Feykir - 07.01.2016, Qupperneq 11
01/2016 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gengur frá
jólaskrautinu ef það er ekki búið að því.
Spakmæli vikunnar
Versta blekkingin er sjálfblekkingin.
- Bovee
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... steypireiður getur orðið jafn þungur og 30 fílar og jafnlangur og
þrjár stórar langferðabifreiðar?
... fló getur stokkið 350 falda líkamslengd sína?
... lengsti tími sem manneskja hefur legið í dái er 37 ár?
... Kínamúrinn er 6.430 kílómetra langur? Til samanburðar er
þjóðvegur 1, hringvegurinn um Ísland, 1.332 kílómetrar og þykir
flestum nóg um.
Hahahahaha ... hehe ...
Gísli og Gudda voru nýkomin úr heimsókn til vina sinna í Hafnarfirði.
Gudda sagði við bónda sinn: „En hvað ég held að við höfum gert mikið
góðverk með því að líta inn hjá þeim.“ „Af hverju dregur þú þá ályktun,“
spurði Gísli? „Jú, sástu ekki hvað þau voru döpur þegar við komum. En
þegar við fórum ljómuðu þau eins og sól í heiði...“
Krossgáta
Feykir spyr...
Strengdir þú
áramótaheit?
Spurt á Facebook
UMSJÓN kristin@feykir.is
hafa bakað smábrauð líka en ekki
nauðsyn.
Við skorum á vini okkar
Rannveigu Hjartardóttur og
Magnús Ásgeir Elíasson bændur
á Stóru-Ásgeirsá að taka við
keflinu.
Verði ykkur að góðu!!
Einfaldir fiskréttir
eftir kjötátveislu
jólanna
FORRÉTTUR
Rækjuforréttur
Rækjur
mangó
sýrður rjómi
agavesýróp
sítróna
Aðferð: Rækjur settar í skál með
mangóbitum, sýrðum rjóma sem
búið er hræra svolítið af
afgavesýrópi útí og kreistu af
sítrónusafa.
EFTIRRÉTTUR
Saltfiskréttur
fyrir 4-6
2 laukar, rauður og venjulegur
1 blaðlaukur
1 hvítlaukur
3 paprikur; rauð, gul og græn
gráðostur
salti og pipar
fiskikraftur frá Oscar
rjómi
saltfiskur, skorinn í bita
ostur, rifinn
Aðferð: Laukar og paprikur
saxað niður og mýkt á pönnu.
Gráðosti bætt útí og kryddað
síðan með salti og pipar og
fiskikrafti frá Oscar. Síðan hellt
slatta af rjóma yfir allt saman.
Öllu er sturtað í eldfast mót eða
steikarpott og saltfiskbitum
raðað ofan á (ca 1 kg fyrir 4-6).
Því síðan skellt inn í 200°C heitan
ofn í 15 mínútur. Rétturinn er þá
tekinn tekinn út og rifnum osti
sáldrað yfir og settur aftur í
ofninn í 10-15 mínútur með
blæstri.
Með þessu er gott að drekka
nokkuð sætt hvítvín. Og þá má
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Fyrstu matgæðingar Feykis
árið 2016 eru hjónin og
hrossaræktendurnir Ísólfur
Líndal Þórisson og Vigdís Gunnarsdóttir frá Lækjarmóti II, og
synir þeirra tveir, Ísak og Guðmar. „Eftir kjötátveislu jólanna eru
margir sem vilja fá sér fisk svo hér kemur ein einföld uppskrift af
rækjuforrétti og saltfisks aðalrétti,“ segja hjónin.
Vigdís og Ísólfur matreiða
„Nei.“
Jakob Jóhannsson, Sauðárkróki
„Engin sérstök svo sem, nema
þá helst að halda áfram að
bæta heilsuna og vinna að því
daglega.“
Steinar I Sörensen frá Hofsósi
„Ég er lítið fyrir formlegar
heitstrengingar en setti mér
samt það markmið að lesa meira
á árinu og ætla að reyna að nýta
a.m.k. tvö kvöld í viku í að lesa
frekar en að glápa.“
Guðmundur St Sigurðarson, Sauðárkr.
Vigdís, Ísólfur og synir á góðri stundu. MYND: ÚR EINKASAFNI
„Nei, ég strengdi ekki
áramótaheit.“
Jensína Lýðsdóttir, Skagaströnd
„Mitt áramótaheit er að rækta
mig og mína vel á árinu.“
Herdís Lilja Káradóttir, Sauðárkróki