Feykir - 13.04.2016, Page 3
14/2016 3
Stólarnir úr leik!
Haukar höfðu betur í undanúrslitunum
Tindastóll er úr leik í úrslitakeppni Dominos-
deildarinnar í körfubolta eftir harða og æsi-
spennandi rimmu gegn Haukum úr Hafnarfirði.
Haukar unnu þrjá leiki en lið Tindastóls einn.
Haukar unnu fyrsta leikinn eins og sagt var frá í
síðasta Feyki en Tindastólsmenn jöfnuðu einvígið
með eins stigs sigri fyrir um viku. Pétur Birgisson
innsiglaði sigur Stólanna með gegnumbrotskörfu
sjö sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 69-68.
Haukar unnu síðan þriðja leik liðanna í
Hafnarfirði nú á laugardaginn. Þeir náðu góðu
forskoti fyrir hlé en Tindastólsmenn komu sterkir
til leiks í síðari hálfleik, jöfnuðu leikinn og voru sex
stigum yfir þegar sjö mínútur voru eftir.
Heimamenn reyndust hins vegar sterkari á
lokakaflanum og sigruðu, 89-81. Fyrir leikinn hafði
Anthony Gurley sagt skilið við Stólana og lið
Tindastóls ekki jafn sterkt og stefnt var að í byrjun
árs því Darrel Flake hefur ekkert spilað síðan í
janúar vegna meiðsla.
Fjórði leikur liðanna fór síðan fram í gærkvöldi í
troðfullu Síkinu. Leikurinn var jafn og spennandi
nánast allan tímann. Haukar náðu 14 stiga forystu í
byrjun síðari hálfleiks þar sem Stólarnir voru ekki
með á nótunum. Þeir þjöppuðu sér saman, stigu
upp í vörninni og klóruðu sig af harðfylgi aftur inn
í leikinn. Í fjórða leikhluta var spennustigið gríðar-
legt og skorið í algjöru lágmarki. Stólarnir komust
yfir en síðan gekk þeim illa að auka forskotið og
Kári Jónsson kom Haukum yfir með vítum þegar
23 sekúndur voru eftir. Síðustu sókn Stólanna lauk
með 3ja stig körfu frá Helga Margeirs – en bara
sekúndubroti of seint! Lokatölur 68-70.
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Hvað getum við gert til þess að koma í veg
fyrir vinaleysi barna og unglinga í Skagafirði?
- Raddir ungmenna okkar -
Vinaverkefnið í Skagafirði
stóð fyrir nemendafundi í
Húsi frítímans þann 31. mars
sl. Á fundinum voru nem-
endaráð allra grunnskólanna í
Skagafirði samankomin,
ásamt nemendaráði FNV.
Megin markmið fundarins var
að vinna með eina lykilspurn-
ingu: Hvað getum við gert til
þess að koma í veg fyrir
vinaleysi barna og unglinga
í Skagafirði?
Unnið var í hópum þar sem allir
hóparnir tóku afstöðu til þess
hvað þau geta gert sem ein-
staklingar, hvað Vinaverkefnið
getur gert, hvað skólinn getur
gert og hvað foreldrar geta gert.
Eftirfarandi niðurstöður komu
fram og vill Vinaverkefnið
þakka nemendaráðunum fyrir
frábæran fund.
Margar góðar hugmyndir
komu fram er snúa að því hvað
hver og einn getur gert til að
koma í veg fyrir vinaleysi:
AÐSENT VINAVERKEFNIÐ
• Að vera góður við aðra og skilja
ekki eftir útundan.
• Vera opin fyrir því að eignast
nýja vini.
• Láta vita af krökkum sem eru
vinalaus eða lögð í einelti.
• Koma vel fram við aðra.
• Bera virðingu fyrir hverjum og
einum eins og þeir eru.
• Reyna fá flesta til að vera með
og taka þátt.
Skemmtilegar hugmyndir
komu fram varðandi hvað for-
eldrar geta gert til að koma í veg
fyrir vinaleysi barna og ungl-
inga:
• Geta fylgst með vináttu barna
sinna.
• Tengst fjölskyldum sem eru með
krökkum á svipuðum aldri.
• Hvatt krakka til að taka þátt í
félagslífi og félagsstarfi.
• Fylgst vel með félagsskap barna
sinna.
• Haft gott samband við aðra
foreldra.
• Rætt við börnin um einelti og
líðan þeirra.
• Virkjað börn sín til að vera
meðvituð um einelti.
Skólinn getur líka gert ýmislegt:
• Aukið samveru milli bekkja í
öðrum skólum.
• Farið oftar í hópeflisleiki.
• Aukið samvinnu milli kennara
skólanna.
