Feykir - 07.01.2016, Qupperneq 6
6 01/2016
Konan, gegndi stöðu aðal-
bókara og síðar fjármálafull-
trúa hjá Svf. Skagafirði, játaði
sök og kvaðst vera þunglynd
og haldin spilafíkn. Tólf mán-
uðir dómsins voru skilorðs-
bundnir. Hún var dæmd til að
greiða Svf. Skagafirði rúmar 26
millj.kr. með vöxtum. Rúmar
þrjár milljónir voru gerðar
upptækar af reikningi kon-
unnar.
Vatnsrennibraut reist
við sundlaugina á
Hvammstanga
Við sundlaugina á Hvamms-
tanga var vatnsrennibraut
tekin í notkun á árinu, gest-
um laugarinnar til mikillar
ánægju. Búið var að koma
rennibrautinni upp í janúar-
mánuði en rysjótt tíðarfar tafði
fyrir tengingar- og frágangs-
vinnu. MYND: GHK
Málmey aftur á sjó eftir
gagngerar endurbætur
Togarinn Málmey SK-1, í eigu
FISK Seafood, kom aftur til
hafnar á Sauðárkróki eftir
gagngerar endurbætur, fyrst í
Póllandi en síðan á Akranesi.
Endurkoma skipsins vakti
mikla athygli og var fylgst
grannt með því þegar nýr
búnaður um borð var tekinn í
gagnið. Hann er sagður
„byltingakennd nýjung í
meðferð afla“ en með nýrri
kælitækni er ísun í lestinni úr
sögunni. MYND:BÞ
Febrúar
100 ára kosningaafmæli
kvenna fagnað
100 ára afmæli kosningarréttar
kvenna var víða minnst á
árinu. Þann 1. febrúar stóð
Samband skagfirskra kvenna
fyrir afmælisfagnaði í Menn-
ingarhúsinu Miðgarði. Fjöldi
kvenna mætti í íslenskum bún-
ingum eða handprjónuðum
flíkum sem settu skemmtilegan
svip á viðburð-inn.
Strandaglópar á Ströndum
Hópur á vegum nemendafélags
FNV sat fastur í rútu yfir nótt
þann 9. febrúar sl. þegar hann
var á leið úr skólaheimsókn á
Ísafirði. Það gerði leiðinda-
eður og vegurinn í Staðardal
við Steingrímsfjörð, fór í
sundur á 7-10 m kafla vegna
vatnavaxta. 56 manna hópur-
inn gat haldið för sinni áfram
eftir 17 klst. dvöl í rútunni,
Janúar
Skagfirðingar sæmdir
riddarakrossi
Á nýársdag voru Skagfirðing-
arnir Sigurður Hansen frá
Kringlumýri og Magnús
Pétursson frá Vindheimum
sæmdir heiðursmerki hinnar
íslensku fálkaorðu á Bessa-
stöðum. Sigurður fékk
riddarakrossinn fyrir framlag
sitt til kynningar á sögu og
arfleifð Sturlungaaldar og
Magnús fyrir störf í opinbera
þágu. Þá var Stefán R. Gíslason
sæmdur fálkaorðunni þann
17. júní fyrir framlag sitt til
tónlistarlífs á landsbyggðinni.
MYND: SS
Lögreglu- og
sýslumannsembætti
sameinuð
Um áramótin 2014-2015
gengu í gegn einhverjar
umfangsmestu breytingar í
sögu lögreglunnar þegar fullur
aðskilnaður varð á milli sýslu-
manna og lögreglu. Um-
dæmum landsins var fækkað
úr 15 í 9 og voru lögreglu-
embættin á Blönduósi og
Sauðárkróki voru sameinuð í
Lögregluna á Norðurlandi
vestra með skrifstofu á Sauð-
árkróki en sýslumannsem-
bættin staðsett á Blönduósi.
Páll Björnsson tók við embætti
lögreglustjóra og Bjarni G.
Stefánsson er sýslumaður.
Dómur féll í
fjárdráttarmáli
Rúmlega fertug kona var í
Héraðsdómi Norðurlands
dæmd í 15 mánaða fangelsi
fyrir að draga að sér rúmar 26
millj.kr. og nota í eigin þágu.
Fréttaannáll 2015
Árið 2015 var um margt viðburðarríkt á Norðurlandi vestra. Rystjótt tíðarfar setti svip sinn á fyrri
hluta ársins, mikið var um framkvæmdir, minnisverðir viðburðir voru haldnir vítt og breitt um
svæðið og 100 ára kosningaamfæli kvenna víða fagnað. Norðvestlendingar áttu góðu gengi að fagna
á ýmsum sviðum, ekki síst á sviði íþróttanna. Þá dró einnig til tíðinda í dómsmálum, nokkuð var um
verkföll, eldsvoða og riðusmit greindist í fé, svo fátt eitt sé nefnt. Hér er sýnishorn af því sem
fréttnæmt var á síðasta ári þó upptalningin sé hvergi nærri tæmandi.
