Feykir - 18.10.2012, Qupperneq 3
39/2012 Feykir 3
Söfnun vegna fjárskaða á Norðurlandi
Stór hópur velunnara bænda
sem koma að söfnuninni
Hleypt hefur verið af
stokkunum fjársöfnun til
stuðnings bændum vegna
fjárskaða og tjóna er hlutust
af óveðrinu á Norðurlandi í
september. Verkefnið var
kynnt í húsakynnum
Mjólkursamlags KS á
Sauðárkróki í tengslum við
Bændadaga sem haldnir voru
í síðustu viku. Átta milljónum
króna var heitið á fundinum
frá Kaupfélagi Skagfirðinga
og Landsbanka Íslands til
söfnunarinnar.
Sérstök verkefnisstjórn
hefur verið skipuð til að hafa
umsjón með söfnuninni og
móta reglur um hana og er
skipuð þeim Guðna Ágústssyni
fv. landbúnaðarráðherra sem
jafnframt er formaður, Dag-
björtu Bjarnadóttur oddvita
Skútustaðahrepps, Jóni Aðal-
steini Baldvinssyni fv.
vígslubiskupi á Hólum, Friðriki
Friðrikssyni fv. sparisjóðsstjóra
á Dalvík og Þórarni Inga
Péturssyni formanni Lands-
samtaka sauðfjárbænda.
Fram kom í ræðu Guðna
Ágústssonar að vel færi á því að
setja söfnunina af stað þar sem
skagfirska efnahagskerfið blóm-
strar hvað best enda lagði KS
fimm milljónir króna í
söfnunina. Útibú Landsbank-
ans á Sauðárkróki, Akureyri og
á Húsavík lögðu hvert um sig
eina milljón króna. Þeir sem
vilja styðja við bakið á mál-
efninu geta lagt framlög inn á
reikning nr. 0161-15-380370,
kt. 630885-1409, í Lands-
bankanum á Sauðárkróki. /PF
Laugardaginn 20. október fer
fram skoðanakönnun meðal
Íslendinga varðandi hug-
myndir stjórnlagaráðs um
nýja stjórnarskrá. Í raun eru
þetta hugmyndir nokkurra
einstaklinga, sem flestir eru
búsettir á höfuðborgar-
svæðinu, um það hvernig
stjórnarskrá Íslands eigi að
vera að þeirra mati.
Ein spurningin í þessari
könnun varðar þjóðkirkjuna og
hvort það eigi að vera ákvæði
um hana í stjórnarskránni, svo
sem verið hefur. Ekki er þó ljóst
hvernig það ákvæði á að hljóða.
Fyrr á þessu ári breyttu frændur
okkar Norðmenn sinni
stjórnarskrá og þar var ákveðið
að nema ekki á brott ákvæði um
þjóðkirkju, heldur halda því
inni en kveða jafnframt á um
frelsi trúar- og lífskoðunarfélaga
og er ákvæðið þannig:
„Allir þegnar ríkisins skulu
njóta frelsis til trúariðkunar.
Norska kirkjan, evangelísk-
lútersk kirkja er þjóðkirkja og
skal sem slík njóta stuðnings
ríkisins. Nánar skal það
ákvarðað með lögum. Öll trú-
og lífsskoðunarfélög skulu njóta
stuðnings með ámóta hætti.“
Ég hvet til þess að farin verði
sama leið og Norðmenn kusu
að gera. Trúfrelsi er tryggt á
Norðurlöndum, einmitt þar
sem löng hefð er fyrir öflugum
þjóðkirkjum.
Það felst engin mismunun í
því að ákvæði um þjóðkirkju sé
AÐSENT GÍSLI GUNNARSSON SKRIFAR
Bylgja Guðrún Brynjólfsdóttir
skrifar frá Brandsstöðum í Blöndudal
Hugleiðing um
bókalestur
Sæli nú. Amma mín bað mig um
að skrifa pistil í Feyki. Ekkert mál,
mér finnst svo gaman að lesa
og skrifa. Það finnst ömmu líka.
Og afa Halldóri sérstaklega. Og
bara eldri kynslóðinni yfir höfuð
finnst gaman af því að hafa góða
bók á náttborðinu sínu til að lesa
eftir góðan og annasaman dag.
