Alla vega eitt. Segjum það!
Ferðu í aðhald eftir páskana?
-Alltaf í aðhaldi.
Hvað er eftirminnilegast
frá fermingardeginum?
-Þegar ég spilaði á harmonikkuna í
bakgarðinum á Geirmundarstöðum.
ÁSTA BJÖRG
PÁLMADÓTTIR
Menntaskóli:
-Fyrstu tvö árin í MA og kláraði í MR.
Hvað borðar þú mörg páskaegg
um páskana?
-Ég stefni á ekkert páskaegg.
Ferðu í aðhald eftir páskana?
-Já, pottþétt.
Hvað er eftirminnilegast
frá fermingardeginum?
-Úrið frá ömmu og afa.
Ljúffengar tortillur
og frönsk eplakaka
AÐALRÉTTUR
Ljúffengar tortillur
250 gr rjómaostur
½ bolli mild salsasósa
½ lime, kreist yfir
1 stk cumin
1 stk oregano
2 stk chiliduft
1 stk laukduft
salt og pipar
2 lítil hvítlauksrif
dass af kóríander, rifnum
½ rauðlaukur, saxaður
2 bollar ostur, rifinn
1 pakki tortillur
3 kjúklingabringur, fulleldaðar
og smátt skornar
Aðferð: Blandið saman rjóma-
osti, kryddum, lauk, hvítlauk,
limesafanum, salsasósu, ostin-
um, kóríander og kjúklingnum.
Hitið tortillurnar á pönnu, setjið
fyllinguna í tortillurnar og rúllið
upp, gott er að pensla þær með
matarolíu. Bakið á 200°C í 10-15
mínútur, eða þangað til þær
verða stökkar og góðar.
EFTIRRÉTTUR
Frönsk eplakaka
1 ½ bolli hveiti
1 bolli sykur
½ tsk salt
½ tsk kanill
1 tsk vanilludropar
2 tsk lyftiduft
1 bolli mjólk
1 bolli brætt smjör
4 egg
6 græn epli
Aðferð: Öll þurrefni sett í skál:
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Við erum ekki beint stórtæk í
eldhúsinu en við grípum
stundum í uppskriftir sem eru
annaðhvort á netinu eða í bókinni „Læknirinn í eldhúsinu“
sem við fengum að sérstakri gjöf frá Sigurði Ólafssyni,
húnvetnskum óðalsbónda í Kjós, hér eru tvær sem eru í
sérstöku uppáhaldi hjá okkur,“ segja Jóhann Sigurjón
Jakobsson eða Bergþóra Sveinbjörnsdóttir á Blönduósi.
„Við skorum á ný-brottfluttu Blönduósingana Jón Guðmann
Jakobsson og Höllu Gísladóttir að koma með sínar uppskriftir í næsta
blaði.“
Feykir spyr...
FNV NEMAR SPYRJA Á
OPNU DÖGUM
Nokkrar
spurningar...
Jóhann og Bergþóra eru matgæðingar vikunnar
Jóhann og Bergþóra bjóða upp ljúffengar tortillur og franska eplaköku.
MYND: ÚR EINKASAFNI
JÓEL KRISTJÁNSSON
Menntaskóli:
-Núpur í Dýrafirði, síðan
Menntaskólinn á Akureyri.
Hvað borðar þú mörg páskaegg um
páskana?
-Þrjú númer 1 alla vega.
Ferðu í aðhald eftir páskana?
-Aðhald allt árið.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum?
-Úrið frá mömmu og pabba.
Umsjón:
Birna, Pálmi og Guðrún.