Feykir - 13.09.2012, Síða 9
34/2012 Feykir 9
Spjallað við Merete á Hrauni
um lífið og æðarbúskapinn
Saumar
gæða-
sængur á
Skaganum
Merete Rabølle býr á
Hrauni á Skaga ásamt
eiginmanni sínum Steini
Rögnvaldssyni og börnum
þeirra þremur. Merete
hefur alltaf nóg fyrir
stafni á Hrauni en þar fer
m.a. fram sauðfjár- og
æðarbúskapur. Undanfarið
hefur Merete kannað
möguleikann á því að nýta
þann hágæða æðardún
sem unninn er á Hrauni til
sængurgerðar.
Merete var bústörfum ekki
ókunn þegar hún settist að á
Hrauni en hún er alin upp á
sveitabæ á Fjóni í Danmörku.
Þó segir hún margt nýtt verið
fyrir henni á Hrauni þar sem
foreldrar hennar voru með
svínabú og því opnaðist nýr
heimur fyrir henni í kringum
rollurnar og æðarkollurnar.
Merete segist líka afar vel við
sig á Hrauni en þar er mikið
fuglalíf á vorin. „Það er mjög
gaman að fylgjast með hvernig
allt iðar af lífi og hvernig bætist
við fuglalífið á degi hverjum,
sérstaklega af mófuglum,“ segir
hún en þar segir miklu hafa skipt
þegar þau girtu varpsvæðið af
svo tófan kæmist ekki í varpið.
En hvernig lágu leiðir þínar
til Íslands? „Ætli það hafi ekki
verið löngun til að ferðast og
smá ævintýraþrá,“ segir Merete
en á þeim tímapunkti var hún
í búfræðinámi í Danmörku.
„Ég réði mig í vinnu á Hvalnesi
á Skaga og ég hef því hvergi
annarsstaðar verið á Íslandi en
á Skaganum,“ segir hún kímin á
svip en á meðan á dvöl hennar
stóð kynntist hún mannsefni
sínu árið 1990 og fluttist á
Hraun haustið 1991.
Ísland ráðandi í sölu
á æðardúni
Hugmyndina af sængurgerð
segir Merete hafa kviknað
þegar hún var að velta fyrir
sér hvernig hún gæti skapað
sér vinnu og að sama skapi
aukið verðmætasköpun fyrir
jörðina. Hingað til segir hún
ákveðna hefð fyrir því að
selja æðardún í heildsölu.
„Þar sem ég hef ekki enn
lagt mikið í þróunarvinnu þá
er þægilegast að byrja á að
markaðssetja sængur. Fólk
veit hvað það er og auðvitað
er það líka það sem flestir eru
að gera. Svo með tímanum er
nauðsynlegt að gera eitthvað
fleira en sængur,“ útskýrir
hún. Merete segist ekki hafa
verið að markaðssetja sig
mikið fram til þessa, þess
þá heldur innanlands. „Ég
hef meira verið að leita utan
landssteinana en auðvitað er
maður alltaf ánægður ef fólk
biður um sæng,“ segir hún.
Merete segir framleiðsluna
vera í þróun, ekki bara hjá
sér heldur hjá öllum æðar-
bændum yfir höfuð. Hlunn-
indaráðuneytið segir hún hafa
lagt mikið á vogarskálarnar
með því að koma upp eftirliti
með tilbúinni vöru. Þá eru
dúnmatsmenn viðstaddir
þegar verið er að setja dúninn
í sængurnar og vakta gæði og
magn dúnsins. Loks er sængin
frágengin með stimpli og
innsigluð með blýi. „Aukna
eftirlitið er svar við því að
mikið var verið að blanda
erlendum dún við íslenska
æðardúninn. Ísland er að
framleiða þrjú tonn af æðadún
á ári en á einhvern dularfullan
hátt var verið selja marfalt
meira magn en það erlendis,“
útskýrir Merete en Ísland
segir hún framleiða 80% af
þeim æðardúni sem seldur er
í heiminum. Noreg og Kanada
segir hún einnig vera að gera
nokkuð góða hluti í þessum
geira. „Hér á Íslandi ríkir mikil
hefð og við búum vel af því,“
segir Merete. „Þess má geta að
Æðarræktarfélag Íslands gaf
nýverið út fallegan bækling og
verið er að þýða hann á fleiri
tungumál,“ bætir hún við.
Kollan gefur af sér
dún í áratugi
Tínsla á æðardúni hefur tíðkast
í áratugi á Hrauni og því
voru aðstæður kjörnar fyrir
Merete til að kanna þennan
nýja starfsvettvang. „Valdi,
tengdafaðir minn, er með hús
hér á Hrauni þar sem hægt er
að hreinsa æðardúninn. Svo
smíðaði Jóhann, mágur minn,
góðan þurrkara en lykillinn að
verkun fyrsta flokks æðardúns
er að hann sé vel þurrkaður –
það skiptir höfuðmáli,“ útskýrir
hún. „Ég kaupi sængurver, set
í það æðardún og loka þeim
sjálf,“ segir Merete. Í fyrra setti
hún sig í samband við verslun
í Danmörku og sendi þeim
prufusængur. „Þau báðu um
tvær sængur til viðbótar og ég
geri mér vonir um að það geti
þróast frekar,“ segir hún.
Merete segir sængurfram-
leiðsluna í raun enn vera á
frumstigi en hún segir hug-
myndina heilla. „Mér finnst
það mjög ánægjuleg hugsun
að ekki sé gengið á náttúruna.
Dúnninn er afurð sem fellur til
og ef við hirðum hann ekki, eftir
að hann hefur gegnt hlutverki
sínu, þá eyðileggst hann eða
blæs í burtu,“ segir hún og bætir
við: „Svo þegar sængin þín er
orðin gömul og vel notuð, þá er
æðarkollan enn að gefa af sér
dún - kannski 20 árum seinna.“
Þá útskýrir hún að mikil vinna
sé á bakvið æðarbúskapinn og
vel er hugsað um dýrin. „Það
er einnig umhugsunarvert að
fólk er reiðubúið að greiða
mikið fyrir hesta sem notaðir
eru nokkrum sinnum á ári, eða
sjónvörp og allskonar græjur,
en fólki finnst mikið að borga
kannski sama verð fyrir sæng
sem það kemur til með að nota í
átta klukkustundir á sólarhring,
til fjölda ára,“ segir Merete og
bætir við þegar fólk festir kaup
á góðri æðardúnsæng fær það
mikið fyrir peninga sína. /BÞ