Feykir


Feykir - 11.07.2013, Page 2

Feykir - 11.07.2013, Page 2
2 Feykir 27/2013 Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842 Blaðamenn: Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164 Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Snowden og Ísland Eins og fram hefur komið í fréttum hefur uppljóstrarinn Edward Snowden sótt um hæli í yfir þrjátíu löndum og var Ísland með þeim fyrstu. Á Alþingi lögðu þingmenn til að honum yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur, en sú tillaga felld að mál hans yrði sent til umfjöllunar hjá þingnefnd. Snowden þessi gerði sig sekan um að leka upplýsingum um meintar njósnir Bandaríkjamanna eða eins og sagt er: síma- og neteftirlit Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, en hann var starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Samkvæmt fréttum hafa Bandaríkjamenn fylgst með hvað er á döfinni hjá helstu ríkjum heims s.s. eins og Kínverjum og löndum Evrópusambandsins og með því stofnað samvinnu þessara ríkja í hættu. Hverjir eru svo skúrkarnir í sögunni, þjóðaröryggisstofnunin eða Edward Snowden? Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur látið hafa eftir sér að Edward hefði misnotað aðgang sinn að raf- rænum upplýsingum og fær engan stuðning þaðan. Ekki hefur ein einasta evrópsk þjóð boðist til að hýsa þann sem upplýsti um hleranir Bandaríkjanna á hendur þeim og meira að segja Rússar hika við að bjóða honum hæli. Hver hefði trúað því? Það eru helst lönd í Suður Ameríku sem aumkva sig yfir „mann sannleikans“ en það er ekki tekið út með sældinni eins og forseti Bólivíu fékk að reyna þegar áhöfn flugvélar sem hann var í var neydd til að lenda í Austurríki. Á Íslandi býr stórhuga fólk sem er tilbúið til að skjóta skjólshúsi yfir Snowden og er það virðingarvert. Ég dáist að slíkum víkingum og langar til að taka þátt í þeirri baráttu en mér sýnist að hún yrði ekki árangursrík. Við myndum aldrei vinna hana og gætum engan veginn tryggt öryggi Snowden. Við skulum hætta að hugsa um að veita manninum hæli og snúa okkur að öðrum málum. Páll Friðriksson, ritstjóri Húnavaka 2013 Styttist í hátíðina Húnavaka, menningar- hátíð Austur-Húnvetninga, verður haldin helgina 19.-21. júlí næstkomandi. Húnvetningar hafa ára- tugum saman haldið Húna- vöku en hún var hér á árum áður haldin á útmánuðum og því tengd árstíðaskipt- unum. Húnavakan, sem þá stóð yfir í viku, ávann sér fastan sess í hugum Hún- vetninga og annarra sem mjög vel heppnuð hátíð og margir gestir úr nærliggjandi héruðum komu til að njóta hennar með heimamönnum. /GSG Blönduósbær 25 ára bæjarafmæli Á fimmtudaginn voru liðin 25 ár síðan Blönduós hlaut bæjarréttindi og hefur eftir það kallast Blönduósbær. Hélst það nafn áfram við sameiningu við Engihlíðar- hrepp 9. júní 2002. Upphaflega tilheyrði Blönduós Torfalækjarhreppi, en varð að sérstökum hreppi, Blönduhreppi, árið 1914. Blönduhreppur stækkaði 1. febrúar 1936 þegar hann fékk skika úr landi Engi- hlíðarhrepps. Samkvæmt Hagstofu Íslands voru íbúar Blönduóshrepps 241 talsins árið 1914 en árið 1988, þegar Blönduós varð bær, voru þeir 1.083. Þann 1. janúar sl. voru íbúar Blönduósbæjar 878 talsins. /KSE Selatalningin mikla Sjálfboðaliðar óskast Selasetur Íslands stendur fyrir selatalningunni miklu í sjöunda sinn í ár. Talningin fer fram sunnudaginn 21. júlí næstkomandi. Byggir hún á þátttöku sjálfboðaliða sem vilja taka þátt í rannsóknarstörfum, ásamt því að njóta nærveru sela og