Feykir - 13.08.2015, Side 10
10 30/2015
Króksmót Tindastóls og FISK Seafood, sem
ætlað er fótboltastrákum í 5., 6. og 7. flokki, fór
fram á Sauðárkróksvelli um helgina.
Stemningin var hin besta og mótið fjölmennt
í ár en 106 lið voru skráð til leiks og þátttakendur
um 800 talsins. Blautt var en stillt framan af
morgni á laugardegi en uppúr hádegi, þegar
ljósmyndari Feykis hætti sér út úr húsi, lét sú
gamla gula ljós sitt skína og yljaði leikmönnum
og foreldrum sem hvöttu sína menn óspart
áfram. Fótbolta- og bankamaðurinn Jón Jónsson
skemmti á kvöldvöku og mátti heyra gleðihróp
og söng um allan bæ frá vallarsvæðinu.
Boltinn hélt áfram að rúlla á sunnudegi og var
veðrið síðra þann daginn; rigning, þoka og færri
hitastig en daginn áður. Vindurinn var hinsvegar
í lágmarki og því fínt að spila fótbolta eins og
enginn væri morgundagurinn. /ÓAB
Króksmót Tindastóls og FISK Seafood
Kátir krakkar á Króksmóti
Þessir kappar úr Aftureldingu voru búnir að æfa fjölmörg fögn í tilefni af Króksmóti.
Við óskum íbúum
skagastrandar
til hamingju með SKAGGANN 2015
Hvammstangabraut 5 Hvammstanga Sími 455 2400 www.hunathing.is
Hnjúkabyggð 33 Blönduósi Sími 455 4700 www.blonduos.is
Skagfirðingabraut 17-21 550 Sauðárkróki Sími 455 6000 www.skagafjordur.is
BLÖNDUÓSBÆR
Höfða 545 Skagaströnd
Sími 410 4000
www.landsbankinn.is
Feykir.is
Borgarflöt 1 550 Sauðárkróki Sími 455 7176 www.feykir.is
Einbúastíg 2 545 Skagaströnd www.ssnv.is Sími 452 2901
ATVINNUÞRÓUN
SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á NORÐURLANDI VESTRA
Hólanesvegi 11
545 Skagaströnd
Sími 553 5550
Opnun yfir Skaggann lau. frá 10-18 sun frá 13-17
Almenn umferð
bönnuð um Litla skóg
Íslandsmótið í vallarbogfimi á Sauðárkróki um helgina
Íslandsmótið í Vallarbogfimi
(field) IFAA verður haldið
dagana 14.–16. ágúst. Mótið
verður haldið í Litla skóg og
nágrenni.
Þessi mót eru frábrugðin
ólympískri bogfimi að því leyti
að þarna er skotið á mismunandi
fjarlægðum úr mismunandi
aðstæðum og á mismunandi
skotmörk. 3d dýr, dýra pappírs-
skotmörk og venjulegar skífur,
og því meira krefjandi á skynjun
á umhverfi. Af þeim sökum þá
er öll almenn umferð um Litla
skóg og nágrenni takmörkuð/
bönnuð í samráði við byggðar-
ráð og lögreglu til að tryggja
öryggi almennings og keppenda.
En ef fólk vill verður hægt að
fylgjast með með því að ganga
inn stiginn frá heimavistinni.
Aðrir inngangar verða lokaðir.
Fólk er vinsamlegast beðið að
virða að.