Leiðinlegt hvað það eru margir í
dag sem að hafa engan áhuga á
því yfir höfuð að glugga í góða bók.
Það skemmtilegasta sem ég lærði
þegar ég var í framhaldsskóla
var þegar ég fékk að lesa heila
skáldsögu sem var hluti af náminu,
t.d. í ensku hjá honum Birni
Magnússyni, eða í íslensku hjá
Guðbjörgu Bjarnardóttur. Í dag er ein
uppáhaldsafþreying mín að glugga
í eitt stykki góða bók, þá erum við
ekki að tala um Syrpuna gott fólk
(Andrés Önd og félaga), þó að það
sé nú gaman að glugga í hana líka
af og til, heldur góðar skáldsögur.
Það er alveg ótrúlegt að segja frá
því, en ég sé svo oft á hinni alkunnu
samskiptasíðu Facebook hverju
fólk hefur gaman af og hefur áhuga
á. Hjarðhugsunin kemur vel í ljós
þar og fólk hvetur hvort annað,
ómeðvitað, til hjarðhugsunar. Þegar
fólk er að vekja áhuga annars fólks
á einhverju, þá sé ég örsjaldan
eða aldrei verið að tala um bækur
eða lestur og hversu skemmtilegar
bækur eru t.d. að koma út og þess
háttar.
Ætli þetta sé ekki bara næsta
kynslóðin í hnotskurn? Þurfa ekki
á bókum að halda, snjallsímar og
þess háttar koma í staðinn. Ekki
veit ég hvort það sé slæmt eða
ekki, sumir segja að það sé alls
ekki minna upplýsingaflóð að eiga
snjallsíma heldur en að glugga í
bækur. Geta jafnvel lesið bækur í
snjallsímanum.
En mig langaði bara að koma því
á framfæri að það sé alls ekki
leiðinlegt að lesa bækur, það er
svo margt sem maður lærir líka
á því. T.d. er hægt að bæta sig í
stafsetningu, uppsetningu á texta, fá
nýjar skoðanir, nýja þekkingu, virkja
heilann betur og láta hann vinna
(því að einhvern tímann í framtíðinni
þarf maður að láta heilann vinna,
maður kemst ekki hjá því gott fólk).
Ég er alls ekki að segja það að ég sé
ekki sátt með komandi kynslóð, ný
kynslóð kemur alltaf með eitthvað
nýtt með sér, t.d. nýja þekkingu
á ýmsum hlutum og kannski nýja
siði og eflaust eitthvað fleira sem
að þróar samfélag okkar. Auðvitað
eru alltaf rök með og á móti öllum
sköpuðum hlutum, en ég er ávallt
með því sem er jákvætt og skapandi
fyrir alla, það þarf ekki endilega
að vera bækur, heldur eitthvað
sem lætur mann vera sátta/n með
sjálfan sig og samfélagið.
Og ég ætla að skora á hann
föður minn, Brynjólf Friðriksson,
stórbónda á Brandsstöðum í
Blöndudal, til að koma með næsta
pistil í Feyki.
( ÁSKORENDAPENNINN )
berglindth@feykir.is
LAUST STARF Í ELDHÚSI HEILBRIGÐISSTOFNUNARINNAR
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Laus er til umsóknar 70% staða starfsmanns í eldhúsi HS.
Unnin er önnur hver helgi. Laun samkvæmt kjarasamningi Öldunnar stéttarfélags.
Staðan er laus frá 1. nóvember.
Allar nánari upplýsingar veita Sigríður eða Ragnheiður í síma 455 4015.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til
Herdísar Klausen framkvæmdastjóra hjúkrunar.
Hægt er að sækja um rafrænt á heimsíðu HS: www.hskrokur.is.
Umsóknarfrestur er til 25. október.
í stjórnarskrá. Hins vegar felst í
því sá yfirlýsti vilji þjóðarinnar
að hér eigi áfram að byggja á
þeim kristnu gildum og sið sem
við höfum hingað til byggt
samfélag okkar á. Notum
kosningaréttinn, mætum á
kjörstað og segjum því já við
þessari spurningu.
Gísli Gunnarsson
Segjum JÁ við þjóðkirkju
og trúfrelsi