Feykir - 25.07.2013, Page 9
29/2013 Feykir 9
Einhverjir hafa eflaust
velt því fyrir sér hvað
gerðist í lífi mínu.
Einhverjir hefðu sagt að
ég væri bara fyllibytta
og dópisti fyrir ekki
svo löngu síðan. En í
dag á ég virkilega flott
og gott líf. Ég byrjaði
ung að „detta í‘ða“. Ég
byrjaði eiginlega strax að
drekka bæði föstudag og
laugardag og um hverja
helgi. Ekki leið á löngu
þar til ég var fljótt farin
að drekka fjóra daga
vikunnar. Og áður en ég
vissi af var ég farin að
drekka á hverjum degi
ásamt því sem ég var
farin að nota önnur efni
með áfenginu.
Ég man eftir tímabili þar
sem ég bjó heima hjá
foreldrum mínum og þegar
ég kom heim eftir vinnu
fékk ég mér kaffibolla
með vodka út í, í von um
að þau myndu ekki fatta
neitt. Ég var að reyna að
stjórna drykkju minni og
var eflaust ekki nema rétt
um 18 ára eða svo, man
nú ekki alveg tímann nógu
vel en ég var einum of
ung til að vera að pæla í
þessu! Á sama tíma var
ég farin að fá mér eitt og
annað þegar ég vaknaði,
mér fannst ég ekki annars
komast fram úr rúminu.
Eftir partý þegar ég
vaknaði fór ég jafnvel fram
úr og drakk afgangana úr
glösunum. Svo kom að því
að ég var 22 ára, “bjó” í
bænum og nýlega komin
úr minni annarri meðferð
þegar ég datt í það og tók
mitt síðasta “djamm” sem
varði í sex mánuði.
Ég komst svo loks í mína
þriðju meðferð upp á
Hlaðgerðarkoti sem er
Kristileg meðferðarstofnun.
Þetta var fyrsta skiptið mitt
þar og það gerðist eitthvað
stórkostlegt þarna! Þvílíkur
kærleikur sem er á einum
stað, ég hafði bara aldrei
upplifað annað eins. Á
Hlaðgerðarkoti kynntist ég
Jesú Kristi sem í dag er
frelsarinn minn. Ég er búin
að vera edrú síðan 11.
mars 2010 og hef í raun
ekki þurft að glíma við
neina fíkn síðan þá. Ég -
manneskjan sem gat ekki
lifað án þess að fá mér!
Ég öðlaðist kraft til að
takast á við líf mitt á nýjan
og betri hátt og ég hef
öðlast svo ótrúlega fallegt
líf í dag. Ég hef líka fengið
að gera alveg ótrúlega
hluti, hluti sem ég hefði
aldrei látið mig einu sinni
dreyma um þegar ég
var í neyslu. Eins og að
fara til Afríku að stunda
hjálparstarf, og að fara
til Indlands ásamt því að
ferðast um Evrópu. Í dag
er ég búin að klára þriggja
ára Biblíunám í Masters
Commission og hef bara
brennandi áhuga á að
mennta mig meira.
Í dag veit ég hver ég er,
og ég veit hvert ég stefni.
Ég ætla mér að ná árangri
í lífi mínu. Ég er búin að
ákveða að mín leið í lífinu
er að hjálpa einstaklingum
sem hafa verið og eru
jafnvel í þeirri stöðu sem
ég var í. Að komast upp
úr þeim forarpytti. Ég
var leyst undan erfiðum
og þungum birgðum
eins og er talað um í
Matteusarbréfi 11. kafla
vers 28. En þar segir:
„Komið til mín, öll þér
sem erfiðið og þunga eruð
hlaðin, og ég mun veita
yður hvíld”.
Hver eru þín erfiði og þínar
þungu birgðir? Jesús er
í boði fyrir alla, og hann
hefur svo sannarlega veitt
mér hvíld. Ég stend ekki
lengur í stöðugri baráttu
með líf mitt eins og ég
gerði. Lífið hefur orðið svo
miklu auðveldara, vona
að þið gefið Guði sjéns
og hleypið honum inn í
hjartað ykkar. Guð blessi
ykkur!
- - - - -
Ég skora á Lindu Rós
Ómarsdóttur að taka við
pennanum.
Selasetur Íslands
Uppstoppaðir selir
og beinagrindur
Á Selasetrinu á
Hvammstanga ber margt
fyrir augu, meðal annars
uppstoppaða seli og
beinagrindur. Setrið
sinnir rannsóknum og
skoðunarferðum, ásamt
því að vera með sýningar.
Selasetrið var stofnað árið
2005 og er rekið samhliða
upplýsingamiðstöð. Hönn-
uður sýningar var Steinþór
Sigurðsson. Það er staðsett á
við Strandgötu 1 á Hvamms-
tanga. Yfir sumarið, það er frá
1. júní til 31. ágúst er opið alla
daga vikunnar frá 9-19. Seinni
hluta maí og fyrri hluta
september er opið alla daga frá
9-16, seinni hluta september
og fyrri hluta maí er opið virka
daga frá 9-16. Annars er alltaf
opnað eftir samkomulagi og er
nóg að hringja í síma 45-12345
til að láta opna.