Mars
Drangey afhendir HSN
speglunartæki
Umfangsmikið söfnunarátak
Kiwanisklúbbsins Drangeyjar
fyrir nýjum speglunartækjum
á HSN á Sauðárkróki lauk um
miðjan janúar og voru þau
afhent með viðhöfn í fjár-
öflunar- og fræðsluskemmtun
í tilefni af Mottumars í Mið-
garði þann 7. mars. Metnaðar-
fullt söfnunarátakið vakti
mikla athygli en um er að ræða
ein fullkomnustu tæki sinnar
tegundar á landinu, alhliða
speglunartæki, bæði fyrir
maga og ristil.
Rúmlega 90 millón króna
styrkur til fornleifa-
rannsókna
Byggðasafn Skagfirðinga, í
samstarfi við hóp bandarískra
vísindamanna á vegum þriggja
þarlendra háskóla, hlaut rúm-
lega 90 milljóna króna styrk
(688 þús. dollara), úr Vísinda-
sjóði Bandaríkjanna, þ.e. The
National Science Foundation –
NSF, til rannsókna á fornum
kirkjugörðum og búsetu-
mynstri í Hegranesi í Skaga-
firði. Rannsóknin er til þriggja
ára en hún fór af stað sl. sumar
og varpaði nýju ljósi á forna
byggð í Nesinu.
Tunglið dekkaði sólina
Landsmenn fylgdust spenntir
með sólmyrkvanum þann 20.
mars, veðurguðirnir brostu við
íbúum Norðurlands og sást
myrkvinn prýðis vel. Sól-
myrkvinn hófst 8:41, hann
náði hámarki kl. 9:41 en þá
huldi tunglið 97,8% af skífu
sólar, samkvæmt Stjörnu-
fræðivefsins. Myrkvanum lauk
kl. 10:44. MYND: RDJ
Apríl
Landsmót hestamanna
á Hólum
Landsamband hestamanna,
Gullhylur og Svf. Skagafjörður
undirrituðu samning um
Landsmót hestamanna 2016
við hátíðlega athöfn á Hólum í
Hjaltadal. „Þetta svæði hér á
Hólum bíður upp á spennandi
möguleika, hér er mekka
hestamennskunnar og hér
liggja ræturnar,“ sagði Lárus
Ástmar Hannesson, formaður
LH, í samtali við Feyki.
Hvað gerðist á liðnu ári? Fyrri hluti – janúar til júní 2015
SAMANTEKT
Berglind Þorsteinsdóttir
með viðkomu á Hólmavík þar
sem RKÍ opnaði fjöldahjálpar-
stöð vegna atviksins. Nemend-
urnir komu loks til síns heima
á Sauðárkrók rúmum 29 klst.
síðar. „Þessi ferð var ótrúleg,
mér fannst þetta allavega
hrikalega gaman, elska að lenda
í svona ævintýrum,“ sagði einn
nemandinn í samtali við Feyki.
MYND: EFA
Eldsvoði á Skagaströnd
Eldur kviknaði í bát á
Skagaströnd aðfaranótt 17.
febrúar. Báturinn varð brátt
alelda og skíðlogaði einnig í
íbúðarhúsinu sem hann stóð
við. „Ekki mátti tæpara
standa,“ sagði Hafsteinn Páls-
son slökkviliðsstjóri á Skaga-
strönd. Um var að ræða stóran
plastbát og logaði á annarri
hæð hússins, rúður brotnuðu
og hluti klæðningar. Engu að
síður gekk slökkvistarfið
greiðlega.
Riðusmit greinist í
Vatnsneshólfi
Riðuveiki greindist í kindum
frá bænum Neðra-Vatnshorni
í Húnaþingi vestra í febrúar.
Var þetta fyrsta tilfelli hefð-
bundinnar riðu sem greindist
á landinu frá 2010. Skömmu
síðar greindist riðusmit á
tveimur bæjum í Skagafirði,
Valagerði og Víðiholti. Ekki
voru talin tengsl á milli riðu-
tilfellana. Niðurskurður og
hreinsunaraðgerðir fóru fram
á bæjunum og fénu komið til
brennslu hjá Kölku í Helguvík
Frá afmælisfagnaði í Miðgarði vegna 100 ára kosningaafmælis kvenna.
MYND: KSE