Feykir - 25.07.2013, Blaðsíða 6
6 Feykir 29/2013
sóknarinnar felast í því
að margir aðilar með ólík
sjónarmið og hagsmuni
eigi í samræðu um og eigi
aðild að stefnumótun um
fiskveiðar. Félagslegt gildi
fiskveiða og fiskvinnslu sé
oft vanmetið í umræðunni
um fiskveiðistjórnum. „Með
þessari rannsókn ætla ég
að varpa ljósi á þætti sem
stjórnvöld og almenningur
geta nýtt til að skilja fiskveiðar
og fiskveiðistjórnun frá ólíkum
sjónarmiðum. Jafnframt er
rannsóknin skráning sögu-
legra heimilda um líf í sjávar-
byggðum á Íslandi í dag,“ segir
hún.
Cat segir það mikilvægt
að rannsóknin sé alveg óháð
öllum hagsmunaðilum og
fjármögnuð af óháðum
aðilum, en hún fjármagnar
rannsóknina með styrk úr U.S.
National Science Foundation,
sem er sambærilegur sjóður í
Bandaríkjunum og Rannís hér
á landi.
Gerði sambærilega
rannsókn í Alaska
Cat hefur áður gert
sambærilega rannsókn í
Alaska, sem gefur kost á
samanburði við niðurstöður
þaðan. Í rannsókninni prófar
hún fullyrðingar á borð við
Fiskveiðar eru fyrir mér bara
atvinna og Ég hef hugsað um
að hætta fiskveiðum. Cat segir
að sumar fullyrðingarnar sem
svarendur eru beðnir um að
„Með viðtölum við ólíka
einstaklinga sem tengjast
veiðunum og þessari könnun
vonast ég til að draga fram
reynslu íbúa í sjávarbyggðunum
og setja hana í samhengi við
félagslegt og efnahagslegt
mikilvægi fiskveiða og fisk-
veiðistjórnunar,“ segir Cat. „Ég
gerði um 500 manna úrtak og
því er mjög mikilvægt að sem
flest svör skili sér,“ bætir hún
við.
Með rannsókninni ætlar Cat
að skrá og lýsa sögu þátttakenda
í þrennskonar smábátaútgerð
á svæðinu. Þannig mun hún
skrásetja sögur og orðræðu um
mismunandi fiskveiðistjórnun
á Íslandi með tilliti til
verndunar fiskistofna, aðgengi
að fiskveiðum og annarra
hvata en efnahagslegra,
til þátttöku í fiskveiðum.
Einnig ætlar hún að leggja
mat á þátttöku í fiskveiðum,
félagslega og efnahagslega
afkomu af fiskveiðum og
hagsmuni af veiðunum og
hvernig sá breytileiki tengist
fiskveiðistjórnum.
„Ég tók formleg og óform-
leg viðtöl við breiðan hóp
þátttakenda í veiðum og vinnslu,
s.s. áhafnir, skipstjórnarmenn,
bátaeigendur, fiskvinnslufólk,
þjónustuaðila og aðra aðila
sem eru virkir í tengslum við
fiskveiðar og fiskvinnslu,“ segir
Cat. „Óformlegu viðtölin tók
ég á vettvangi í fiskvinnslum og
um borð í bátum til að kynnast
fiskveiðum og fiskvinnslu á
Íslandi betur. Út frá þeim samdi
ég svo spurningakönnunina.“
Cat segir mikilvægi rann-
Catherine Chambers rannsakar fiskveiðar við Ísland
„Ætla að skoða félagslegt
og efnahagslegt gildi fiskveiða“
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Catherine Chambers, sérfræðingur í strandmenningu hjá Þekkingarsetrinu á Blönduósi, vinnur
nú að doktorsverkefni sínu við Háskólann í Alaska (University of Alaska Fairbanks). Með
verkefninu hyggst hún skýra betur forsendur smábátaútgerðar, það er grásleppuveiða, strandveiða
og kvótaveiða, í byggðunum við Húnaflóa og Skagafjörð. Hún hefur því útbúið könnun sem send
verður út til 500 sjómanna vítt og breytt um landið á næstu dögum og vonast eftir að svörin gefi
sem besta mynd af rannsóknarefninu. Auk þess hefur hún tekið viðtöl við ólíka einstaklinga sem
tengjast veiðunum. Cathrine, eða Cat eins og hún er gjarnan kölluð, biðlar því til þeirra sem lent
hafa í úrtaki að gefa sér tíma til að taka þátt og svara. Blaðamaður kynnti sér verkefnið sem þessi
Blönduósingur frá Bandaríkjunum vinnur að.
merkja við kunni að hljóma
undarlega, en þær séu engu að
síður mikilvægar til að meta
félagsleg viðhorf til veiðanna.
Varðandi aðrar sambærilegar
rannsóknir sem gerðar hafa
verið hérlendis nefnir hún t.d.
að Háskólasetur Vestfjarða hafi
gert rannsókn á strandveiðum
árið sem þær hófust og Matís
hafi gert rannsókn á viðhorfi til
kvótakerfisins. „En þessi hefur
m.a. sérstöðu af því hún er
fjármögnuð erlendis frá.“
Cat starfar sem sérfræðingur
í strandmenningu og gegnir
stöðu sem tilheyrir bæði
Þekkingarsetrinu á Blönduósi
og Háskólanum á Hólum.
Hún hefur verið hér á landi
síðan 2008, þegar eiginmaður
hennar hóf mastersnám við
Háskólann á Hólum og síðan
þá hafa þau komið og farið.
Þau fluttu á Blönduós þegar
hún fékk starfið fyrir um einu
og hálfu ári og nú eru þau bæði
í vinnu á Norðurlandi vestra.
Rannsóknin verður send
út í pósti kringum Versl-
unarmannahelgina og þátt-
takendur hafa tíma fram í
ágúst/ september til að svara
henni. Fyllstu nafnleyndar
verður gætt og ekki þarf að
svara í gegnum tölvu þar sem
könnunin verður send út. Auk
könnunarinnar hefur Cat tekið
viðtöl við sjómenn, en þau
eru tímafrekari og könnunin
gefur meira magn upplýsinga á
stuttum tíma.
Sjálf er Cat á leið í fæðing-
arorlof og mun vinna úr
gögnunum þegar hún kemur
til starfa á ný. Næsta vor
eða um mitt sumar vonast
hún til að vera komin með
frumniðurstöður en heildar-
niðurstöður ættu að liggja
fyrir fyrri hluta árs 2015. Við
úrvinnsluna vonast Cat til að
njóta samstarfs annarra sem
rannsaka strandmenningu
og fiskveiðar, sem hún segir
mikilvægt að hafa aðgang að
þar sem hún sé sjálf ný í faginu
hér á landi.
Cat segir að vinnan
við rannsóknina fari vel
saman með starfi sínu við
Þekkingarsetrið, sérstaklega
þar sem þessi rannsókn teng-
ist strandsmenningu beint.
Hún segir rannsókn af þessu
tagi mjög viðamikla og veita
margvíslegar upplýsingar og
opna nýjar spurningar sem
leiða til frekari rannsókna,
sem t.d. Þekkingarsetrið
getur nýtt sér. Hún hlakkar
til verkefnisins og vonast eftir
góðum viðbrögðum íslenskra
sjómanna.