Feykir - 08.06.2016, Síða 8
8 22/2016
Hilmar Sverrisson / aðallega hljómborð
Það bara gerðist eitthvað!
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Hilmar Sverrisson (Himmi Sverris) hefur víða
komið við í músíkinni, enda telur hann það vera
helsta afrek sitt í tónlistinni að vera á lífi og
hafa getað haft tónlist sem aðalatvinnu síðustu
30-35 ár og fengið að starfa með flestum bestu
tónlistarmönnum landsins. Himmi fæddist á
Króknum árið sem rokkið varð til (1956), ólst upp
í Viðvík til átta ára aldurs en flutti þá á Krókinn
og bjó þar ansi lengi. Kona hans er Vestur-
Húnvetningurinn Jenný Ragnarsdóttir og búa þau
nú í Kópavogi.
Hljóðfæri: Aðallega ýmiskonar hljómborð. Helst
píanó í dag, Hammond hérna áður meðan ég nennti
að bera það. Annars hef ég verið bassaleikari,
gítarleikari, trommari og harmonikuleikari í böndum.
Ég hef aldrei þolað neitt sem heitir synthesizer, þar
set ég mörkin. Syntinn var allsráðandi í "80 og
einhvernvegin var ég ekki að fíla
það tímabil.
Hvaða lag varstu að hlusta á?
Núna... Lets Face the Music and
Dance með Diana Krall.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Tímabilið alveg fram að diskó-
inu, eftir það varð allt eitthvað
svo svart/hvítt músíklega.
Reyndar margt gott að gerast í
dag og frábærir einstaklingar að
koma fram til dæmis hér á landi
og er það mikið Tónlistarskóla
FÍH að þakka.
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Gott proggrokk gamalt og nýtt. Er til dæmis mjög
stoltur af því sem sonur minn er að gera sem
bassaleikari í Agent Fresco. Það virkar sem einskonar
blanda af allskonar proggi sem ég hlustaði mikið á.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili?
Það var eiginlega aldrei þögn, foreldrar mínir spiluðu
plötur í stofunni, harmonikutónlist, óperur, kóra og
eldri dægurlög og bý ég vel af þeirri reynslu.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/
niðurhalið sem þú keyptir þér? Man það nú ekki
en fyrsta svona alvöruplatan, að mér fannst, sem ég
keypti var Dinosaur Swamps með hljómsveitinni The
Flock. Hún var búin að vera marga mánuði til sölu hjá
Adda Blöndal og Mæju í gömlu bókabúðinni. Síðan
komu plötur með Santana, Yes, Jethro Tull og fleirum.
Svakalega var gaman – alltaf nýtt frábært efni. Þó
skömm sé að þá man ég ekki eftir að hafa keypt
nema þrjá íslenskar plötur um æfina. Magic Key með
Náttúru, Whats Hidden
There með Svanfríði og
Lifun með Trúbrot.
Hvaða græjur varstu þá
með? Fékk mér dýrindis
Dúal hjá Itta sem mér
fannst alltaf svolítið lint
sound úr og fékk mér
svo Nordmende græjur
sem blöstuðu niður
allan Öldustíg. Ég bjó á
Hólavegi 20.
Hver var fyrsta platan
sem þú óskaðir þér í
jólagjöf eða fyrsta lagið
sem þú mannst eftir að
hafa fílað í botn? Fékk aldrei plötu í jólagjöf, held ég.
En fyrstu lögin voru If I Fell og Things We Said Today
af A Hard Day's Night plötu Bítlanna. Eftir það var
bara ekki aftur snúið. Ég meira að segja man hvernig
veður var, hvar ég var staddur í íbúðinni heima og
hvaða mat mamma var að elda þegar ég heyrði fyrst
í Bítlunum, þó án þess að hafa hugmynd um hverjir
þetta voru. Það bara gerðist eitthvað!
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Það eru
sérstaklega fjögur lög: Bohemian Rhapsody, Smoke
on the Water, Stairway to Heaven og Hotel California.
Allt mjög góð lög – bara eitthvað svona overdós. Ef
maður kemur inn í Guitar Center í Ameríkunni þá er
gjarna listi upp á vegg þar sem stendur EKKI spila
þessi u.þ.b. 10 lög og merkilegt nokk þessi lög eru öll
á þessum lista. Þessi listi er til að vernda geðheilsu
afgreiðslumanna.
Uppáhalds Júróvisjónlagið? Birds með Anouk.
Annars er varla hægt að finna annan eins Júróvision
skúnk eins og mig. Er jafnvel til í að fara að skúra
frekar en þurfa að fylgjast með júró. Ég sagði JAFNVEL
að skúra. En þá bara voðalega lítið gólf.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu
hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Fengi
einhvern annan til að velja. Ég hef aldrei verið góður
discotekari. Ekki viss um að Gentle Giant eða King
Crimson kæmi neinum öðrum en mér í fíling.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-dagsmorgni,
hvað viltu helst heyra? Close to the Edge með Yes
nú eða plötuna Tapestry með Carol King.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum
og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða
tónleika og hvern tækirðu með þér? Tæki konuna
mína með, en hvert og til að heyra hvað veit ég ekki.
