Feykir - 07.01.2016, Side 4
4 01/2016
„Mínir vinir fara fjöld.“ Þessi orð úr ljóði Bólu
- Hjálmars komu mér í hug, er ég frétti lát
Sigurbergs Austdal Kristjánssonar, bónda á
Bústöðum, sem lést 16. nóvember sl. eftir
fremur stutta legu. Fór útför hans fram frá
Sauðárkrókskirkju 25. nóvember og jarðsetning
í heimagrafreit á Skatastöðum.
Sigurberg á Bústöðum kynntist ég
fljótlega eftir komu mína að Mælifelli
haustið 1983, og hafa því kynni okkar
staðið í rúmlega þrjátíu ár. Sigurberg
var fæddur á Skatastöðum í Austurdal
3. maí 1943, elstur sex barna hjónanna
Kristjáns Guðjónssonar og Sólborgar
Bjarnadóttur, er þar gerðu garðinn
frægan um langt árabil. Á Skatastöðum
sleit Sigurberg barnsskónum við öll algeng bústörf.
Hann kvæntist Sigríði Hugrúnu Björnsdóttur frá
Borgargerði í Norðurárdal, og árið 1964 hófu þau
búskap á Bústöðum, næstu jörð neðan Skatastaða,
og þar stóð heimili þeirra upp frá því. Bústaðir eru
kostajörð og eins og Skatastaðir vel til
fjárbúskapar fallin, og ætíð hefur verið búið þar
rausnarbúi, en jörðin lengst af nokkuð afskipt,
komst í vegsamband laust eftir 1950.
Sigurberg var bóndi af lífi og sál, og efast ég
um, að hann hefði viljað kjósa sér annað
hlutskipti. Hann var fyrirhyggjusamur, enginn
byltingarmaður í búskaparháttum, en sá búi sínu
vel farborða, fjármaður með ágætum, enda jafnan
fjármargur, bjó vel að sínu með tæki og vélakost,
enda vart um annað að ræða, handlaginn og
velvirkur. Jörðina bætti hann bæði af húsakosti og
ræktun, svo nú teygir sig nýtt tún allt niður undir
gil Jökulsárinnar. Þau hjón eignuðust fimm börn:
Kristján Björn, sem lést af slysförum 1986 rétt
innan við fermingaraldur, Sólberg Loga, Steindór
Búa, Mörtu Kristínu og Guðmund Árna, sem öll
hafa reynst dugandi einstaklingar, þar sem þau
hafa haslað sér völl.
Þjóðvegurinn fram í Austurdalinn liggur um
hlaðið á Bústöðum. Margir koma þar við og
gestagangur oft mikill á sumrin, því þeim fer sífellt
fjölgandi, sem leggja leið sína fram í dalinn.
Öllum sem að garði ber, er þar tekið með eðlislegri
gestrisni og hlýju. Oft hef ég komið við á
Bústöðum, þegið þar margar góðgjörðir og átt gott
spjall þar við eldhúsborðið um daginn og veginn.
Oftar en ekki að koma frá hinni árlegu messu í
Ábæjarkirkju, sem ætíð er stór dagur í dalnum, en
til þeirrar kirkju, sóknarkirkju Sigurbergs frá
Skatastöðum, báru þau hjón hlýjan hug, enda
þótt Bústaðir hafi jafnan tilheyrt Goðdalasókn.
Við Sigurberg var ætíð gott að blanda geði.
Hann var greindur maður og athugull, og málefni
samfélagsins voru honum hugleikin, en
meðfædd hógværð í blóð borin. Hann
var góður heimilisfaðir, hugsaði vel um
heimili sitt og fjölskyldu. Það lét hann
ganga fyrir öllu. Börnum sínum ók
hann yfir hálsinn í veg fyrir skólabílinn
dag hvern, þá fært var, oft við hinar
erfiðustu aðstæður, um 8 km leið.
Við leiðarlok leita á hugann minningar
frá liðnum samverustundum bæði í
gleði og í sorg. Mótlætið sneyddi ekki hjá garði
fjölskyldunnar á Bústöðum. En við hlið Sigurbergs
stóð konan hans, hún Sigga, eins og við kölluðum
hana, sem klettur, er mest á reyndi, með sinni
léttu lund og æðruleysi. Samband þeirra
einkenndist af mikilli eindrægni og umhyggju.
Bæði félagslynd að eðlisfari og dugleg að sækja
mannamót og ýmsa viðburði í sveitinni, þrátt fyrir
erfiðar samgöngur oft á tíðum, áhugasöm um
málefni sveitar og samfélags og lögðu góðum
málum lið eftir megni.
