Feykir - 25.07.2013, Qupperneq 5
29/2013 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/sport
Knattspyrna 1. deild karla: Tindastóll – Leiknir Reykjavík 4–3
Stólarnir höfðu betur í sjö marka trylli
Tindastóll og Leiknir Reykjavík mættust í
bráðfjörugum fótboltaleik á Sauðárkróksvelli
sl. laugardag. Kjöraðstæður voru til
knattspyrnuiðkunar, stillt veður og mátulega
hlýtt til að leikmenn gætu sýnt góða takta og
vel færi um áhorfendur. Lokatölur í leiknum
urðu 4-3 fyrir Tindastól.
Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 4.
mínútu gerði Seb Furness í marki Stólanna
sjaldséð mistök, sendi boltann á Leiknismann
sem renndi boltanum til hægri á Kristján Pál
Jónsson sem afgreiddi knöttinn af miklu öryggi í
markið framhjá svekktum Seba. Tindastólsmenn
drifu sig í sókn og fengu hornspyrnu sem Björn
Anton Guðmundsson skallaði í netið. Loftur Páll
lenti í basli eftir að Stólarnir töpuðu boltanum á
eigin vallarhelmingi og Ólafur Hrannar
Kristjánsson skoraði laglega. Enn svöruðu
Stólarnir hratt og örugglega því á 38. mínútu
slapp Ingvi Hrannar Ómarsson inn fyrir vörn
gestanna og setti boltann af öryggi í fjærhornið.
Tindastólsmenn voru sterkari á upphafs-
mínútum síðari hálfleiks og strax á 49. mínútu
skoraði Elvar Páll Sigurðsson og staðan orðin
3-2. Á 88. mínútu náði Chris Tsonis að nýta sér
Loftur Páll Eiríksson í hörkubaráttu við sóknarmann Leiknis.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Helgi Rafn skrifar undir
Þann 17. júlí skrifaði
baráttujaxlinn og fyrirliði
Tindasóls til margra ára undir
samning þess efnis að hann
leiki áfram með liði félagsins
næsta tímabil.
Segja má að kynslóðaskipti
eigi sér stað hjá Tindastóli um
þessar mundir en ljóst er að
liðstyrkur Helga Rafns er
mikilvægur liðinu sem leikur í
fyrstu deild í vetur.
-Mér líst bara nokkuð vel á
þetta, segir Helgi Rafn þegar
mistök í vörn Leiknis, komst á auðan sjó og
þrumaði boltanum í markið. Eitt mark til við-
bótar leit dagsins ljós en dæmd var vítaspyrna á
Tindastólsmenn og Hilmar Árni Halldórsson
minnkaði muninn úr vítinu. Lokatölur 4-3.
Næsti leikur Tindastóls er gegn Völsungum á
Húsavík næstkomandi laugardag og miðviku-
daginn þar á eftir kemur lið Þróttar Reykjavík í
heimsókn á Sauðárkróksvöll. /ÓAB
Úthlutun styrkja úr
Menningarsjóði
Sparisjóðurinn hefur
síðastliðin ár stutt
myndarlega við bakið á
ýmsum menningarverk-
efnum en með því skrefi að
stofna formlega menningar-
sjóð vonast Sparisjóðurinn
eftir að meiri formfesta
komist á úthlutun stykja.
Þessi úthlutun er sú fyrsta,
vonandi í hópi margra, til
menningarmála í Skagafirði.
Að þessu sinni var sótt um
styrki fyrir um 5,3 milljónir en
úthlutað var um 1,5 milljónum
króna. Sparisjóðurinn vonar
að hægt verði að efla sjóðinn
þannig að úthlutunarupp-
hæðin hækki á komandi
árum.
Stefnt er að því að í fram-
tíðinni verði styrkjum úthlut-
að tvisvar á ári. /GSG
Sparisjóður Skagafjarðar
Skagfirskir strengir spiluðu við úthlutunina.
hann er spurður út í komandi
tímabil. –Ég held að þetta verði
góður vetur. Þetta er náttúrulega
uppbygging sem er að eiga sér
stað. Það er fullt af guttum sem
eru að stíga sín fyrstu skref og
reyndar nokkrir þegar búnir að
því. Það er hellingur af mönnum
sem maður á eftir að spila á
móti og þetta verður spennandi
vetur. Mér líst vel á þetta, segir
Helgi Rafn. /PF
Knattspyrna 1. deild kvenna: Tindastóll – Víkingur Ólafsvík 7–1
Öruggur sigur hjá stelpunum
forskot í leikhléið.
