Feykir - 07.01.2016, Síða 7
01/2016 7
Dæmdar rúmar 4,3
milljónir auk
málskostnaðar
Mál Þorsteins Sæmundssonar,
fyrrverandi forstöðumanns
Náttúrustofu NLV, gegn
Náttúrustofu var tekið fyrir í
Héraðsdómi í lok aprílmánaðar
en hann krafðist tæpra 10,6
millj.kr. bóta. Skv. dómnum
var Náttúrustofunni gert að
greiða Þorsteini tæpar 4,4 millj.
kr. með vöxtum, auk 1,2 millj.
kr. í málskostnað. Ekki var
fallist á að stjórn Náttúrustofu,
né einstakir stjórnarmenn,
hefðu gerst sekir um meingerð
og var miskabótakröfu því
hafnað.
Maí
Verkföll og kjarabaráttur
höfðu víðtæk áhrif
Kjarabarátta og verkfalls-
aðgerðir stéttarfélaganna settu
mark sitt á árið. Rúmlega 10
þúsund félagar Starfgreina-
sambandsins lögðu niður
vinnu 30. apríl og aftur þann 5.
maí, þ.m.t. félagsmenn Öld-
unnar í Skagafirði og Samstöðu
á Blönduósi. Verkfallið, sem
stóð í tvo sólarhringa, hafði
víðtæk áhrif en almennt sinna
félagsmenn við kjöt- og
fiskvinnslu, ýmsum þjónustu-
störfum, s.s. í ferðaþjónustu,
ræstingum, flutningum o.fl.
Sættir náðust í lok mánaðarins.
Þá olli verkfall dýralækna
Mast sem stóð í tæpar tíu vikur,
mikilli röskun og hafði víðtæk
áhrif, ekki síst á bændur. Um
tíma máttu þeir hvorki slátra
né setja kjöt á markað þannig
að bæði velferð dýra og hagur
bænda var í húfi. Verk-fallinu
lauk með lagasetningu í
júnímánuði.
Gott gengi í körfunni
Tindastóll tapaði naumlega
fyrir KR í lokarimmu
Dominos-deildarinnar í körfu
eftir ótrúlegt tímabil. Vestur-
bæingarnir fengu hins vegar
ekkert ókeypis hjá Stólunum
sem börðust eins og ljón allan
tímann, síðustu mínúturnar
voru hins vegar KR-inganna,
lokastaða 81-88.
Unglingaflokkur átti betra
gengi að fagna í mánuðinum á
undan og tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn á móti FSu í
Stykkishólmi, en lokatölurnar
urðu 74-71.
Eldur kviknar í
iðnaðarhúsnæði
Mildi má teljast að ekki varð
meira tjón þegar eldur kviknaði
í miðjurými í nýlegu iðnaðar-
húsnæði að Lágeyri 3 á
Sauðárkróki, þar sem þrjár
smábátaútgerðir hafa aðstöðu.
Þegar lögregla kom á vettvang
reyndist eldurinn þegar hafa
slokknað vegna súrefnisskorts
og barst því ekki í nærliggjandi
húsnæði. Kviknað hafði í útfrá
frystiklefa í rýminu og voru
miklar skemmdir af völdum
hita og sóts.
Ábúandinn missti
allt sitt í eldi
Eldur kom upp í íbúðarhúsi á
Breiðabólstað í Vestur-Húna-
vatnssýslu þann 17. maí. Erfið-
lega gekk að slökkva eldinn
vegna norðanhvassviðris og
varð húsið brátt alelda. Engin
slys urðu á fólki en húsið brann
til kaldra kola og ábúandinn,
Kristján Sigurðsson, missti allt
sitt innbú í eldinum. MYND: KS
Júní
Kínverjar vilja reisa álver á
Hafurstöðum
Í júní sl. bárust fyrstu fregnir af
áhuga kínverskra aðila á að
reisa álver á Hafursstöðum á
Skaga. Framkvæmdin hefur
verið umdeild en um er að
ræða heildarfjárfestingu upp á
100 milljarða kr. og talið er að
hún myndi skapa um 240 störf
og 200 afleidd störf. Sveitar-
félögin á Norðurlandi vestra
hafa undirritað viljayfirlýsingu
um fjármögnun verkefnisins
ásamt kínverska fyrirtækinu
NFC og Klöppum appir
Development.
Sigvaldi lýkur
Umhyggjugöngu
Umhyggjugöngu Sigvalda
Arnars Lárussonar, lögreglu-
manns í Keflavík, til styrktar
Umhyggju, félagi til stuðnings
langveikum börnum, lauk við
Sundlaugina á Hofsósi. Hafði
hann þá gengið frá Keflavík.
Honum var innilega fagnað af
heimamönnum, en Umf.
