Feykir - 10.05.2012, Síða 11
18/2012 Feykir 11
Feykir spyr...
Hvað gerðir þú
skemmtilegt í
vetur?
[ spurt Sólgarðaskóla
í Fljótum ]
KONRÁÐ JÓNSSON
-Vera í snjónum og líka gaman
þegar lömbin koma.
EGILL RÚNAR
HALLDÓRSSON
-Fara í bústað og þegar
jólafríið var og jólin.
SKARPHÉÐINN JÓNSSON
-Fór upp á heiði að renna mér
á sleða og bretti.
ÓFEIGUR NÚMI
HALLDÓRSSON
-Mjög margt t.d. fara í bústað
og renna mér á sleða og
skautum.Fe
yk
ile
g
a
f
lo
tt
a
af
þr
e
yi
ng
ar
ho
rn
ið
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
á skilið að heyra einn góðann!
Spakmæli vikunnar
Hve blásnautt er hjarta sem einskis saknar.
- Einar Benediktsson
Snæhjörtur Oddólfur varð landsfrægur þegar hann
greip gæsina. Gæsin hefði nú frekar kosið að hitta
Stegg.
Hinrik Már Jónsson
Örlaga örsögur
Ótrúlegt
(en kannski satt)
Tom Cruise átti í miklum námserfiðleikum í skóla
vegna lesblindu. Stafirnir á blaðsíðunni urðu að
merkingarlausu skrýtnu kroti þegar hann reyndi
að lesa. Þá fer hinn heimsfrægi þáttastjórnandi
Jay Leno aldrei dult með lesblindu sína.
Sudoku
Hláturinn lengir lífið
Leiklist :: Guðrún Brynleifsdóttir skrifar
1. maí 2012
Tveir tvöfaldir
Leikfélag Sauðárkróks
Leikstjóri: Ingrid Jónsdóttir
Í upphafi Sæluviku 29. apríl
frumsýndi Leikfélag Sauðár-
króks leikverkið Tveir tvöfaldir
eftir Ray Cooney, í þýðingu
Árna Ibsen. Ingrid Jónsdóttir
leikstýrði verkinu og er einnig
hönnuður sviðsmyndar.
Hönnun lýsingar var í höndum
Guðbrandar Ægis
Ásbjörnssonar.
Tveir tvöfaldir var frumflutt af
Þjóðleikhúsinu árið 1998 og naut
talsverða vinsælda. Ray Cooney er
einn þekktasti farsahöfundur sam-
tímans en Leikfélag Sauðárkróks
hefur sett upp fjögur leikrit eftir
höfundinn. Tveir tvöfaldir, Með
vífið í lúkunum, Viltu finna
milljón og Eltu mig, félagi.
Leikritið Tveir tvöfaldir er
fjörugur, skemmtilegur og fynd-
inn farsi sem segir frá alþingis-
manninum Ormi Karlssyni og
aðstoðarmanni hans Hreini
Lúðvík Bjarnasyni. Ormur dvelur
á hótel Höll með Pálínu eiginkonu
sinni og skipuleggur leynilegan
ástarfund með viðhaldi sínu á
sama hóteli. Hreinn aðstoðar-
maður hans fær það hlutverk að
panta annað hótelherbergi fyrir
voru ekki nægilega skýrmæltir,
eins og þeir væru aðeins of mikið
að flýta sér.
Leikmyndin var eins og í
venjulegum farsa margar hurðir
til að skella og því ekkert út á það
að setja. Liturinn á hurðum var
bjartur og góð andstæða við
svörtu tjöldin. Það var gaman að
sjá hvernig notast var við það sem
áður voru svartir veggir en voru
síðan fjarlægðir og svart holrími
myndaðist sem var síðan lýst upp
þegar sýnd voru atvik sem áttu sér
stað fyrir utan hótelherbergin.
Auk þess er líka alltaf skemmtilegt
þegar að leikstjórar velja þá leið að
nýta meira en sviðið sem
sýningarstað, þegar að maður
þarf að sveigja hausinn í aðrar
áttir til að sjá leikarana.
Leikmunum var haldið í lág-
marki en það sem notast var við
var allt í stíl eins og er á flestum
hótelum. Í heildina voru förðun
og búningaval til fyrirmyndar þó
að hugsanlega hefði mátt
samhæfa klæðnað alþingismanns
og eiginkonu, hafa þann klæðnað
í stíl.
Tveir tvöfaldir er frábært
skemmtun sem enginn ætti að
láta framhjá sér fara. Með hverri
sýningu munu leikararnir ná
ennþá meiri hraða og sýningin
stefnir í að verða enn betri.
Leikarar og aðrir starfsmenn
Leikfélags Sauðárkróks eiga hrós
skilið fyrir glæsilega og
skemmtilega sýningu.
Til hamingju Leikfélag
Sauðárkróks. /GB
Orm á öðru nafni. Plön Orms fara
verulega úr böndunum og
flækjustigið verður mikið.
Með helstu hlutverk fara
Guðbrandur J. Guðbrandsson,
Sonja Hafsteinsdóttir og Árni
Jónsson. Öll stóðu þau sig
frábærlega en það er ekki annað
hægt en að hrósa Árna Jónssyni
sérstaklega en hann átti stórleik og
var sannarlega í sínu besta
hlutverki til þessa.
Guðný H. Axelsdóttir, Árni
Rúnar Guðmundsson, Sigurlaug
Dóra Ingimundardóttir, Agnes
Skúladóttir, Bergþór Smári
Pálmason og Sigríður Ásta Svans-
dóttir fóru með smærri hlutverk í
sýningunni og stóðu sig öll með
prýði og óhætt er að segja að það
hafi verið mikill leikur í þeim.
Allir leikararnir héldu takti og
voru samtaka, innkomur voru
góðar þannig að flæðið í
sýningunni var þétt og gott.
Leikararnir héldu allir karakter
allan tímann og voru mjög
trúverðug í sínum hlutverkum.
Líkamsbeiting og svipbrigði voru
oft á tíðum sprenghlægileg.
Ingrid hefur svo sannarlega
náð að virkja alla leikarana þannig
að leikgleðin skein frá þeim og
þau skiluðu verkinu vel frá sér.
Þessi leikgleði smitaðist til
áhorfandanna, sem skemmtu sér
konunglega með tilheyrandi
hlátri. En það mátti sjá mörg
brosandi andlit þegar áhorfendur
gengu út eftir sýninguna.
Það er mikill hraði í sýning-
unni og það kom fyrir að leikarar
Leikurum Leikfélags Sauðárkróks fagnað að lokinni sýningu.