Tindastólsstúkur byrðjuðu
seinni hálfleikinn af krafti og
strax á 48. mínútu komst Leslie
upp að endalínu og sendi
boltann fyrir og Bryndís Rún
afgreiddi boltann af öryggi í
netið. Tveimur mínútum síðar
átti Leslie frábært langskot sem
lá í netinu og staðan eftir 5
mínútur orðin 5-1. Á 85.
mínútu átti Ólína frábæra
sendingu á Bryndísi sem átti
góðann kross á Leslie sem
skoraði af öryggi. Síðasta
markið kom svo á 90. mínútu
þegar Snæbjört náði að pota
boltanum í netið eftir
aukaspyrnu frá Leslie. Leiknum
lauk með 7-1 sigri Tindastóls.
Næsti leikur Tindastóls
verður í Reykjavík mánudaginn
29. júlí, en þá mæta stelpurnar
Fram. /GSG
Að þessu sinni hlutu eftirtaldir aðilar styrk:
Skagafjarðarhraðlestin – Lummudagar
Geirmundur Valtýsson – Jólatónleikar
Lafleur – Fantasíur og ljóðmyndir
Kakalaskáli – Leiðsögubæklingur
Kakalaskáli – Eftirprentanir á listaverkum
Skagfirskir strengir – Tónleikaferð
Samgönguminjasafn – Framkvæmdir við safnið
Tónlistarhátíðin Gæran – Tónlistarhátíð
Kvennakórinn Sóldís – Tónleikar
Skagfirski kammerkórinn – Haustdagskrá
Fornverkaskólinn – Námskeið í vefnaði
Byggðasafn Skagfirðinga – Útgáfa
Grundarhópurinn – Menningarhátíð
Markvert ehf – Sýning
Maddömur – Endurbætur á húsnæði
Gísli Þór Ólafsson – Bláar raddir, geisladiskur
Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls – Útgáfa geisladisks
Víkingur Ólafsvík kom í
heimsókn á Sauðárkróksvöll
sl. sunnudag og þrátt fyrir að
það væri yfir 20 stiga hiti og
sól, þá sáu gestirnir aldrei til
sólar í leiknum.
Strax á fyrstu mínútum
leiksins sýndu Tindastólsstúlkur
að þær hafa tekið miklum
framförum og voru betri
aðilinn í leikum. Á 7. mínútu
vann Carolyn boltann á miðjum
vellinum og átti stórglæsilegt
skot rétt fyrr utan teig sem
steinlá í markinu. Fjórum
mínútum síðar gerði Tindastóll
sitt annað mark þegar Guðný
lagði boltann af öryggi í netið.
Eftir þetta náðu Víkingar að
færa lið sitt ofar á völlinn og
uppskáru mark á 25. mínútu og
minnkuðu muninn í 2-1. Á 45.
mínútur renndi Carolyn bolt-
anum glæsilega framhjá mark-
manni Víkings og í netið og
fóru Tindastólsstúlkur með 3-1
Breiðhyltingar höfðu betur
Kormákur/Hvöt, sameigin-
legt lið Vestur- og Austur-
Húnvetninga, spilaði heima-
leik á Blönduósvelli sl.
föstudag í tilefni Húnavöku.
Þrátt fyrir góðan stuðning
heimamanna og Húnavöku-
gesta hafði B-lið Breiðholts
(KB) betur og fór leikurinn
0-1. Einar Örn Einarsson
skoraði eina mark leiksins á
40. mínútu.
Kormákur/ Hvöt er nú í
áttunda og neðsta sæti riðils-
ins með 2 stig. /KSE
Knattspyrna 4. deild karla: Kormákur/Hvöt – KB 0–1
52 keppendur tóku þátt
Opna Steinullarmótið fór fram
á Hliðarendavelli laugar-
daginn 20. júlí í blíðskapar-
veðri. Þátttakendur voru 52
og var leikfyrirkomulagið
punktakeppni með og án
forgjafar og einn opinn
flokkur með forgjöf.
Úrslit í karlaflokki voru
sem hér segir: Punktakeppni
án forgjafar sigraði Jóhann
Örn Bjarkason, GSS (32
punktar). Í kvennaflokki:
Punktakeppni án forgjafar
sigraði Árný Lilja Árnadóttir,
GSS (22 punktar). Í punkta-
keppni með forgjöf sigraði
Atli Freyr Rafnsson, GSS (38
punktar). /GSG
Golf : Opna SteinullarmótiðRakel Svala búin að vinna boltann af leikmanni Víkings.