Feykir - 01.04.2015, Qupperneq 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
13
TBL
1. apríl 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Fjölbreytt starf sem veitir ánægju
STARFIÐ MITT > Ari Jóhann Sigurðsson forstöðumaður á meðferðarheimilinu Háholti
Ari Jóhann Sigurðsson er
forstöðumaður á
meðferðarheimilinu Háholti í
Skagafirði, sem er eitt þriggja
meðferðarheimila rekin af
Barnaverndarstofu. Ari
Jóhann er með B.Ed gráðu í
grunnskólafræðum.
Getur þú lýst nánar í hverju starfið
þitt felst? -Starf mitt sem forstöðu-
maður á Meðferðarheimilinu Há-
holti er fjölbreytt. Fyrst og fremst
tengist það rekstrarlegum þáttum
auk skipulagsvinnu. Þá fer drjúgur
tími í vinnu með nemendum og
setja upp meðferðaráætlanir í
samvinnu við aðra starfsmenn á
heimilinu.
Af hverju valdir þú þessa
atvinnu? -Hef starfað að með-
UMSJÓN
Þóra Kristín Þórarinsdóttir
Ari Jóhann forstöðumaður.
MYND: ÚR EINKASAFNI
ferðarmálum unglinga meira og
minna sl. 22 ár. Man varla hvernig
þetta kom til.
Hvað er það besta við vinnuna
þína? -Fjölbreytt starf sem veitir
ánægju þegar vel gengur og vel
tekst til.
Er eitthvað sem er erfitt? -Nei,
áskoranir eru til að takast á við
þær.
Finnst þér þau laun sem þú færð
vera sanngjörn fyrir þessa
vinnu? -Já og nei.
Myndir þú mæla með þessari
atvinnu við aðra? -Já, því ekki
það.
Viltu segja eitthvað að lokum?
-Heiðarleiki, virðing og nærgætni
í samskiptum við aðra eru eink-
unnarorð sem allir ættu að
tileinka sér.
Sérfræðikomur í apríl
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Haraldur Hauksson
alm/æðaskurðlæknir, 13. og 14. apríl
Orri Ingþórsson
kvensjúkdómalæknir, 17. apríl
Sigurður Albertsson
skurðlæknir, 27. og 28. apríl
Tímapantanir í síma 455 4022
www.hskrokur.is
Skagafjörður
– skemmtileg
ur í páskafrí
inu!
www.visitskagafjordur.is
Upplýsingamiðstöð ferðamála á Norðurlandi vestra
Varmahlíð :: & 455 6161 :: info@visitskagafjordur.is
SUNDLAUG SAUÐÁRKRÓKS
Skírdag > frá 10:00 - 17:30
Föstudaginn langa > frá 10:00 - 17:30
Laugardag > frá 10:00 - 17:30
Páskadag > frá 10:00 - 17:30
Annan í páskum > frá 10:00 - 17:30
SUNDLAUG Á HOFSÓSI
Skírdag > frá 12:00 - 17:30
Föstudaginn langa > frá 12:00 - 17:30
Laugardag > frá 12:00 - 17:30
Páskadag > frá 12:00 - 17:30
Annan í páskum > frá 12:00 - 17:30
Opið á skíðasvæðinu í Tindastóli
FRÁ KL. 10 - 16 UM PÁSKANA, DAGANA 2.–5. APRÍL
Crazy roller, nýtt töfrateppi,
skíðað út í buskann og stanslaust stuð.
Nánari dagskrá er að finna á tindastoll.is/skidi
SUNDLAUGIN Í VARMAHLÍÐ
Skírdag > frá 10:00 - 16:00
Föstudaginn langa > LOKAÐ
Laugardag > frá 10:00 - 16:00
Páskadag > LOKAÐ
Annan í páskum > frá 10:00 - 16:00
Opið í sundlaugunum
í Skagafirði yfir páskahelgina
Góða skemmtun!
n
ýp
re
n
t
0
3/
20
15
Heilbrigðisfulltrúa
ekki tilkynnt
um niðurskurð
Förgun vegna riðutilfellis á Neðra-Vatnshorni
Föstudaginn 13. mars
var skorið niður fé á
Neðra-Vatnshorni í
Vestur-Húnavatnssýslu
vegna riðutilfellis sem
þar greindist. Málið var
tekið til umfjöllunar á
863. fundi byggðarráðs
Húnaþings vestra þann
16. mars.
Í fundargerð kemur
fram að heilbrigðisfulltrúi
Norðurlands vestra hafi
ekki verið tilkynnt um
niðurskurðinn fyrirfram
þrátt fyrir að honum beri
að gefa út leyfi fyrir
flutningi á smituðum
úrgangi.
Byggðaráð átelur að
Matvælastofnun hafi ekki
tilkynnt sveitarstjóra um
fyrirhugaða förgun.
Í bókun fundargerðar
lýsir byggðaráð jafnframt
ánægju með að MAST
hafi tekið ákvörðun um
brennslu og að förgun
gripanna skyldi fram-
kvæmd á staðnum. /BÞ