Feykir - 11.07.2013, Side 11
27/2013 Feykir 11
EMILÍA BJÖRK BOGALECKI
-Kannski fara í sund og kannski
ætlar mamma að baka köku.
ÞURÍÐUR EVA
ÓTTHARSDÓTTIR
-Leika mér heima og kannski
fara í ferðalag.
ÓÐINN LOGI STEFÁNSSON
-Fara í ferðalag og leika mér á
leikvellinum í götunni minni.
SAMÚEL INGI JÓNSSON
-Við pabbi ætlum að setja
trampólínið upp, svo á ég afmæli
eftir þrjá daga og þá
verður veisla.
SÆÞÓR HELGI JÖKULSSON
-Ég veit það ekki.
Feykir spyr...
[Spurt í skólahópi
Ársala á Króknum]
Hvað ætlar
þú að gera í
sumarfríinu?
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
má kalla sig Sumarmeistara.
Tilvitnun vikunnar
Látum fyrirfram áhyggjur okkar breytast í fyrir-
fram hugsanir og áætlanir. - Sir Winston Churchill
Sudoku
Snæveig Margríður kaupfélagsstjórafrú og
formaður kvenfélagsins í Grjótvík olli miklum
taugatitringi í bænum þegar hún fékk Friðstein
Valólf kynfræðing til að halda fyrirlestur um sadó/masó kynlíf á
fræðslukvöldi hjá kvenfélaginu. Grjótvíkingar voru ekki tilbúnir
fyrir slíkan boðskap og verslun í kaupfélaginu hrundi en þrátt
fyrir það var Kristteinn Valdmundur kaupfélagsstjóri alsæll.
HINRIK MÁR JÓNSSON
Örlaga örsögur
GAGN & GAMAN
Ótrúlegt en kannski satt
Termítar eru merkilegir á margan hátt og hafa
þróað með sér afar vel skipulagt félagskerfi.
Samkvæmt Vísindavefnum eru rúmlega 1900
tegundir termíta þekktar og langflestar þeirra lifa
í hitabeltinu þó nokkrar finnist í Norður-Ameríku.
Ótrúlegt en kannski satt þá eru tíu sinnum fleiri
termítar á jörðinni en menn.
Anna Magnea Valdimarsdóttir
á Skagaströnd kokkar
Með diploma í
kökuskreytingum
AÐALRÉTTUR
Óveðurskjúklingur
4 kjúklingabringur
lítið oststykki rifið
4-6 egg
smá hveiti
salt og pipar
Eggin eru sett í skál og léttþeytt
með gaffli og ostinum blandað
út í (eggjafjöldi fer eftir stærð
eggjanna en blandan þarf að
vera blaut), hveitið sett í aðra
skál og hrært saman við salt og
pipar eftir smekk.
Bringunum er velt upp úr
hveitinu og þær settar í eldfast
mót, því næst er eggja- og
ostablandan sett yfir og á hún að
pakka bringunum vel inn (þetta
kemur í veg fyrir að safi tapist úr
bringunum og verða þær mjög
safaríkar).
Gott að bera fram með
ofnbökuðum kartöflum og
fersku salati.
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaðikaka
með ganache kremi
2 bollar hveiti
1 tsk matarsódi
½ tsk lyftiduft
¾ bolli sykur
½ bolli dökkt kakó
2/3-1 bolli mjólk
2-3 egg
125 gr smjörlíki
1tsk vanilludropar
Sykur og smjörlíki hrært saman
þar til það er orðið létt og ljóst.
Eggjum bætt út í einu og einu og
hrært vel. Þurrefnum og vökva
bætt út í sitt á hvað. Deigið á að
vera frekar þykkt en ekki þurrt,
ef það er þurrt þá má bæta við
aðeins af mjólk.
Ganache
Þetta er sparikrem
á súkkulaðiköku:
700 gr súkkulaði
(veljið gott súkkulaði)
400 ml rjómi
Súkkulaði brotið niður og
sett í skál og rjóma hellt yfir.
Sett í örbylgjuofn, aðeins 30
sekúndur í einu, og hrært inn á
milli. Athuga að bæði rjómi og
súkkulaði brennur auðveldlega,
þess vegna þarf að hræra vel á
milli. Kælt í ísskáp þar til orðið
stíft og sett á kökuna.
Sugarpaste til skreytingar:
1 poki Haribo sykurpúðar
500 gr flórsykur
2-3 msk vatn
25 gr palmin feiti
Sykurpúðarnir og vatnið sett
í skál sem búið er að bera
feitina á (til að koma í veg fyrir
klístur). Sett í örbylgjuofn í 30
sekúndur í einu og hrært á milli.
Sykurpúðarnir eiga að bráðna.
Því næst er helmingnum af
flórsykrinum bætt út í og hrært
saman. Verður mjög klístrað
en ekki gefast upp. Restinni af
flórsykrinum er hellt á hreint
borð og hnoðað saman við fyrri
blöndu þar til hættir að klístrast
við og verður flott og mjúkt deig
(líkist helst leir). Hægt er að lita
þetta og leika sér. Búa til hvað
sem er til skreytingar á kökum.
Verði ykkur að góðu!
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
decorating. Þar útskrifaðist ég með diplomu í „Sugarpaste
module.“
Þar sem áhugi minn liggur aðallega í kökuskreytingum vil ég
bjóða uppá uppskrift að einföldu „sugarpaste“ sem hægt er að
búa til heima og nota í skreytingar.
Ég skora á Árný Sesselju Gísladóttur á Skagaströnd.
-Ég er nýkomin frá London
þar sem ég var í Knight-
brigde PME school of cake