Jú, kannski á tónleika með Alison Krauss og bandinu
hennar, helst í USA.
Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar
þú varst kominn með bílprófið? Kasettum með
hljómsveitunum Marhall Tucker Band, The Band, Yes
og Traffic.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera
eða haft mikil áhrif á þig? Hefur aldrei dreymt um
að vera annar en ég er. Pabbi var harmonikuleikari
og hafði gríðarleg áhrif á mig sem ég bý að alla tíð.
Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur
verið út? Sennilega Close to the Edge með Yes og
íslensk Magic Key með Náttúru.
toppurinn
Eins og er er ég með playlista
með Diana Krall sem er í miklu
uppáhaldi hjá mér:
Devil May Care.
Popsicle Toes
Í ve Got You Under My Skin
The Best Thing For You
Do It Again
Lets Face the Music and Dance
DIANA KRALL
Það er bara verst hvað hún
Diana mín á leiðinlegan mann
(Elvis Costello).
Flóttamenn, innflytjendur
og nýjungar í mennta-
málum í brennidepli
Vinabæjarmót í Skagafirði
Þriggja daga vinabæjarmót var
haldið í Skagafirði í síðustu
viku. Mótið sóttu um 30
manns frá hinum Norðurlönd-
unum og komu gestirnir í
Skagafjörð á mánudagskvöldið
í síðustu viku. Vinabæirnir
sem um ræðir eru Espoo í
Finnlandi, Köge í Danmörku,
Kristinstad í Svíþjóð og
Kongsberg í Noregi. Mótið
stóð til fimmtudags og var
dagskráin þétt skipuð.
Mótið hófst á þriðjudagsmorgun
í Húsi frítímans, þar sem
Sigríður Svavarsdóttir forseti
sveitarstjórnar bauð gesti vel-
komna. Síðan voru flutt erindi
um nýsköpun í menntun og
ungmennaráð og umræður á
eftir milli þeirra þjóða sem eru
virkir þátttakendur í samstarf-
inu. Eftir hádegisverð á Kaffi
Krók var farið í Hóla, þar sem
gestirnir dvöldu fram eftir degi
og síðan snæddur kvöldverður á
Drangey restaurant.
Á miðvikudaginn funduðu
bæjarstjórarnir í Árskóla kl. 9 og
héldu í kjölfarið stuttan blaða-
mannafund. Þar kom m.a. fram
að vinabæirnir gætu lært mikið
hver af öðrum, þó þeir væru
mjög ólíkir að stærð þá ættu þeir
ýmislegt sameiginlegt, mun
meira en sýndist í fyrstu. Allir
sögðust fulltrúarnir hafa lært
eitthvað gagnlegt í ferðinni sem
þeir tækju með sér til baka.
Stefán Vagn Stefánsson, for-
maður Byggðaráðs Sveitarfél-
agsins Skagafjarðar, sagði jafn-
framt að samstarfið væri ekki
síst gagnlegt fyrir Skagafjörð
sem gæti mikið lært af hinum
bæjunum þó þeir væru um-
talsvert fjölmennari.
Þaðan var síðan haldið í
Verið og m.a. flutt erindi um
móttöku flóttamanna og inn-
flytjenda. Þangað mætti sérfræð-
ingur í málefnum innflytjenda
hjá Velferðarráðuneytinu. Eftir
hádegi var farið að Reykjum á
Reykjaströnd þar sem gestum
bauðst að sigla í Drangey eða
fara útsýnisferð um fjörðinn og
ylja sér í Grettislaug á eftir. Að
því loknu var hátíðarkvöld-
verður í Frímúrarasalnum.
Nokkrir makar voru með í för og
var ýmislegt í boði fyrir þá
meðan bæjar- og sveitarstjórnar-
menn funduðu. Skoðuðu þeir
m.a. gamla bæinn í Glaumbæ,
fóru á skotsvæði Ósmanns og
skoðuðu sig um í Hofsósi og
fóru í sund þar. Gestirnir létu vel
af dvöl sinni í Skagafirði, sögðu
náttúruna stórfenglega og mót-
tökurnar góðar. Vinabæjarmótin
eru haldin árlega, til skiptis í
bæjunum fimm. Þá er einnig
hefð fyrir öðrum samskiptum
þeirra á milli, svo sem með
heimsóknum grunnskólanem-
enda. /KSELagt upp í Drangeyjarferð. MYND: KSE
Frá vinstri: Wenche Grinderud frá Kongsberg, Stefán Vagn Stefánsson frá Svf. Skagafirði, Jouni J. Sarkijarvi frá Espoo, Sigríður
Svavarsdóttir frá Svf. Skagafirði, Dora Olsen frá Köge (fyrir framan Sirrý) Henrik Laybourn frá Köge, Heléne Fritzon frá Kristianstad
(fyrir fram Henrik) Kjell Gunnar Hoff frá Kongsberg og Christel Jönsson frá Kristianstad. MYND: KSE