náttúru. Þátttakan er skemmtileg upplifun fyrir alla náttúru- og dýraunnendur og þess má geta að í fyrra tóku 40 sjálfboðaliðar þátt. Áhuginn er mikill meðan heimamanna og ferðamanna. /KSE Hagkvæmni samein- ingar skoðuð Ágúst Þór Bragason, forseti bæjarstjórnar Blönduósbæjar, sagði í kvöldfréttum RÚV sl. laugardag að mikill vilji væri meðal íbúa Blönduóss að sameina sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu. Adolf Berndsen, oddviti á Skagaströnd, sagði í sama fréttatíma að aðkoma stjórn- valda væri lykilforsenda fyrir því að hægt væri að sameina svæðið í eitt sveitarfélag. Eins og greint hefur verið frá á Feykir.is hafa sveitar- félögin samþykkt að ráða Odd Gunnar Jónsson, sérfræðing hjá KPMG, til að gera úttekt á hagkvæmni þess að sameina sveitarfélögin í Austur- Húnavatnssýslu. Á skýrsla þess efnis að vera tilbúin í október. Síðast þegar kosið var um sameiningu sveitarfélaga á þessu svæði, var sameiningin kolfelld af íbúum á Skaga- strönd. „Ég er ekki að segja að sú staða sé uppi í dag. En ég held hins vegar að mönnum finnist að það þurfi að koma eitthvað öflugt hér inn á svæðið og við viljum kannski reyna að blanda því í þessa umræðu, í framhaldi af þessari hag- kvæmniúttekt, hvort sveitar- félögin fái öflugan stuðning frá stjórnvöldum,“ sagði Adolf Berndsen í samtali við RÚV. /GSG Sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu 40% lækkun húshitunarkostnaðar Gera má ráð fyrir að húshit- unarkostnaður á Skagaströnd lækki um allt að fjörtíu prósent að meðaltali þegar hitaveita verður tekin í notkun þar í haust. RÚV greindi frá þessu á fimmtudaginn. Framkvæmdir standa nú sem hæst á Skagaströnd og jafnhliða er lagður ljósleiðari í öll hús á staðnum. Adolf Berndsen, oddviti Skagastrandar, sagðist reikna með því að á einu til tveimur árum verði 99% húsa á Skagaströnd komin með hitaveitu. Talsverður kostnaður fylgir því að taka hana inn, einkum í þeim húsum þar sem rafmagnsofnar eru fyrir, en á móti koma niðurgreiðslur frá ríki og sveitarfélagi. Þá má reikna með að stofnkostnaður skili sér tiltölulega fljótt þar sem húshitunarkostnaður lækkar umtalsvert. /KSE Hitaveita á Skagaströnd Vinnuvélar Símonar með lægsta tilboð Þriðjudaginn 2. júlí sl. voru opnuð tilboð í verkið Sauðár- krókur stofnlagnir 2013, Ráðhús-Helgafell og hafnar- svæðið á skrifstofu Skaga- fjarðarveitna á Sauðárkróki. Annars vegar er um að ræða 830 m langa stállögn frá núverandi stofnlögn norðan við Ráðhúsið í gatnamótum Skagfirðingabrautar og Skóla- stígs að stofnlögn við Helgafell sem er nyrsta húsið við Aðalgötu. Hins vegar er um að ræða 590 m langa stállögn frá tengistað við núverandi stál- lögn vestan Eyrarvegarins rétt sunnan gatnamótanna að höfninni og austur hafnar- svæðið að fiskþurrkunarhús- inu sem er þar í byggingu. Það hús mun þurfa mikið af heitu vatni og segir Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Sveitarfél- agsins Skagafjarðar að meðal- notkun þess verði líklega svipuð og heitavatnsnotkun Túnahverfisins. -Hönnun lagnanna niður á Eyri gerir þó ráð fyrir enn meiri notkun í framtíðinni með frekari atvinnuuppbyggingu á svæð- inu í huga, segir Indriði. Verklok eru áætluð 1. nóv- ember 2013. /PF Lagning hitaveitustofnlagna á Eyrina Eftirfarandi tilboð bárust: Fjörður ehf. 29.229.800 126,3% Steypustöð Skagafjarðar ehf. 25.370.900 109,6% Vinnuvélar Símonar ehf. 21.466.800 92,7% Kostnaðaráætlun Stoð ehf. 23.152.300 100,0%

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.