Feykir - 14.06.2012, Page 5
23/2012 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
Knattspyrna : 1. deild: KA - Tindastóll 2-2
Sanngjarnt jafntefli
Tindastóll náði ágætum
úrslitum þegar þeir skruppu
norður yfir Öxnadalsheiði sl.
laugardag og kræktu í
jafntefli gegn liði KA á
Akureyrarvelli. Fjörið var
mest í fyrri hálfleik en þá
voru öll fjögur mörk leiksins
gerð. Lokatölur 2-2.
Fyrri hálfleikur var ljómandi
vel spilaður og Stólarnir sterkari
aðilinn ef eitthvað var. Ben
Everson kom Tindastólsmönn-
um yfir eftir 11 mínútur, lyfti
boltanum laglega yfir mark-
mann KA eftir að hafa fengið
sendingu inn fyrir vörnina.
Brian Gilmour var snöggur að
jafna metin og síðan komust
heimamenn yfir á 28. mínútu
með marki Ævars Inga Jóhann-
essonar sem kom boltanum í
markið eftir að Seb Furness
hafði varið vel skot David Distl.
En rétt áður en dómarinn
flautaði til leikhlés jafnaði Ingvi
Hrannar Ómarsson eftir
stungusendingu frá Max Toul-
oute, en Max gerði mikinn usla
í vörn KA í leiknum.
Ekkert var skorað í síðari
hálfleik og liðin skiptu því
stigunum bróðurlega á milli sín.
/ÓAB
Góður árangur hjá UMSS
Landsmót 50+
Annað Landsmót UMFÍ fyrir
50 ára og eldri fór fram um
helgina í Mosfellsbæ og var
þátttakan góð eða um 800
skráningar. Keppendur frá
Ungmennasambandi
Skagafjarðar náðu góðum
árangri og þeirra á meðal var
Valgeir Kárason en hann vann
til fimm gullverðlauna í
sundgreinum.
Sundkapparnir unnu alls til
sjö gullverðlauna, þriggja silfur-
verðlauna og þriggja bronsverð-
launa.
Valgeir Kárason vann fimm
gullverðlaun
Helga Þórðardóttir fékk eitt gull
og tvö silfur
Hans Birgir Friðriksson fékk eitt
silfur og tvö brons
Steinunn Hjartardóttir fékk eitt
brons
UMSS sveitin vann síðan
gullverðlaun í boðsundi.
Í frjálsum íþróttum keppti Karl
Lúðvíksson og náði í tvö gull og
fjögur silfur. Fyrsta sæti í
langstökki og hástökki, 2. sæti í
100m, stangarstökki, spjótkasti
og kringlukasti. Karl endaði
síðan í 5. sæti í kúluvarpi.
Tvær sveitir kepptu fyrir
UMSS í bridds og stóðu þær sig
vel þó þær hafii ekki náð á
verðlaunapall. /PF
Frábær árangur á Opna KS
Golfklúbbur Sauðárkróks
Opna KS mótið fór fram
laugardaginn 9. júní í
blíðskapar veðri. „Alls tóku
tæplega 50 kylfingar þátt í
mótinu sem tókst hið besta
og var árangurinn frábær hjá
mörgum kylfingum,“ segir á
heimasíðu Golfklúbbs
Sauðárkróks.
Í fyrsta sæti í mótinu urðu
þau Árný Árnadóttir og Rafn
Ingi Rafnsson. Samkvæmt
heimasíðu GSS komu þau inn á
ótrúlega góðu skori eða 67
höggum brúttó, 5 höggum undir
pari, en með forgjöf var skorið 63
högg. Í öðru sæti voru þau Ingvi
Þór Óskarsson og Arnar Geir
Hjartarson sem léku á 68
höggum eða 65 með forgjöf.
Í þriðja sæti urðu þau
Dagbjört Rós Hermundardóttir
og Ásmundur Baldvinsson á 67
höggum með forgjöf. Þau urðu
jöfn Ingibjörgu Guðjónsdóttur
og Birni Sigurðssyni, Þóri
Þórissyni og Auði Dúadóttur úr
GA og Brynjari Guðmundssyni
og Þorbergi Ólafssyni. Þau
síðarnefndu voru með heldur
lakara skor á seinni 9 holunum
og hlutu þau Dagbjört og
Ásmundur því þriðja sætið,
samkvæmt heimasíðu GSS.
Mótið var spilað með fyrir-
komulaginu Texas Scramble en
þá spila tveir og tveir saman í liði
og velja betra högg í hvert sinn
sem þeir slá. /BÞ
Nikkurnar þandar á Fjölskylduhátíð í Húnaveri
Tvöfalt afmælis-
hóf hjá harmoniku-
unnendum
Félag harmonikuunnenda í Skagafirði F.H.S. var stofnað 21.
febrúar árið 1992, það er því 20 ára um þessar mundir. Þess
verður minnst á Fjölskylduhátíð harmonikuunnenda, sem
verður haldin að venju í Húnaveri um Jónsmessuhelgina 22.
