Feykir - 25.07.2013, Qupperneq 3
29/2013 Feykir 3
Ferdin.is í samstarfi við Feyki
Thailandsferð
á tilboði
Feykir og Ferdin.is hafa
ákveðið að bjóða
áskrifendum Feykis sérkjör
á Thailandsferð sem Ferdin.
is stendur fyrir 21.
nóvember til 11. desember
nk. Áskrifendum Feykis
stendur til boða 20.000-
króna afsláttur og gildir
afslátturinn fyrir tvo, þ.e.
40.000- kr pr/áskrift.
Ferdin.is er ferðaskrifstofa
sem auk þess að selja
flugmiða og skipuleggja
ferðir hvert á land sem er,
hefur sérhæft sig í ferðum
til Asíu.
Ferdin.is er eina ferðaskrif-
stofan sem bíður upp á
reglulegar ferðir til Thailands
með íslenskri fararstjórn og
eru nú tvær slíkar komnar í
sölu næsta vetur, þ.e. í
nóvember og janúar auk þess
sem verið er að vinna að ferð í
apríl. Nóvember ferðin er
þriggja vikna ferð og verður
flogið frá Kaupmannahöfn
beint til Bangkok með Thai
Airways.
Í ferðinni verður lögð
áhersla á sögu og náttúru
landsins, auk afslöppunar í
lok ferðar. Byggingarlist
verður einnig í brennidepli og
margar sögufrægar byggingar
sem gaman er að skoða og
mynda. Fílabúgarður, stríðs-
minjasafn, brúin yfir Kwai –
fljótið, Þriggja mustera skarð-
ið og fljótandi markaður eru
meðal áhugaverðra viðkomu-
staða.
Eftir að dvalið hefur verið í
Bangkok í tvo daga tekur við
sjö daga hringferð inn í land,
þar sem m.a. verður komið að
landamærunum að Burma.
Eftir hringferðina verður gist í
eina nótt í Bangkok og síðan
haldið til ævintýraeyjunnar
Koh Chang, sem er rétt við
landamærin að Kambódíu og
dvalið þar í átta daga. Hægt er
að fá nánari upplýsingar um
ferðina á www.ferdin.is og
eins má sjá myndir úr fyrri
ferðum á facebook síðunni
„tælandsferðir.“
Ferdin.is leggur áherslu á
persónulega þjónustu og
kemur því með ferðakynn-
ingu heim í stofu til þeirra
sem þess óska. Frekari upplýs-
ingar um ferðaskrifstofuna og
hennar ferðir er að fá á www.
ferdin.is eða í símum 893-
8808 og 846-2510.
„Kæmi alveg
til greina að
gera þetta aftur“
Að sögn Kristínar Ingibjargar Lárusdóttur, eins skipu-
leggjenda Húnavöku 2013, gekk hátíðin rosalega vel, en
henni lauk sl. sunnudag. Söfn og setur voru með opið hús
alla helgina ásamt ýmsu öðru sem var í gangi og mikill
fjöldi var í bænum.
„Hátíðin var sett fyrir utan Hafíssetrið á fimmtudeginum í
mígandi rigningu, en íbúar og gestir létu það ekki á sig fá og
var góð mæting í grillpartýið í gamla bænum. Fyrirtækja-
dagurinn á föstudeginum gekk alveg rosalega vel og var
mikið af fólki sem heimsótti þau fyrirtæki sem opnuðu
hús sín,“ segir Kristín.
Á laugardeginum fengu gestir hátíðarinnar flott veður og
var nóg um að vera fyrir alla, m.a. vatnaboltar, lazertag,
hoppukastalar, tívolí ásamt markaðsstemningu. Míkróhúnn-
inn var á sínum stað og hápunkturinn var svo kvöldvakan
um kvöldið. Þar komu fram Ari Eldjárn og sigurvegarar í
Mikróhúninum. Einnig var keppt í reipitogi á milli hverfa og
sjómanni. Kveiktur var varðeldur og Stefán Ólafsson stýrði
bakkasöng af mikilli snilld. Hvanndalsbræður komu svo og
enduðu kvöldvökuna með glæsibrag og þeir spiluðu síðan í
félagsheimilinu um kvöldið fyrir troðfullu húsi.
„Það er ekki annað að heyra en fólk hafi verið mjög ánægt
með helgina og allt sem í boði var og ekki spillti veðrið fyrir.
Þetta er búið að vera krefjandi og skemmtilegt og það kæmi
bara alveg til greina að gera þetta aftur,“ segir Kristín. /GSG
Svipmyndir frá Húnavöku