Feykir


Feykir - 08.11.2012, Blaðsíða 12

Feykir - 08.11.2012, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 42 TBL 8. nóvember 2012 32. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Föstudaginn 26. október var haldið stærsta Menningarkvöld NFNV frá upphafi. Fór það fram í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki og mættu yfir 500 manns þangað. Fengnir voru heimamennirnir Helgi Sæmundur og Arnar Freyr, meðlimir hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur, til þess að kynna kvöldið sem þeir gerðu með stæl. Fram komu margir ungir tónlistarmenn úr okkar héraði auk nokkurra annarra frá Menntaskólunum á Egilsstöðum og á Ísafirði. Hársnyrtinemar FNV héldu sýningu á einstökum verkefnum sínum. Haldin var Drag-keppni þar sem atriði frá Ísafirði bar sigur úr býtum. Grínistinn Beggi blindi mætti á svæðið og sagði nokkra brandara, sem fóru þó misvel í mannskapinn. Hin árlega og sívinsæla Bodypaint keppni var að sjálfsögðu til staðar þar sem sex lið tóku þátt og sýndu hæfileika sína. Dómarar keppninnar voru Guðbrandur Ægir, Erla Einars., Þórdís frá Capello, Valdís Dröfn og Obba frá Wanitu. Úlfur Úlfur kláraði svo showið með því að taka lagið og getum við sagt að enginn hafi farið svikinn heim af þessu frábæra kvöldi. Við viljum þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur að gera þetta að veruleika! /NFNV Frumlegasta atriði Bodypaint. BökunartilBoÐ 2012 SYKUR 2kg. 459 FLÓRSYKUR 500gr. 189 PÚÐURSYKUR 500gr. 198 RÚSÍNUR 250gr. 159 FIRST CLASS KAKÓ 250gr. 319 ROYAL LYFTIDUFT 200gr. 219 HEIMA SMJÖRLÍKI 500gr. 198 LYLES GOLDEN SYRUP 1lbs. 259 FIRST PRICE HVEITI 2kg. 198 HAGVER DÖÐLUR 500gr. 229 HEIMA KÓKOSMJÖL 500gr. 269 SÍRÍUS KONSUM 300gr. 429 SÍRÍUS KONSUM 200gr. 298 MÓNU SÚKKUL.DROPAR 200gr. 379 FREYJU SÚKKUL.BITAR 56% 200gr. 279 FREYJU SPÆNIR LJÓS 200gr. 229 FREYJU SPÆNIR DÖKKUR 200gr. 229 FREYJU SPÆNIR m/núggat 200gr. 229 LINDU SUÐUSÚKKULAÐI 200gr. 189 LINDU APPELSÍNU RJÓMASÚKKUL. 100gr. 129 DÖKKUR HJÚPUR 150gr. 129 LJÓS HJÚPUR 150gr. 129 KJARNA KÓKOSOLÍA 500gr. 369 Ti lb oð g ild a m eð an b ir gð ir e nd as t FRÁ LESENDUM: Stærsta Menningarkvöld NFNV frá upphafi Yfir 500 manns mættumt ... Sigurvegari Bodypaint Úlfur Úlfur! Sigurvegari í Drag-show var frá MÍ.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.