Feykir - 14.06.2012, Qupperneq 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 4
Fyrirtæki vikunnar er
Markvert ehf.
Gott teymi
hjá Markvert
BLS. 9
Barnalán á Brandsstöðum
í Blöndudal
Ekkert jafn
mikilvægt og
góð samheldin
fjölskylda
Grunnskólinn austan Vatna
Vann að
umhverfis-
málum í vetur
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
23
TBL
14. júní 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Golfklúbbur Sauðárkróks
Mikið um að vera
hjá unga fólkinu
Barna og unglingastarf Golfklúbbs
Sauðárkróks er nú komið á fulla ferð.
Golfskólinn er starfræktur alla daga
vikunnar frá kl. 10 á morgnana.
Klúbburinn hefur ráðið til sín danskan
golfkennara, Thomas Olsen og hóf
hann störf í lok maí.
Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröð
barna og unglinga var haldið á Dalvík
sunnudaginn 10. júní sl. Frá Golf-
klúbbi Sauðárkróks mættu á þetta
mót; Arnar Geir Hjartarson, Þröstur
Kárason, Atli Freyr Rafnsson, Hlynur
Freyr Einarsson, Jónas Már Kristjáns-
son, Elvar Ingi Hjartarson, Pálmi
Þórsson, Hákon Freyr Rafnsson og
Viktor Kárason. Hluti af hópnum
hafði síðan tekið þátt í golfævintýri
þeirra Dalvíkinga frá föstudeginum.
Að venju stóðu keppendur frá klúbbn-
um sig með ágætum. Þröstur Kárason
fékk nándarverðlaun í flokki 17-18 ára
og Arnar Geir varð í öðru sæti í vipp-
keppni í sama flokki. Viktor Kárason
varð í 2. sæti vippkeppni í flokki
byrjenda.
Í golfmótinu sjálfu í 17-18 ára
flokknum varð Arnar Geir í öðru sæti
á 78 höggum. Í 15-16 ára flokknum
varð Hlynur Freyr í 3. sæti ásamt
tveimur öðrum keppendum á 81
höggi en tapaði í bráðabana. Í flokki
14 ára og yngri varð Elvar Ingi í 2. sæti
á 79 höggum og að lokum varð Viktor
Kárason í 2. sæti í flokki byrjenda á 48
höggum (9 holur). Það voru skemmti-
legir dagar sem keppendur áttu í
tengslum við golfævintýrið og mótið
og hópurinn hélt glaður heim að því
loknu. Myndir frá mótinu er hægt að
sjá á bloggsíðunni www.gss.blog.is.
Á morgun föstudaginn 15. júní
ætla börn og unglingar í klúbbnum að
vera með golfmaraþon þar sem þau
ætla að spila a.m.k. 1000 holur á
Hlíðarendavelli. Allir eru velkomnir til
að fylgjast með þessum viðburði. /PF
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
BenQ
RÉTTI SKJÁRINN FYRIR ÞIG
Glæsilegir FULL HD skjáir frá BenQ
með 1920x1080 upplausn
ásamt SensEye tækni sem tryggir
ótrúlega skerpu og litadýpt.
Jónas Már Kristjánsson, Elvar Ingi Hjartarson, Þröstur Kárason, Arnar Geir Hjartarson, Thomas Olsen, Atli Freyr Rafnsson, Rafn Ingi Rafnsson og Hlynur Freyr Einarsson.