Fyrir nokkrum árum, er þrekið var farið að
minnka, hætti Sigurberg búskap að mestu og lét
búið í hendur syni sínum, Búa, og konu hans,
Sigrúnu Pálsdóttur, ættaðri af Jökuldal, sem reist
hafa sér nýtt íbúðarhús skammt ofan vegar. Þá gat
hann litið stoltur yfir farinn veg. Ég fann, að það
var honum mikið gleðiefni, að ungu hjónin skyldu
ákveða að setjast þar að, og börnin þeirra tvö voru
mikil ljós í lífi hans síðustu árin.
Á kveðjustund vil ég færa Sigurberg þakkir
fyrir öll okkar góðu kynni og vináttu, sem aldrei
bar skugga á. Það er sjónarsviptir af honum í
dalnum. Ég sakna þess að eiga ekki kost á því
framar að taka í hönd hans og finna traust og þétt
handtakið, sem var eins og maðurinn sjálfur, heill
og traustur. Samúðarkveðjur flyt ég Siggu,
börnunum og fjölskyldunni allri. Blessuð sé
minning Sigurbergs á Bústöðum.
Ólafur Þ. Hallgrímsson
I n m e m o r i a m
Sigurberg Austdal Kristjánsson, Bústöðum
Vikuna 27. desember 2015 – 2. janúar 2016 var tæpum 285 tonnum landað á Skagaströnd. Þá
var landað rúmum 8 tonnum á Hofsósi. Engu var landað á Sauðárkróki og Hvammstanga. Alls
gera þetta um 392 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 27. desember 2015 – 2. janúar 2016 á Norðurlandi vestra
Enginn afli á Sauðárkróki
og Hvammstanga
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HOFSÓS
Bíldsey SH 65 Lína 5.900
Geisli SK 66 Línutrekt 2.153
Alls á Hofsósi 8.053
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb. lína 10.613
Alda HU 112 Landb. lína 11.059
Arnar HU 1 Botnvarpa 249.335
Bergur sterki HU 17 Landb. lína 2.418
Íslandsbersi HU 113 Landb. lína 4.543
Sæfari HU 200 Landb. lína 3.479
Ölli krókur GK 211 Landb. lína 3.211
Alls á Skagaströnd 284.658
Dregið úr réttum lausnum
í verðlaunakrossgátu
Fjölmargar lausnir bárust
vegna jólakrossgátu Feykis.
Lausnarorðið var: „Sá fimmti
pottaskefill.“ Dregið var úr
innsendum lausnum og hlutu
eftirtaldir vinninga:
Hersetan á Ströndum og
Norðurlandi vestra eftir Friðþór
Eydal.
Guðrún Bjarnadóttir
Lækjarbakka 5, 560 Varmahlíð
Geisladiskarnir Á góðri stund
(Hreindís Ylva flytur lög Erlu
Þorsteins) og Nafnið þitt (lög
Erlu Gígju)
Jóhann Guðmundsson
Holti, 541 Blönduós
Geisladiskurinn
Skagfirðingar syngja
Sólveig Júlíusdóttir
Laugatúni 24, 550 Sauðárkróki
/KSE
RÚNAR KRISTJÁNSSON SKRIFARFRÁ LESENDUM
Sýn hjartans
Hann lá í rúmi legu þá
sem lífs er hinsta þrautin.
Ásýndin var orðin grá
og allur styrkur honum frá
og gjörvöll gengin brautin!
Hann brosti samt og sólskin stillt
þar sveif um fölar kinnar.
Svo sagði hann hlýtt og mjúkt og milt
og mál hans allt varð gæsku fyllt:
„Ég fer til móður minnar!“
Rúnar Kristjánsson
Félag
Harmonikuunnenda
í Skagafirði
óskar öllum félögum og velunnurum gleðilegs nýs
árs og friðar og þakkar fyrir það liðna.
Þökkum Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra,
menningarsjóðum, Kaupfélagi Skagfirðinga, Spari-
sjóði Skagafjarðar, Arion Banka og Landsbanka
Íslands fyrir styrkveitingar á ný liðnu ári.
Stjórnin
Jólakrossgátan
Þau leiðu mistök urðu í viðtali
við Elinborgu Sigurgeirsdóttur
í 48. tölublaði Feykis að sagt var
að Sigurgeir Pálsson, langafi
Elinborgar, hefði flutt til
Kanada ásamt öllum börnum
sínum nema afa hennar, Karli
Sigurgeirssyni. Þetta er ekki rétt
því dóttir Sigurgeirs, Helga,
varð einnig eftir á Íslandi og frá
henni er kominn stór ættbogi
hér á landi. /KSE
Helga flutti ekki til Kanada
Leiðrétting vegna viðtals í 48. tölublaði Feykis 2015