Feykir - 07.01.2016, Side 1
Eins og Feykir hefur fjallað um var
nefnd um sameiningu hestamanna-
félaganna í Skagafirði að störfum
stóran hluta síðasta árs. Ákveðið var
að stofna nýtt hestamannafélag í
Skagafirði við sameiningu félaganna
þriggja sem fyrir voru, Svaða,
Léttfeta og Stíganda.
Þá hefur verið ákveðið að nýtt félag
beri nafnið Skagfirðingur. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá stjórnum
hestamannafélaganna í Skagafirði og
þar segir ennfremur að miklar vonir
séu bundnar við hið nýja félag.
Auglýst var eftir tillögum, kosið
milli nokkurra þeirra og varð nafnið
Fluga fyrir valinu. Síðar var ákveðið að
hafa nafnakosningu á ný og í þeirri
kosningu varð nafnið Skagfirðingur
fyrir valinu. /KSE
Nafnið Skagfirðingur valið
Sameining hestamannafélaganna í Skagafirði
á
BLS. 6–7
BLS. 5
Anna Pálina Þórðardóttir er
Norðvestlendingur ársins
2015
Besta heilræðið að
vera upplitsdjörf
og brosa
BLS. 10
Árið 2015 var um margt
viðburðaríkt á Norðurlandi
vestra
Fréttaannáll
2015 – fyrri hluti
Daníel Þórarinsson er
Garpurinn að þessu sinni
Væri heiður að
taka 100m sprett
við Usain Bolt
01
TBL
7. janúar 2016
36. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Eftir 30 ára hlé gerði fé sig
heimakomið í hinum hrikalegu
Hvanndölum milli Héðinsfjarðar og
Ólafsfjarðar, sem fyrrum voru eitt
einangraðasta byggðarlag landsins.
Um var að ræða 16 kindur úr Fljótum
og hefur fé úr Fljótum aldrei farið
þangað áður svo vitað sé.
Hvanndalir eru umkringdir tæplega
700 metra háum fjöllum á alla kanta,
nema til norðurs en þar tekur Atlantshafið
við. Hvanndalir voru keyptir af Hvann-
eyrarhrepp árið 1896 í þeim eina tilgangi
að leggja byggð þar niður. Lending þar er
mjög erfið, tæplega 20 metra hár bakki og
þarf að styðjast við keðju til að komast
upp. Ekki er hægt að ganga fjöruna nema
fara upp í svokallaðar Hvanndalaskriður
sem eru alls ekki fyrir lofthrædda og
raunar stórhættulegar yfirferðar.
Eina leiðin til að komast í Hvanndali er
að fara sjóleiðina og nutu Fljótamenn
Ekki vitað til að fé úr Fljótum
hafi áður farið í Hvanndali
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
ÚTSALAN HAFIN
10–70% AFSLÁTTUR
Glæsilegt úrval á pier.is
Vertu vinur
okkar á
Facebook
Féð komið um borð í björgunarbát. MYND: HALLDÓR HÁLFDÁNARSON
Fé úr Fljótum sótt í Hvanndali
aðstoðar björgunarsveitarinnar Stráka á
Siglufirði, sem lagði til björgunarskipið
Sigurvin. Ásamt sveitinni komu fjöl-
margir Siglfirðingar og Ólafsfirðingar til
aðstoðar. Sem nærri má geta eru Fljóta-
menn þakklátir öllum sem aðstoðuðu við
smölunina.
Höfðu menn haft áhyggjur af því
hvernig gengi að koma fénu niður í
fjöruna en bakkinn var nánast laus við
svell og gekk það greiðlega. Féð var síðan
selflutt í gúmmíbát frá björgunarsveitinni
Tindi í Ólafsfirði. Um var að ræða sjö ær
ásamt lömbum, alls sextán kindur. /KSE