Feykir - 25.07.2013, Síða 4
4 Feykir 29/2013
Hátíðin 10 ára
Unglistahátíðin Eldur í
Húnaþingi er einn stærsti
viðburður ársins í Húnaþingi
vestra og er nú haldinn í
tíunda sinn. Í ár er
framkvæmdarstjóri
hátíðarinnar Gerður Rósa
Sigurðardóttir en auk hennar
er starfandi svokölluð
unglistarnefnd.
„Undirbúningur hátíðar-
innar hefur gengið vel þetta árið,
hann byrjaði strax í janúar og
hefur hátíðin verið hægt og
sígandi að skríða saman síðan
þá. En auðvitað eiga allir
bæjarbúar einnig heiðurinn af
þessari hátíð, þar sem mest öll
vinna í kringum hátíðina er
unnin í sjálfboðavinnu og það er
ekki hægt að segja annað en að
fólkið í Húnaþingi vestra er alveg
yndislegt hvað það varðar að
hlaupa til og veita hjálparhönd ef
þarf,“ segir Gerður Rósa.
Hátíðin er sett upp með
svipuðu móti og í fyrra þar sem
mikið er um árlega viðburði,
en Gerður Rósa segir þó
auðvitað alltaf eitthvað skiptast
út, eins og námskeið og þess
háttar. Það verður ýmislegt í
boði á hátíðinni í ár, t.d.
flugdrekanámskeið fyrir yngri
kynslóðina, Zumba partý,
klepparakeppni, tónleikar, DJ
ball fyrir unglinga, fjallaskokk
og svo má lengi telja. Í ár
verður einnig paintball og
lazertag á staðnum fyrir gesti
hátíðarinnar.
„Hápunktur hátíðarinnar
myndi ég segja að væru tón-
leikarnir í Borgarvirki á föstu-
dagskvöldinu og svo auðvitað
fjölskyldudagurinn okkar á
laugardeginum. Það er alltaf
mikil spenna fyrir því hver
komi og troði upp í Borgar-
virki og er þetta yfirleitt fyrsta
spurningin sem framkvæmda-
stjóri fær. Í ár verður það
Ragnheiður Gröndal sem
kemur og syngur fyrir okkur í
þessari frábæru náttúruperlu
sem við erum svo heppin að
eiga. Laugardagurinn er svo
stóri dagurinn okkar. Þá byrjar
dagurinn á sápurennibraut
fyrir börnin og svo er grill og
skemmtileg dagskrá fyrir alla
fjölskylduna langt fram eftir
degi. Þar verða t.d. úrslit úr
hverfakeppninni tilkynnt,
hoppukastalar, andlitsmálun,
ýmis atriði á sviði, fyrirtækja-
keppni, sápuboltakeppni og
margt fleira. Hátíðin endar svo
með stórdansleik með hljóm-
sveitinni Buff á laugardags-
kvöldinu.
Við bjóðum að sálfsögðu
alla hjartanlega velkomna á
hátíðina okkar Eldur í Húna-
þingi og ég held að það sé
óhætt að segja að allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi,“
segir Gerður Rósa. /GSG
Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi
Grafarkirkja á Höfðaströnd,
sem stendur í mynni
Deildardals í Skagafirði, er
mikill dýrgripur enda eitt
fágætasta hús landsins og
eina stafkirkjan sem
varðveist hefur á Íslandi.
Þangað sækir fjöldi fólks á
hverju sumri og þykir það
jafnan mikil upplifun, enda
engu líkara en gengið sé inn í
annan tíma þegar komið er
inn fyrir torfveggi þessarar
litlu og fallegu kirkju. Segja
má að fólk skilji við sig
hávaða nútímans og verði
hluti af liðinni tíð og sögu
sem nær aftur um aldir.
Ekki er með öllu vitað
hversu gömul Grafarkirkja er
en víst þykir að saga hennar nái
að minnsta kosti aftur á 17. öld
og alls ekki ósennilegt að
kirkjan sé að stofni til frá því
fyrir siðbót. Hvað sem því líður
hefur kirkja staðið í Gröf frá
fornu fari.
Lengst af var Grafarkirkja
vettvangur helgrar þjónustu og
þegar mest var umleikis í Gröf,
í tíð Ragnheiðar Jónsdóttur (d.
1715) ekkju Gísla Þorlákssonar
Hólabiskups (d. 1684), var
Árleg helgistund á sunnudaginn
í einu fágætasta húsi landsins
messað þar reglulega. Með
breyttum tíma og aðstæðum
lagðist helgihald þó af og húsið
nýtt til veraldlegri hluta, eins og
algengt var um aflögð guðshús.