– 24. júní nk. en þetta verður í 15. skiptið sem þessi hátíð er
haldin í Húnaveri.
Að sögn Gunnars Ágústssonar
formanns F.H.S. hefur á
liðnum 14 árum verið samstarf
með H.U.H. (Húnvetningum)
með hátíðina, en vegna
breyttra aðstæðna hjá þeim
stendur F.H.S. eitt að þessari
hátíð nú. Hátíðin verður með
svipuðum hætti og verið hefur.
Dansleikur á föstudagskvöld
með Geirmundi og Jóa, afmæl-
isskemmtidagskrá og kaffi-
veitingar á laugardeginum
og svo dansleikur á laugar-
dagskvöld þar sem hljómsveitir
félagsins leika fyrir dansi. Nú
er rakið tilefni fyrir unnendur
þessarar vinsælu tónlistar að
hittast hress og kát að vanda,
björtustu helgi sumarsins.
Þar sem þetta er 20 ára
afmæli F.H.S. og í 15. skiptið
sem hátíðin er haldin í
Húnaveri þótti við hæfi að
halda upp á tvöfalt afmælisár.
Mun félagið því bjóða upp á
kaffiveitingar í tilefni áfangans
í Húnaveri á laugardeginum
að lokinni skemmtun og
hvetur Gunnar alla til að taka
daginn frá og skreppa í kaffi
og skemmtilega dagskrá.
Aðgangseyrir yfir helgina er
kr. 5.000,- frítt fyrir 12 ára og
yngri en á dansleik fyrir aðra
gesti kostar kr. 2.000,-
Harmonikuleikararnir Jón
og Stefán Miðhúsabræður,
munu stilla saman strengina
ásamt Guðmundi Ragnars-
syni bassaleikara og Kristjáni
Þ. Hansen trommuleikara.
Þeir leika svo undir hjá
söngvurunum Pétri og
Sigfúsi Álftagerðisbræðrum
en einnig leika þeir undir
hjá söngkonunni Ingunni
Kristjánsdóttur. Harmoniku-
leikarinn Einar Guðmunds-
son frá Akureyri kemur einnig
við sögu á þessum afmælis-
tónleikum.
Skemmtidagskráin hefst
klukkan 13:30 og er aðgangs-
eyrir kr. 1.500,- og verða
kaffiveitingar á eftir í boði
félagsins og að sjálfsögðu eru
allir velkomnir. /PF
Bræðurnir frá Miðhúsum Jón og Stefán í mikilli sveiflu fyrir örfáum árum en þeir munu þenja nikkurnar
af miklum móð á hátíðinni m.a. á laugardagsdansleiknum.
Kristján Þór Hansen, Hermann Jónsson, Elín Jóhannesdóttir og Snorri Jónsson í góðum gír í Húnaveri.
Þau þrjú fyrstnefndu munu spila fyrir dansi á laugardagskvöldi.
Keppendur UMSS í sundi. Frá vinstri: Soffía Káradóttir, Steinunn Hjartardóttir, Helga Þórðardóttir,
Valgeir Kárason og Hans Birgir Friðriksson. Mynd: Ásbjörn K.
Húnvetningurinn Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir keppti
á Evrópumóti ungmenna í
kraftlyftingum í Herning í
Danmörku í síðustu viku og
hreppti þar 5. sæti í -72 kg
flokki. Hún lyfti samtals
432,5 kg sem er Íslands-
met unglinga í hennar
þyngdarflokki.
Guðrún Gróa fékk
silfurverðlaun í bekkpressu
og var það hennar besti
árangur á mótinu. Þar lyfti
hún mest 112,5 kg sem er
nýtt Íslandsmet í bæði
opnum flokki og flokki
unglinga.
Guðrún Gróa lyfti 155
kg í hnébeygju og í rétt-
stöðu lyfti hún mest 160
kg. Hún reyndi við 167,5
kg, sem hefði fært henni
bronsverðlaun í saman-
lögðu, en tókst ekki. /BÞ
Evrópumót ungmenna
Guðrún Gróa
með silfur
Knattspyrna 3. deild
Tap hjá
Drangey
Drangey lék við ÍH í
Kópavogi en ekki höfðu
Drangeyjarjarlar erindi sem
erfiði, 3-1 tap staðreynd.
Ekkert mark var gert í
fyrri hálfleik en á sjö
mínútna kafla um miðjan
síðari hálfleik varð allt
vitlaust. Heimamenn í ÍH
komust yfir á 64. mín. en
Hilmar Þór Kárason jafn-
aði tveimur mínútum
síðar, mínútu eftir það
gerði leikmaður Drang-
eyjar sjálfsmark. Eiríkur
Kúld gerði síðan þriðja
mark heimamenna á 71.
mínútu og þar við sat. /ÓAB