Feykir - 10.05.2012, Qupperneq 3
18/2012 Feykir 3
Kynntu þér hvað fólkið í landinu
hefur að segja um frumvörpin:
Landsbankinn áætlar að
fyrirtæki með samtals yfir
4000 starfsmenn fari í þrot*
*Samkvæmt áliti Landsbankans til atvinnuveganefndar
Alþingis á frumvörpum um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Ein af fjölmörgum góðum ástæðum fyrir nauðsyn þess
að eiga samráð við aðila í sjávarútvegi og vanda til verka
við breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Kynntu þér málið.
Queen og
Bítlatónlist
Karlakór Dalvíkur með rokktónleika í Miðgarði
Laugardagskvöldið 19. maí
nk. verður söngskemmtun í
menningarhúsinu Miðgarði
þar sem Karlakór Dalvíkur
og Matti Matt syngja helstu
lög hljómsveitanna The
Beatles og Queen.
Stjórnandi karlakórsins
Guðmundur Óli Gunnarssson
hefur útsett lögin og kynnir
hann jafnframt dagskrána þar
sem hann fléttar inn í kynn-
inguna ýmsum fróðleiksmol-
um sem tengjast þessum vin-
sælustu hljómsveitum allra
tíma.
Hljómsveitin sem spilar
með í Miðgarði er skipuð
valinkunnum hljóðfæraleikur-
um. Daníel Þorsteinsson leikur
á píanó, Þórður Árnason gítar,
Gunnlaugur Helgason bassa
og Halli Gulli á trommur.
Tónleikarnir eru þeir
Karlakór Dalvíkur. Mynd: Ellert Þ. Júlíusson
fjórtándu þar sem þessi dag-
skrá er flutt og hafa yfir 3.000
áheyrendur komið á tónleika
sem haldnir hafa verið í
Salnum í Kópavogi, Menn-
ingarhúsinu Hofi Akureyri og
Menningarhúsinu Bergi á
Dalvík. Í byrjun júní fer
Karlakór Dalvíkur og allur
þessi hópur til Færeyja þar sem
tónleikar verða í Norður-
landahúsinu í Þórshöfn. /aðsent
Minningarnar halda áfram að streyma.
Nú eru það árin 1965 og 1966 sem verða rifjuð upp.
Sögusviðið er Skagafjörður – dægurlögin, tíðarandinn og sögur af fólkinu.
GAMLA DAGA III
MANSTU
Skemmtun í tali og tónum
Sýningar verða sem hér segir:
Bifröst á Sauðárkróki 15. maí 2012 kl. 20:30
Bifröst á Sauðárkróki 17. maí 2012 kl. 20:30
Bifröst á Sauðárkróki 18. maí 2012 kl. 20:30
Höfðaborg Hofsósi 20. maí 2012 kl. 20:30
Sögumaður: Björn Björnsson
Söngvarar: Dagbjört Jóhannesdóttir
Róbert Óttarsson
Aðgangseyrir kr. 2.000.-
Miðapantanir í síma 453 5304, 891 6120 og 868 1875.
Ath. kort ekki tekin