Með tíma lét Grafarkirkja, sem
nú var nýtt sem geymsluhús, á
sjá og ljóst að á kirkjunni væri
gagngerra endurbóta og við-
gerðar þörf. Ráðist var í þær um
miðja síðustu öld en þá var
kirkjan komin í eigu Þjóðminja-
safns Íslands. Þeirri vinnu var
lokið árið 1953 og af því tilefni
var Grafarkirkja endurvígð 12.
júlí sama ár af biskupi Íslands.
Enn var ráðist í yfirgripsmiklar
viðgerðir á kirkjunni árið 2011
sem staðið höfðu til um þó
nokkurn tíma. Að þeirri fram-
kvæmd lokinni og af því tilefni
var Grafarkirkja blessuð af
Hólabiskup í helgistund í júlí
2012.
Grafarkirkja er ekki aðeins
minnisvarði um liðna tíð. Hún
stendur umfram allt sem
árétting á samhengi sögu og
menningar lands og þjóðar sem
sótt hefur þrótt og næringu til
kristinnar trúar frá upphafi –
og gerir enn. Helgistund í
Grafarkirkju að sumarlagi
hefur því um langt skeið verið
árviss viðburður í Hofsóss- og
Hólaprestakalli. Þá er komið
saman til kyrrlátrar stundar í
kvöldsólinni og notið ein-
stæðrar kyrrðar og helgi. Að
helgistundinni lokinni er
FRÁ LESENDUM SR. GUNNAR JÓHANNESSON SKRIFAR
drukkið kaffi undir kirkju-
veggnum og gætt sér á meðlæti
sem kórfélagar Hofsóss og aðrir
velunnarar kirkjunnar hafa
meðferðis. Helgistund í Grafar-
kirkju er jafnan vel sótt og
kemur fólk víða að og á ánægju-
lega stund á fallegum stað.
Að þessu sinni verður helgi-
stundin haldin að kvöldi
sunnudagsins 28. júlí kl. 20.
Sóknarprestur Hofsóss- og
Hólaprestakalls þjónar fyrir
altari og flytur íhugun og
kirkjukór Hofsóss syngur
fallega kvöldsálma. Að venju
bíður kirkjufólks kaffisopi og
meðlæti að helgistundinni
lokinni. Allir eru hjartanlega
velkomnir og vonandi sjá sem
flestir sér fært að koma og njóta
saman helgrar stundar á
kyrrlátu kvöldi.
Sr. Gunnar Jóhannesson
Fullur bjartsýni og tilhlökkunar
Skagafirðingurinn Jóhann Rúnar Skúlason er í 21
manns hópi sem valinn hefur verið í landsliðið í
hestaíþróttum fyrir heimsmeistaramótið í Berlín í
ágúst. Hann kemur inn í liðið sem sigurvegari á
heimsmeistaramótinu fyrir tveimur árum, en þrír
liðsmenn eru valdir þannig og eiga því kost á að
verja sína titla.
Jóhann á að baki langan feril í hestamennsk-
unni og hefur þegar unnið fjórtán heimsmeistara-
titla, átta fyrir sport og sex fyrir kynbótahross.
En hvers skyldi þá vera hápunktur ferilsins
hingað til?
„Það var rosalega gaman að vinna í fyrsta skipti,
1999. Ég var búinn að keppa fyrir Dani tveimur
árum áður og þurfti að vera liðstjóravalinn.
Sigurður Sæmundsson valdi mig í liðið og bæði ég
og minn hestur vorum óskrifað blað í þessari
keppni, ég held það hafi enginn átt von á að við
myndum vinna.“
Að þessu sinni teflir Jóhann fram sama hesti og
síðast, Hnokka frá Fellskoti sem er fyrstu verðlauna
stóðhestur undan Hrynjanda frá Hrepphólum,
þeim sama og hann keppti á síðast. Hesturinn er
ekki í hans eigu en hann er með hann í þjálfun.
Þeir eru skráðir til keppni í tölti og fjórgangi.
Ertu bjartsýnn á heimsmeistaramótið fram-
undan?
„Já, já, ég er fullur tilhlökkunar. Ég vann töltið á
danska meistaramótinu um síðustu helgi. En þetta
Skagfirðingurinn Jóhann Skúlason í landsliðinu í hestaíþróttum
verður hörkukeppni, þarna verða margir
gríðarlega sterkir og það verður ekkert gefið,
þetta verður hörð keppni alveg fram á það
síðasta.“
Jóhann sem er fæddur og uppalinn á Sauð-
árkróki hefur búið í Danmörku undanfarin
tuttugu ár, með tveimur stuttum hléum. Hann
býr nú í Silkeborg og segist ekkert vera á
heimleið úr þessu. „Ég keypti þennan stað fyrir
tíu árum og er búin að koma mér upp mjög
góðri aðstöðu varðandi hestana, hér hef ég allt
sem til þarf.“ /KSE
Jóhann á Danska meistaramótinu.
Tekilð í sápurennibrautinni í fyrra.