Feykir - 16.08.2012, Blaðsíða 5
30/2012 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir
1. deild : ÍR-Tindastóll 0-4
Eftir lánleysi og erfiðan
leikmanna-skipta-glugga í júlí
náðu Tindastólsmenn að
hrista sig saman og vinna
góðan sigur á liði ÍR í
Breiðholtinu síðastliðið
fimmtudagskvöld. Bæði lið
höfðu átt í brasi í síðustu
leikjum, Stólarnir tapað
þremur leikjum með eins
marks mun á meðan ÍR-ingar
höfðu staðið fyrir
bílskúrsútsölu í vítateig
sínum. Þeir héldu henni
áfram þegar þeir mættu
Stólunum sem sigruðu 4-0.
Fyrri hálfleikur var bragð-
daufur en Tindastólsmenn voru
líklegri til afreka en ekki tókst
liðunum að skora. Í síðari
hálfleik hljóp á snærið hjá
gestunum. Max Touloute fékk
reyndar það sem af lýsingum má
dæma var eitthvað besta færi
sem sést hefur í fótboltaleik en
tókst víst að setja boltann í
hliðarnetið. Hann bætti fyrir
mistökin á 66. mínútu þegar
hann skilaði vítaspyrnu í mark
ÍR eftir að markvörður ÍR hafði
Stórsigur í Breiðholtinu
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Sigurbjörn Björnsson / rótari
Var í tónlistarlegu
uppeldi hjá
frændum sínum
Að þessu sinni er það
Sigurbjörn Björnsson, sem
svarar spurningum varðandi
tón-lyst. Sibbi er fæddur 1963
og alinn upp á Króknum þar
sem hann býr enn. Hann
segist vera hljóðfæraeigandi
en helstu afrek hans á
tónlistarsviðinu er þátttaka
í Lúðrasveit Tónlistaskóla
Sauðárkróks og Lúðrasveit
Sauðárkróks auk þess sem
hann var rótari hjá Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar og hjá
Magnúsi Kjartanssyni.
Uppáhalds tónlistartímabil?
1960 - 1980.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? Gott rokk og
góður blús.
Hvers konar tónlist var hlustað á
þínu heimili? Ég var í tónlistarlegu
uppeldi hjá frændum mínum á
Hólaveginum, Viðari og Hilmari
Sverrissonum. Þar var hlustað á allt
það nýjasta. Þetta er árin 1969-
1976.
Hvað var fyrsta platan/diskurinn/
kassettan/niðurhalið sem þú
keyptir þér? Það var kassetta með
Júdas sem heitir Júdas no1.
Hvaða græjur varstu þá með?
Hitashi kassettutæki sem við bræður
áttum [innsk. Sverrir og Pétur].
Hvað syngur þú helst í sturtunni?
Smoke on the Water.
Wham! eða Duran? Nei. Deep
Purple.
Uppáhalds Júróvisjónlagið (erlent
eða innlent eða bæði)? Waterloo
/ Sólarsamba.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? Good
Time Bad Time með Led Zeppelin.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? Climax Blues Band.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér? Ég færi til London á Clapton
í Royal Albert Hall á. Ætli ég myndi
ekki taka hana Báru mína með.
Hvaða tónlistarmann hefur þig
dreymt um að vera? Mig hefur
ekki dreymt um að vera neinn
tónlistamaður heldur hefur mig
langað að vera rótari hjá böndunum.
Ég kann það betur en að spila á
hljóðfæri. Það hefði til dæmis verið
gaman að fara einn túr með Led
Zeppeline eða Stones.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Á Íslandi
er það Lifun með Trúbroti en erlendis
White Album Bítlanna.
Sigurbjörn Björnsson og Guðbrandur Guðbrandsson stinga saman nefjum á VSOT í sumar.
brotið á Steven Beattie. Mark-
manninum var vísað af velli og
eftirleikurinn reyndist Stólunum
léttur því heimamenn lögðust
sjálfviljugir í gras við þetta
mótlæti.
Annað mark Stólanna gerði
nýjasta viðbótin við lið Tinda-
stóls, Colin Helmrick, með sinni
fyrstu snertingu eftir sendingu
frá Max. Atli Arnarsson gerði
þriðja markið á 81. mínútu eftir
laglegan undirbúning Benjamíns
Gunnlaugssonar. Steven Beattie
gerði síðan fjórða og síðasta
mark Stólanna á 92. mínútu eftir
klafs í teig heimamanna.
