Feykir - 06.12.2012, Page 2
2 Feykir 46/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Munaði litlu að illa færi er kviknaði í vatnsvél
Með langheitustu
umsóknina
Aðfaranótt sl. föstudags
kviknaði í vatnsvél í eigu
Farskólans á Sauðárkróki
sem staðsettur er á efri hæð
hússins við Faxatorg 1 á
Sauðárkróki en í því húsi fer
fjölþætt starfsemi fram. M.a.
er starfsstöð SSNV í húsinu
en svo vildi til að tvær konur
sem voru að vinna fram á nótt
urðu eldsins varar og náðu að
slökkva hann.
Eftir því sem Feykir kemst
næst hafa fundist gallar í
vatnsvélum af þessari gerð og
búið að innkalla þær enda hafa
fleiri brunar átt sér stað vegna
þeirra. Bryndís Þráinsdóttir
framkvæmdastjóri Farskólans
segir að vélin sé ónýt en ekkert
sjái á vegg eða innréttingu.
-Gárungar sögðu að það mætti
þakka Evrópusambandinu fyrir
að ekki fór ver á Faxatorginu en
konurnar tvær voru að leggja
síðustu hönd á IPA umsókn til
Evrópusambandsins, segir
Bryndís.
Katrín María Andrésdóttir og
María Björk Yngvadóttir höfðu
verið að vinna, ásamt fleirum,
að umsóknargerð til ESB og var
skiladagur síðasta föstudag og
unnu þær þess vegna fram eftir
þessa nótt.
-Við lágum auðvitað yfir
þessu í smáu og stóru, lítið sofið
og margir snúningar teknir,
segir Katrín María en upp úr kl.
2 aðfaranótt föstudagsins sátum
þær María Björk enn á skrifstofu
hennar er þær heyrðu eitthvað
þrusk. Héldu þær að einhver
óboðinn gestur væri nú kominn
í húsið en þegar þær komu fram
á ganginn til að kanna hverju
þetta sætti stóðu hins vegar
eldtungur upp úr vatnsvélinni.
-Við náðum sem betur fer að
slökkva eldinn, kalla til
slökkvilið, aðstoða við
reykræstingu og skila
umsókninni á réttum tíma. Á
hæðinni er ekkert eldvarnar-
teppi og ég verð að viðurkenna
að ég veit ekki nógu vel hvað má
nota á svona rafmagnselda, segir
Katrín María en var viss um að
vatn væri ekki málið og
niðurstaðan varð því sú að reyna
að finna eitthvað til að kæfa
eldinn. –Ég fann moppu búnt í
ræstikompunni, sem náði að
lækka logana aðeins en fór svo
úr lopapeysunni sem ég var í og
kæfði restina með henni. Þá var
hægt að taka úr sambandi og
sulla vatni yfir. María kallaði
strax til slökkviliðið sem kom
svo og reykræsti og aðstoðaði,
ásamt Jóni Halli frá Arionbanka
og Gunnari Gests frá Skýrr, við
að aftengja vatnið inn á vélina og
þurrka upp af gólfi og
húsgögnum, segir Katrín María
en Arionbanki og Skýrr eru í
þessu sama húsnæði.
-Þegar eldurinn varð laus
vorum við að vinna í eyðublaði í
umsókninni sem heitir ,,Logical
framework“, það hefur nú
eðlilega verið endurskírt
,,Logical FLAMEwork“ og við
erum á því að við séum með
langheitustu umsóknina.
/PF
Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi
Guðbjartur Hannesson
leiðir listann
Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra fékk flest
atkvæði í flokksvali
Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi og mun
því verða oddamaður listans.
Fléttulistaaðferð verður beitt
til að tryggja jafnt hlutfall
kynja samkvæmt reglum
flokksvalsins og mun því
Hörður Ríkharðsson færast
upp um eitt sæti og Hlédís
Sveinsdóttir niður um eitt
sæti.
Á kjörskrá voru 1496
flokksfélagar, alls greiddu 701 atkvæði í póstkosningu sem
gerir 46,9% kjörsókn.
1. Guðbjartur Hannesson með 533 atkvæði í 1. sæti
2. Ólína Þorvarðardóttir með 435 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Hlédís Sveinsdóttir með 443 atkvæði í 1.-3.sæti
4. Hörður Ríkharðsson með 479 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Benedikt Bjarnason með 379 atkvæði í 1.-4. sæti
Kosning er bindandi í fjögur efstu sætin. /PF
LEIÐARI
Grunnstoðir samfélagsins
Þegar leitarorðunum „grunnstoðir samfélagsins“ er slegið inn
í Google.is fást um það bil 11.600 niðurstöður sem gefur til
kynna að þar sé um mikilvægar stoðir að ræða. Þessar
grunnstoðir felast að mínu mati í hverju því sem heldur
heilbrigðu samfélagi uppi eða a.m.k. saman. Meðal þeirra má
nefna aðgengi að góðu heilbrigðis- og menntakerfi,
stjórnsýslukerfi sem virkar heiðarlega, þjóðkirkju sem byggir
á traustum grunni og nægri atvinnu svo eitthvað sé tínt til.