Selasetrið er rekið af 93
hluthöfum; stofnunum,
fyrirtækjum, sveitarfélögum
og einstaklingum, en félagið
gerir engar arðsemiskröfur.
Forstöðumaður Selaseturs er
Vignir Skúlason. Í fyrra
heimsóttu rúmlega 11.000
gestir Selasetrið og var það
112% aukning frá árinu áður.
-Við sjáum fram á gríðarlega
aukningu nú, annað árið í
röð, segir Vignir. -Og má það
þakka fjölþættri markaðs-
setningu. T.d. má nefna að
náið samstarf hefur verið sett
í gang við Hvalasafnið á
Húsavík (og Norðursiglingu),
þar hefur verið sett upp
sýningaraðstaða á besta stað
þar sem Selasetrinu ásamt
Húnaþingi vestra eru gerð
greinargóð skil. Hnitmiðuð
markaðssetning er greinilega
að skila sér.
Markmið Selaseturs
Íslands er að vera leiðandi í
rannsóknum á sel við Ísland
og standa fyrir fræðslu um
seli. Vinna að uppbyggingu
selaskoðunar sem afþreying-
ar í ferðaþjónustu, auk þess
að rannsaka og byggja upp
náttúrutengda ferðaþjónustu.
Selasetrið hyggst ná þessum
markmiðum sínum með því
að efla eigin starfsemi og
þekkingu innan félagsins,
fjölga starfsfólki, sérfræð-
ingum og samstarfsaðilum,
vinna að auknu samstarfi við
stofnanir, fyrirtæki og ein-
staklinga, ásamt því að koma
á samstarfverkefnum bæði
innanlands og utan.
Selasetrið leggur áherslu á
að hafa færustu vísindamenn
á sínum snærum og að vinna
í nánu samstarfi við rann-
sóknastofnanir og sérfræð-
inga. Fræðsludeild Selaset-
ursins miðlar síðan
upplýsingum um rannsókn-
irnar og lifnaðarhætti sela til
alþjóðasamfélagsins, al-
mennings og ferðamanna.
Katrín Inga Hólmsteinsdóttir á Skagaströnd skrifar
Djamm sem varði í sex mánuði
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
Aflahornið 14. júlí -21. júlí 2013
Hlé á strandveiðum til 1. ágúst
Í vikunni sem leið var landað rúmum 27
tonnum á Sauðárkróki og rúmum 14 á Hofsósi,
eða samtals um 40 tonnum hjá Skagafjarðar-
höfnum sem er einungis afli af strandveiðum.
Verður nú hlé á þeim til 1. ágúst. Á Hvamms-
tanga var landað 4,4 tonnum og rúmum 100
tonnum á Skagaströnd. /KSE
Brák HU 115 Handfæri 541
Harpa HU 4 Handfæri 3860
Alls á Hvammstanga: 4401 kg
Alda HU-112 Landb. Lína 8.942
Arney Lína 15.331
Ásdís ÓF-250 Handfæri 1.924
Bergur sterki HU-17 Handfæri 3.128
Bjarmi HU-33 Handfæri 3.206
Bjartur í Vík Handfæri 3.200
Bogga í Vík HU-6 Handfæri 3.175
Blær HU-77 Handfæri 1.774
Dagrún ST-12 Dragnót 3.087
Eiður ÍS-126 Rækjutroll 3.139
Elín ÞH-82 Handfæri 2.651
Garpur HU-58 Handfæri 3.089
Greifinn SK-19 Handfæri 3.149
Guðrún Ragna BA-162 Handfæri 3.137
Hafrún Dragnót 12.182
Húni HU-62 Handfæri 3.580
Hvítá MB-2 Handfæri 2.199
Muggur KE-57 Handfæri 6.254
Nonni HU-9 Handfæri 3.091
Ólafur Magnúss. HU-54 Handfæri 3.109
Snorri ST-24 Handfæri 2.906
Stormur EA-48 Handfæri 653
Straumur EA-18 Handfæri 2.095
SETRIÐ MITT
UMSJÓN kristin@feykir.is
Sveinbjörg HU-49 Handfæri 2.269
Sæborg SK-8 Handfæri 1.393
Víðir ÞH-210 Handfæri 2.268
Alls á Skagaströnd: 100.931
Berglind SH-574 Handfæri 2.057
Bliki SK-15 Handfæri 129
Hafey SK-10 Handfæri 3.052
Helga Guðm. SK-23 Handfæri 3.042
Kristín SK-77 Handfæri 2.404
Maró SK-33 Handfæri 3.150
Már SK-90 Handfæri 2.976
Óskar SK-13 Handfæri 2.158
Ríkey SK-111 Handfæri 529
Steini G SK-14 Handfæri 2.121
Vinur SK-22 Handfæri 2.629
Þytur SK-18 Handfæri 421
Ösp SK-135 Handfæri 2.652
Alls á Sauðárkróki: 27.320
Aggi Si-8 Handfæri 406
Ásmundur SK-123 Landb lína 4.609
Dúan SI-130 Handfæri 2.850
Hafbjörg SK-58 Handfæri 1.732
Skáley SK-32 Handfæri 2.806
Þorgrímur SK-27 Landb. lína 1.724
Alls á Hofsósi 14.127 kg
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG