Feykir - 08.06.2016, Page 7
22/2016 7
Að segja eitt og gera allt annað
Á síðustu árum hefur Fram-
sóknarflokkurinn gefið
hástemmd loforð um veiga-
miklar úrbætur í húsnæðis-
málum. Eygló Harðardóttir
velferðarráðherra hefur
gengið þar fremst og lofað
m.a. afnámi verðtryggingar,
lækkun byggingakostnaðar
um 10%, bæta stöðu ungs
fólks og leigjenda, auk þess að
efla hlutverk Íbúðalánasjóðs.
Þrátt fyrir að þrjú ár séu liðin frá
því ríkisstjórn Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks tók við
völdum, þá bólar lítið á
raunverulegum aðgerðum.
Vissulega, þá voru fjögur
frumvörp lögð fyrir alþingi og
það veigamesta um almennar
félagslegar íbúðir, en áhrifa þess
fer fyrst að gæta eftir nokkur ár
og munu fyrst og fremst ná til
tekjulægsta hóps samfélagsins.
Öðrum hópum sem búa við
þrönga stöðu m.a. fólki með
meðaltekjur sem fór illa út úr
hruninu og ungu fólk sem
nýkomið er úr skóla með
þokkalegar tekjur og lítið eigið
fé, er úthýst á almennan leigu-
markað.
Velferðarráðherra hefur nú
gert stöðu þeirra sem þurfa að
leita á náðir almenna
markaðarins mun verri með því
að koma megninu af eignasafni
Íbúðalánasjóðs í hendurnar á
félögum á borð við Heimavelli
og Gamma.
Smá jafnt sem stór loforð
velferðarráðherra virðast vera al-
gerlega innihaldslaus. Skömmu
fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar var aðstoðarmaður
velferðarráðherra sendur í
leiðangur norður á Sauðárkrók
til þess að lofa fjölgun starfa hjá
útibúi Íbúðalánasjóðs norðan
heiða.
Nú að tveimur árum liðnum
er rétt að skoða efndirnar en
þær eru að sjóðurinn hefur
nýlega boðað áframhaldandi
fækkun starfa á Sauðárkróki
þannig að þeim loknum þá
hefur ráðherra tekist að fækka
störfum um hátt í 45% á
Sauðárkróki.
Sigurjón Þórðarson og
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
Skagafjarðarlista
AÐSENT SIGURJÓN OG GRÉTA SJÖFN SKRIFA
Vikuna 29. maí – 4. júní var rúmum tæpum 98 tonnum landað á Skagaströnd, rúmlega 330
tonnum var landað á Sauðárkróki, rétt tæplega 17 tonnum á Hvammstanga og rúmum 19
tonnum á Hofsósi. Alls gera þetta rúm 464 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 29. maí – 4. júní á Norðurlandi vestra
Hátt í 17 tonn á Hvammstanga
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 13.745
Mars HU 41 Grásleppunet 3.246
Alls á Hvammstanga 16.991
SKAGASTRÖND
Akraberg ÓF 90 Landb. lína 15.462
Alda HU 112 Landb. lína 16.189
Ásdís ÓF 250 Handfæri 2.027
Auður HU 94 Handfæri 1.669
Bergur Sterki HU 17 Landb.lína 3.150
Bjartur í Vík HU 11 Landb.lína 1.837
Bogga í Vík Grásleppunet 2.295
Blær HU 77 Landb.lína 458
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 5.542
Edda EA 65 Handfæri 1.986
Elín ÞH Handfæri 1.003
Fengsæll Grásleppunet 2.044
Fjöður HU 90 Handfæri 410
Garpur HU 58 Handfæri 1.010
Geiri HU Handfæri 1.666
Guðrún R. HU 162 Handfæri 2.519
Gyðjan HU 44 Handfæri 2.168
Hafdís HU Handfæri 1.522
Hafsteinn Handfæri 456
Húni HU 62 Þorskanet 2.226
Jenný HU 40 Handfæri 782
Lukka EA 777 Handfæri 939
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 1.285
Ólafur Magnússon Grásleppunet 2.126
Skalli HU 33 Handfæri 557
Slyngur EA 74 Handfæri 2.352
Smári HU 7 Handfæri 1.538
Stella GK 23 Landb. lína 12.699
Svalur HU 124 Handfæri 2.096
Sæunn HU 30 Handfæri 2.592
Víðir EA 423 Handfæri 2.046
Víðir ÞH 210 Handfæri 1.084
Ölver ÓF 2 Handfæri 1.807
Alls á Skagaströnd 97.542
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Grásleppunet 2.288
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 11.755
Fannar SK 11 Handfæri 385
Gammur II SK 120 Grásleppunet 1.739
Gammur SK 12 Þorskfisknet 419
Hafey SK 10 Handfæri 1.077
Helga Guðm. SK 23 Handfæri 784
Klakkur SK 5 Botnvarpa 126.368
Kristín SK 77 Handfæri 2.621
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 353
Maró SK 33 Handfæri 972
Málmey SK 1 Botnvarpa 178.086
Már SK 90 Handfæri 1.798
Óskar SK 13 Handfæri 614
Vinur SK 22 Handfæri 765
Ösp SK 135 Handfæri 212
Alls á Sauðárkróki 330.236
HOFSÓS
Ásmundur SK 132 Landb.lína 3.611
Binni EA 108 Grásleppunet 3.466
Geisli SK 66 Handfæri 58
Gjávík SK 20 Handfæri 121
Hóley SK 132 Grásleppunet 8.986
Skáley SK 32 Handfæri 1.290
Von SK 21 Handfæri 1.742
Samtals á Hofsósi 19.274
„Það er komin feiknargóð
stemning fyrir þessu“
Undirbúningur stendur nú sem
hæst fyrir Landsmót hesta-
manna, sem verður haldið á
Hólum í Hjaltadal dagana 27.
júní til 3. júlí, en í ár eru liðin 50
ár frá síðasta Landsmóti þar.
Þrátt fyrir að mótshaldið þar eigi
sér stuttan aðdraganda, eftir að
til stóð að færa Landsmótið frá
Vindheimamelum og halda það
syðra, hefur undirbúningur
gengið með ágætum og allt
stefnir í skemmtilegt og sterkt
mót. Blaðamaður hitti formann
Landssambands hestamanna-
félaga (LH), Lárus Ástmar Hann-
esson, þegar hann staddur í
Skagafirði vegna kynningar-
funda sl. fimmtudag, og spurði
hann út í mótið framundan.
Lárus er jafnframt formaður
stjórnar Landsmót ehf., sem er
framkvæmdaaðili Landsmóts
hestamanna og er að tveimur
þriðju í eigu LH en einum þriðja í
eigu Bændasamtaka Íslands.
Reksturinn í ár skiptist svo á milli
Landsmóts ehf. og Gullhyls.
Framkvæmdastjóri Landsmótsins
er Áskell Heiðar Ásgeirsson. „Það
Séð yfir keppnissvæðið á Hólum. MYND: ÓAB
var mjög mikil lukka að við skyldum
ráða hann og einnig að við skyldum
ráða framkvæmdastjóra sem er
staddur hér. Þetta hefði aldrei
gengið upp, ef menn hefðu farið þá
leið sem hefur verið farin, að vera
með framkvæmdastjóra sem er
staddur á skrifstofunni í Reykjavík,“
segir Lárus og útskýrir að allt í
kringum þetta mót sé óvanalegt
þar sem ákvörðunin um stað-
setninguna var tekið með stuttum
fyrirvara. „Hún var tekin af bjartsýni
og kjarki og það þurfti að gera svo
miklu meira á þessum tíma heldur
en nokkurn tíma fyrir Landsmót.“
Lárus segir að þrátt fyrir þetta sé
undirbúningsvinnan að gerast á
mettíma og farið að sjá fyrir endann
á henni. „Við erum komin með
yfirsýn yfir þetta en eigum eftir að
ganga fram af brúninni hinu megin
og sjá útkomuna.“ Hann segir
jafnframt að góð sátt hafi náðst um
Landsmótsstaðinn eftir að ákvörð-
unin var tekin. Síðasta haust var
haldin ráðstefna á vegum LH um
Landsmót og þar kom fram sú
afstaða að Landsmót ættu ekki öll
að vera eins, heldur gæti hver
mótsstaður sett sinn blæ á mótið.
Einnig var lögð áhersla á að reyna
að stytta mótin og því verður nú
endað á laugardegi. „Það verður
Spjallað við Lárus Á. Hannesson, formann LH, um undirbúning Landsmóts mjög skemmtilegt að enda mótið á
björtu sumarkvöldi í 15 stiga hita á
Hólum í Hjaltadal,“ segir Lárus
brosandi og bætir því við, aðspurður
um hvort hann lofi góðu veðri, að
ríkjandi vindátt verði „skagfirskur
söngblær.“
Þegar hér er komið sögu eru
þrjár vikur í mótið og segir Lárus að
óhjákvæmilega verði mesta keyrsl-
an hvað undirbúninginn varðar
síðustu vikuna. „Þessi stærri atriði
eru bara á góðum stað og síðan eru
það þessi praktísku atriði, frágangur
á svæðinu og slík handavinna, sem
eru eftir. En við erum komin með
svæðið á þann stað sem önnur
Landsmótssvæði eru oft tveimur
árum áður. Sú vinna sem eftir er
gerist ekki neitt fyrr, hún er alltaf
unnin í restina,“ segir hann.
Sjálfur hefur Lárus komið að
Landsmótum sem eftirlitsdómari í
gæðingakeppni þrjú eða fjögur
síðustu Landsmót og dómari nokkur
ár þar á undan. „Ég hef aldrei komið
svona beint að undirbúningi Lands-
móts, en það er eiginlega það eina
sem mér finnst slæmt við að vera í
þessu hlutverki, að það hefur verið
svo gaman að dæma. Þetta eru
frábærir hestar og frábært teymi að
dæma og mikil stemning við það.
Það lítur út fyrir að þetta verði alveg
gríðarlega sterkt mót, bæði kynbóta-
hrossin og gæðingakeppnin og það
er komin alveg feiknarlega stemning
fyrir þessu.“
Lárus segir að forsala miða hafi
farið mjög vel af stað og miðað við
stöðu hennar séu um 25% erlendir
gestir. „Ég held að Landsmótsgestir
eigi von á skemmtilegum viðburði.
Núna eru þessir hestar sem við
sjáum á Landsmóti miklu meira í
sviðsljósinu. Því þurfum við að gera
þetta að meiri viðburði og búa til
þetta andrúmsloft sem á að ein-
kenna hestamennskuna, léttleika,
stemningu og fjör,“ segir hann.
Boðið verður upp á margvíslega
afþreyingu, einnig fyrir fjölskyldu-
meðlimi sem fylgja með án þess að
hafa endilega mikinn áhuga á
hestamennsku. Til að mynda verður
hægt að horfa á EM á risaskjá og
skemmtikraftar verða á svæðinu
sem stökkva inn þegar á þarf að
halda, hvar sem er og hvenær sem
er á svæðinu. Þá verði á svæðinu
hornsteinar úr héraði eins og
Karlakórinn Heimir og Geirmundur,
sem skemmt hafa hestamönnum
býsna lengi. „Mín von er sú að
þarna verði ofsaleg stemning á
góðu móti. Völlurinn býður upp á
það, þetta er eini völlurinn á
landinu, fyrir utan svæðið hjá Spretti
þar sem ekki hefur verið haldinn
svona stór viðburður ennþá, þar
sem áhorfendamanirnar eru nánast
allan hringinn og fjörið verður í
miðjunni. Svo endar þetta á góðri
skemmtun á laugardagskvöldinu og
allir fara glaðir heim á sunnudegi,
eða bara fara ekki neitt,“ segir Lárus
Ástmar að lokum. /KSE