Ekki er minnst á „grunnstoðir samfélagsins“ í alfræðiritinu
Wikipediu né heldur á Vísindavefnum og slái maður upp
leitarorðinu „grunnstoð“ á veforðabók Snöru fæst engin
niðurstaða og ekki finnst hún í Stjórnarskrá. Hugtakið
„grunnstoðir samfélagsins“ virðast því eingöngu vera til í
hugum fólks og nær yfir vítt svið. Stjórnmálamenn eru oft
settir í vanda þegar þeir þurfa að hagræða í ríkisfjármálum
sem og fólk sem starfar í sveitarstjórnum og þeir minntir á
mikilvægi grunnstoðanna enda mikið í húfi fyrir alla og veitir
kannski ekki af nú á kosningavetri.
Páll Friðriksson
ritstjóri
Kirkjugarður Sauðárkróks
Krossar ekki settir
á leiði
Nú er frost á Fróni og fannir í
garði segir á heimasíðu
Sauðárkrókskirkju og af þeim
sökum verða þeir fjölmörgu
krossar sem eru í vörslu
kirkjugarðsins ekki settir
niður, nema sérstaklega verði
eftir því leitað.
Umræddir krossar eru þó
allir í einkaeign og geta eigendur
þeirra fengið þá afhenta og séð
um að koma þeim fyrir, æski
þeir þess. Geymsluhúsnæði
kirkjugarðsins er mjög
takmarkað og er þess vænst af
stjórnendum garðsins að
eigendur krossa fjarlægi þá að
afloknum jólum og geymi í
sínum fórum.
Eins og í fyrra verður
innheimt 500 kr. rafmagnsgjald
fyrir hvern kross og segir á
heimasíðunni að garðvörður
verði í „efra“ milli kl. 13 og 15
dagana 7., 10. og 11. desember nk.
/PF
Góðkunningjar
lögreglunnar
Smábæjaleikar á Blönduósi
Árekstur þriggja bíla á
Hvammstanga
Stálu bifreið
Samningur
framlengdur
Ökumaður
slasaðist
talsvert
Aðfaranótt þriðjudags var
bifreið tekin traustataki á
Sauðárkróki og henni ekið
sem leið lá suður þjóðveg 1.
Ekki komust þó ökumaður né
farþegi lengra en að
Borgarnesi á bílnum þar sem
lögreglan þar stöðvaði förina.
Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki var hér um karl og
konu að ræða, svokallaða
góðkunningja, karlmaðurinn
tengist innbroti sem framið var
fyrr í vetur m.a. á athafnavæði
skotfélagsins Ósmanns. /PF
Knattspyrnudeild Hvatar og
Arion banki hafa framlengt
samstarfssamning til tveggja
ára um að Smábæjaleikarnir
árin 2013 og 2014 beri nafn
bankans og verði áfram
Smábæjaleikar Arion banka.
Á heimasíðu Hvatar kemur
fram að Arion banki verður
áfram einn af aðalstyrktaraðilum
mótsins ásamt SAH Afurðum
ehf. Samningsaðilar hófu sam-
starf sitt til reynslu í eitt ár á
síðasta móti en hafa nú ákveðið
að halda áframhaldandi sam-
starfi til næstu tveggja ára hið
minnsta. „Knattspyrnudeild
lýsir mikilli ánægju sinni með
samninginn enda Smábæja-
leikar Arion banka að festa sig í
sessi sem eitt af stóru mótunum
á landsbyggðinni ár hvert,“ segir
á heimasíðunni. /BÞ
Þrjár bifreiðar urðu fyrir
skemmdum í árekstri sem
varð sl. þriðjudag á Hvamm-
stanga. Samkvæmt heimildum
Mbl.is slasaðist ökumaður
einnar bifreiðarinnar talsvert
og var fluttur með sjúkrabíl til
Reykjavíkur.
Slysið átti sér stað með þeim
hætti að bifreið var beygt til
vinstri á gatnamótum í veg fyrir
aðra sem kom úr gagnstæðri átt.
Bifreiðarnar skullu saman og
runnu síðan vegna hálku á
þriðju bifreiðina sem var
kyrrstæð. /BÞ