Feykir - 06.09.2012, Síða 11
33/2012 Feykir 11
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
ætti skilið að fá hrós.
Spakmæli vikunnar
Sértu sjálfselskur. Vertu þá skynsamur
en ekki þröngsýnn í sjálfselsku þinni.
- Dalai Lama
Ótrúlegt en
kannski satt
Sudoku
Hildigeir Hugmar húð og handlæknir
var virtur í sínu fagi. Á læknaráðstefnu í
Udevalla í Svíþjóð hlaut hann mikið lof fyrir
erindi sitt um klíníska húðskiptimeðferð
á íslenskum krókódílamönnum með
strípihneigð.
Hinrik Már Jónsson
Örlaga örsögur
Hundar eru afar þefnæmir eins og flestir
vita og hafa sumir þeirra verið þjálfaðir til að
leita að týndu fólki og til að finna fíkniefni og
sprengiefni. Þefnæmi mannsins er aðeins
1/20 af þefnæmi hundsins.
Krossgáta
( BRAGÐLAUKARNIR ) berglindth@feykir.is
Sultur
Stútfullar af
vítamínum
úr íslenskri náttúru
Nú þykir með eindæmum góð berjatíð og er að margra mati
ómissandi að fara í berjamó þegar tekur að hausta.
Af því tilefni ætlar Feykir að birta nokkrar uppskriftir af
berjasultum og fleira sem hægt er að útbúa úr hinum ýmsum
berjum sem náttúra Íslands hefur fram að færa.
Bláberjasulta
1 kg bláber
800 gr sykur
AÐFERÐ Þvoið berin. Setjið í pott
ásamt sykri og sjóðið í 10 mín. Setjið
í hreinar krukkur og lokið með þéttu
loki.
Bláberjasulta með
döðlum
700 gr döðlur
2 dl vatn
1 kg bláber
AÐFERÐ Saxið döður í
matvinnsluvél og hellið sjóðandi
vatni yfir. Látið standa í 30 mín.
Hrærið berjunum saman við. Setjið í
heitar hreinar krukkur og lokið með
þéttu loki.
Krækiberjasulta
2 kg krækiber
5 dl vatn
1 kg sykur
2 tsk hleypiefni
AÐFERÐ Setjið krækiber og vatn í
pott og látið sjóða í 20 mín. Bætið
sykrinum út í og sjóðið í 20 mín. til
viðbótar. Setjið þá hleypiefnið út í
og sjóðið í 2-3 mín. Setjið í hreinar
krukkur og lokið með þéttu loki.
Krækiberjasaft
1 l safi úr krækiberjum
750 gr sykur
AÐFERÐ Þvoið krækiberin og
maukið í matvinnsluvél. Sigtið
tvisvar. Blandið sykri saman við
kalda saftina og hrærið við og við
þar til sykurinn leysist upp. Einnig
má sjóða upp saftina með sykrinum
og hella á hreinar heitar flöskur. Ath.
Feykir spyr...
Ert þú búinn
að fara í
berjamó?
[ Spurt í
Varmahlíð ]
C-vítamínið skemmist nokkuð við
suðuna og einnig við að standa og
þegar hrært er í saftinni. Gott út á
hafragraut, grjónagraut og blandað
vatni sem svaladrykkur.
Rabarbara -
krækiberjasulta
2 kg rabarbari
1 kg krækiber
2 ½ kg sykur
AÐFERÐ Skerið rabarbarann smátt
og setjið í pott ásamt sykrinum og
látið berin ofan á. Maukið soðið
við vægan hita í 1 klst. Hrærið í við
og við þar til það þykknar. Setjið í
hreinar krukkur og lokið með þéttu
loki.
Rifsberjasulta
1 kg rifsber
800 gr sykur
AÐFERÐ Þvoið berin. Setjið í pott
ásamt sykri og sjóðið í 10 mín.
Setjið í hreinar krukkur og lokið
með þéttu loki.
Rifsberja hlaup
1 kg rifsber með stilkum
og smá laufi
1 kg sykur
AÐFERÐ Skolið berin í köldu
vatni, ath. græn ber þurfa að vera
með þar sem hleypiefnið er í þeim
og stilkunum. Setjið í pott ásamt
sykri. Hitið að suðu, ekki við of
háan hita og hrærið í svo ekki
brenni við. Látið sjóða í 7-10 mín.
Dragið pottinn af hitanum, fleytið
froðunni af og látið setjast til í smá
tíma. Síið saftina frá berjunum og
hellið á hreinar, heitar krukkur.
Lokið með þéttu loki.
Verði ykkur að góðu!
BJÖRG BALDURSDÓTTIR
-Ja, miðað við að það telst ekki
með ef maður hefur tínt minna
en 30 lítra þá er ég ekki búin
að fara í berjamó. Reikna ekki
með að ná því úr þessu.
ÁSKELL HEIÐAR
ÁSGEIRSSON
-Nei, ég er með fólk í því á
mínu heimili.
PÉTURÍNA LAUFEY
JAKOBSDÓTTIR
-Já, ég fór í berjamó í Djúpavík
á Ströndum.
UNNUR GOTTSVEINSDÓTTIR
-Nei, ekki ennþá en ætla að
reyna komast.