Sigurinn var afar mikilvægur
fyrir Tindastólsmenn en liðið
hefur í heildina leikið vel í sumar.
Stólarnir hafa gert næst flest
mörk liðanna í deildinni, 27, og
fengið á sig 22 og meðaltalið í
leikjum Tindastóls því u.þ.b. þrjú
og hálft mark í leik. Næsti leikur
er hér heima gegn KA í kvöld. 16.
ágúst kl. 19:00. /ÓAB
Loftur Páll Eiríksson hefur staðið fyrir sínu í vörninni í sumar. Hér er hann í leik gegn Haukum.
Golf : Kvennasveit Golfklúbbs Sauðárkróks
Sveitakeppni Golfsambands Íslands fór fram
nú um helgina og sendi Golfklúbbur
Sauðárkróks lið til keppni bæði í karla og
kvennaflokki.
Karlarnir fóru í Hveragerði og enduðu í 6 sæti
4. deildar eftir mikla baráttu við náttúruöflin þar
sem ofsarigning og rok setti mjög svip sinn á
keppnina.
Konurnar voru hins vegar í mun betra veðri á
Ólafsfirði, þar sem keppt var í höggleik við 7
aðrar sveitir. Niðurstaðan varð sú að sveit GSS
sigraði á 662 höggum. Sveit Golfklúbbsins Odds
í Garðabæ varð í öðru sæti á 665 höggum og
fylgdi GSS upp í fyrstu deild. í þriðja sæti varð
síðan sveit Golfklúbbsins Leynis á Akranesi á
675 höggum.
Sveit GSS skipuðu þær Árný Lilja Árnadóttir,
Dagbjört Hermundsdóttir, Ragnheiður Matt-
híasdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir og Sigríður
Eygló Unnarsdóttir. Konurnar spiluðu gott og
jafnt golf um helgina sem skilaði þeim þessum
frábæra árangri. /UI
Sigruðu í 2. deildinni
Kvennasveit GSS sigraði í Sveitakeppni Golfsambands Íslands
á Ólafsfirði.
Unglingaráð körfuknatt-
leiksdeildar stendur fyrir
körfuboltabúðum dagana
31. ágúst til 2. september
nk.
Tilgangur búðanna er að
hrista hópinn saman fyrir
tímabilið og hefja það með
stæl. Skráningarfrestur er til
27. ágúst.
Samkvæmt heimasíðu
Tindastóls verður Bárður
Eyþórsson yfirþjálfari búðanna
og honum til aðstoðar verða
þjálfarar körfuknattleiks-
deildar.
Nánari upplýsingar verður
að finna á Tindastóll.is undir
tenglinum “Körfuboltabúðir
2012. /Tindastóll.is
Körfuboltabúðir 31. ágúst – 2. september
Körfuboltinn af stað
Skagafjarðarrallið fór fram
síðustu helgina í júlí og voru
það Guðmundur Höskulds-
son og Ólafur Þór Ólafsson
á Subaru Impreza sem
komu fyrstir í mark, fóru
allar 12 sérleiðarnar á
1:17:26.
Mikill afföll urðu í rallinu,
sem tókst þó með miklum
ágætum, en aðeins 10 af 17
áhöfnum skiluðu sér í mark.
Heimamaðurinn Baldur
Haraldsson og Aðalsteinn
Símonarson urðu í öðru sæti,
47 sekúndum á eftir sigur-
vegurunum á tímanum 1:18:13
en þeir óku sömuleiðis Subaru
Impreza. Þriðju í mark voru
Jón Bjarni Hrólfsson og
Halldór Vilberg á 1:19:15 en
fararskjóti þeirra var Jeep
Cherokee.
Hægt er að nálgast úrslit í
Skagafjarðarrallinu á heima-
síðu Bílaklúbbs Skagafjarðar
sem hafði veg og vanda af
rallinu en það er sennilega eitt
það stærsta sem klúbburinn
hefur haldið. /ÓAB
Skagafjarðarrallið 2012
Guðmundur og Ólafur Þór fyrstir