• Fylgst vel með nemendum.
• Haft trúnaðarmenn í skólunum
sem eru óháðir kennurum t.d.
húsvörður eða skólaliði.
• Eflt hópavinnu og hópefli.
• Tengt árganga saman t.d. á
þemadögum.
• Kennarar og starfsfólk þurfa að
vera duglegri að spyrja nem-
endur hvernig þeir hafa það.
Góðar athugasemdir komu
fram sem snúa að því hvað
Vinaverkefnið gætur gert og var
áberandi hversu oft kom upp að
efla samskipti og samvinnu
milli allra skólanna m.a. með
skipulögðum heimsóknum
þvert á skólana og tengja
skólastigin betur saman.
Eitt af verkefnum nemenda-
fundarins var sömuleiðis að fara
yfir Vinadaginn sem haldinn er
að hausti á Sauðárkróki þar sem
allir grunnskólarnir í firðinum
ásamt FNV og skólahópum
leikskólanna hittast og eiga
saman góðar stundir. Mjög
áhugaverðar hugmyndir komu
fram varðandi Vinadaginn sem
Vinateymið mun taka til
athugunar fyrir næsta haust.
Helst má þar nefna að stytta
tímann í salnum, auka tímann
sem árgangar hittast og hafa
fleiri hópeflisleiki.
Við sem stóðum fyrir nem-
endafundinum erum afar
ánægð með þessa flottu nem-
endur og þær góðu hugmyndir
sem þau komu fram með.
Næsta skref er síðan að vinna
með niðurstöðurnar úti í skól-
unum og fá krakkana til liðs við
okkur þannig að ekkert barn né
unglingur verði vinalaust í
Skagafirði.
Fyrir hönd Vinaverkefnisins:
Guðný Guðmundsdóttir
Helga Harðardóttir
Jóhanna Traustadóttir
Margrét Arnardóttir
Margrét Helga Hallsdóttir
Ragnheiður Rúnarsdóttir
Sara Gísladóttir
Selma Barðdal
Þorvaldur Gröndal
Fjör í Húsi frítmans. MYND: KSE
Þórarinn sigrar annað árið í röð
KS-Deildin 2016
Sigurvegari KS Deildarinnar
2016 er Þórarinn Eymundsson.
Í öðru sæti varð Mette
Mannseth og Ísólfur Líndal í
því þriðja. Lið Hrímnis sigraði
liðakeppnina 2016, eftir
frábæra frammistöðu í vetur,
eins og segir á fésbókarsíðu
deildarinnar.
Lið Hrímnis er skipað þeim
Helgu Unu Björnsdóttur, Líney
Maríu Hjálmarsdóttur, Þórarni
Eymundsyni og Valdimar Berg-
stað. Sem fyrr segir sigraði
Þórarinn Eymundsson einstakl-
ingskeppnina, í öðru sæti varð
Mette Mannseth og Ísólfur
Líndal í því þriðja.
Á lokakvöldi keppninnar,
sem haldin var í Reiðhöllinni
Svaðastöðum þann 6. apríl sl.,
sigruðu Gústaf Ásgeir Hinriks-
son og Skorri frá Skriðulandi í
T2 með einkunnina 8,04. Í
skeiði sigruðu Ísólfur Líndal og
Korði frá Kanastöðum á frá-
bærum tíma, 4,96. /KSE
Þórarinn Eymundsson, Metta Mannseth og Ísólfur Líndal Þórisson skipuðu þrjú
efstu sætin í einstaklingskeppni KS-Deildarinnar.
MYND: KS-DEILDIN
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Skotfélagið Markviss
Skotfélaginu Markviss í Austur-Húnavatns-
sýslu var sl. fimmtudag veitt viðurkenning
sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Afhendingin fór
fram í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.
Fyrir afhendinguna var boðið upp á
sýningu á keppnisbúnaði félagsmanna, verðl-
aunagripum og fleiru sem tengist starfi
félagsins. Þá gátu gestir og gangandi fræðst um
starfsemi félagsins og hvað er á döfinni á næstu
árum.
Fulltrúi ÍSÍ, Viðar Sigurjónsson, afhenti svo
Snjólaugu Maríu Jónsdóttur formanni félagsins
viðurkenninguna, en félagið er fyrsta aðildar-
félag USAH sem hlýtur þessa viðurkenningu.
Fyrirmyndarfélag er gæðaverkefni íþrótta-
hreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi. Með
því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir
íþróttastarf geta íþróttafélög eða deildir sótt
um viðurkenningu til ÍSÍ, miðað við þær
gæðakröfur sem íþróttahreyfingin gerir.
Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu
á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag
eða Fyrirmyndardeild. /KSE MYND: RÓBERT DANÍEL