Neisti og Björgunarsveitin
Grettir skipulögðu móttöku
honum til heiðurs. MYND: KSE
Orkan úr Blöndu í
brennidepli
Íbúafundur um atvinnuupp-
byggingu í A-Hún. var haldinn
á Blönduósi í júnímánuði en
þar var Greinargerð um at-
vinnuuppbyggingu í sýslunni
til umræðu. Greint var frá
innihaldi skýrslunnar, byggða-
mál voru til umræðu og
hugmyndir um álver á
Hafurstöðum kynntar. Í máli
Snorra Björns Sigurðssonar,
forstöðumanns þróunarsviðs
Byggðastofnunar, kom fram að
til að snúa við núverandi þróun
við þyrfti annað hvort að nýta
orkuna úr Blöndu eða að það
þyrfti kraftaverk. Að sögn
Valgarðs Hilmarssonar, forseta
Bæjarstjórnar Blönduósbæjar,
voru viðstaddir sammála því
sjónarmiði.
Vel lukkað Landsmót
UMFÍ 50+
Landsmót UMFÍ 50+ var
haldið á Blönduósi í blíð-
skaparveðri síðustu helgina í
júní. Þátttakan var góð, dag-
skráin vel skipulögð og
keppnin gekk eins og í sögu. Þó
bárust fregnir af konu sem
villtist af leið í víðavangshlaupi
sem hófst á Húnaveri. Björg-
unarsveitir voru kallaðar út til
að leita að konunni og fannst
hún nokkru síðar í Laxárdal,
heil á húfi, þar sem hún sat og
beið aðstoðar í ágætu veðri.
MYND: RDJ
Drangey Music Festival
haldið í fyrsta sinn
Tónleikahátíðin Drangey
Music Festival á Reykjum á
Reykjaströnd líður seint úr
minni þeirra sem þar voru í
einstakri veðurblíðu. Skaga-
fjörðurinn skartaði sínu feg-
ursta og viðstaddir voru ekki
sviknir af þeirri myndlistar-
sýningu sem himininn og
hafflöturinn buðu upp á við
undirleik tónlistarfólks. MYND: BÞ
Stefán sigraði
The Biggest Loser
Sauðkrækingurinn Stefán Ás-
grímur Sverrisson sigraði í
keppninni The Biggest Loser
Ísland sem send var út frá
Háskólabíói á Skjá Einum. Í
upphafi keppninnar var Stefán,
sem starfar sem pökkunar-
maður í Steinullarverksmiðj-
unni á Sauðárkróki, 153,1 kg
en var 93,7 kg við keppnisloks,
sem þýðir að hann missti 59,4
kg. Samsvarar það nærri 40%
af upphaflegu þyngd hans.
Hættulegar sprungur í
Ketubjörgum
Lögreglan varaði við hættu-
legum sprungum í Ketubjörg-
um á Skaga, svæðið var girt af
og allur aðgangur bannaður af
öryggisástæðum. Sprungan er
sérstök að því leyti að hún
liggur þvert á landslagið á
löngum kafla, hluti bjargsins er
í raun orðinn laus frá
klettunum og getur fallið í sjó
fram á hverri stundu. Það er
um átta metrar á breidd efst og
50-60m hátt. Bjargsneiðin var
enn standandi við árslok.
Tólf bíla árekstur á
Holtavörðuheiði
Mikil mildi var að ekki urðu
alvarleg slys á fólki þegar tólf
bíla árekstur varð á Holta-
vörðuheiði. Hermann Ívars-
son, lögregluvarðstjóri á
Blönduósi, kastaðist tugi metra
og endaði utan vegar eftir að
flutningabíll kom æðandi á
bílaös sem hafði skapast eftir
árekstur. Hermann rankaði
fljótlega við sér og varð þá ljóst
að maður hafði orðið undir
flutningabílnum. Maðurinn
hafði fengið mikið högg en var
að sögn Hermanns furðu
brattur. Sagði hann ótrúlegt lán
að ekki fór verr.
Ömmukaffi opnar
á Blönduósi
„Ömmurnar“ Bryndís Sigurð-
ardóttir og Birna Sigfúsdóttir
opnuðu kaffihúsið Ömmu-
kaffi, þar sem áður var
veitingahúsið Við Árbakkann.
Vinkonunar sögðu hugmynd-
ina hafa blundað lengi í þeim
og loks ákváðu þær að láta slag
standa. „Við höfum báðar sagt
upp störfum okkar og ætlum
alfarið að starfa við rekstur
Ömmukaffis, sumar sem
vetur,“ sögðu stöllurnar í
Feykisviðtali skömmu fyrir
opnun í maímánuði.
Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps
fagna 90 ára afmæli
Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps fagnaði 90 ára afmæli
þann 22. apríl. Fjölmargir
heiðruðu kórinn með nærveru
sinni, húsfyllir var í Húnaveri
og frábært stemming.
Frá 90 ára afmæli Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps.
MYND: MARGRÉT GRÉTARSDÓTTIR
Unglingaflokkur Tindastóls í körfubolta. MYND: SUMARLIÐI ÁSGEIRSSON