Feykir - 25.07.2013, Síða 11
29/2013 Feykir 11
BJARNI SMÁRI GÍSLASON
-Mjög vel, þær líta vel út.
Fallegt lið.
ORRI HREINSSON
-Vonandi sem best bara.
PÁLMI GEIR JÓNSSON
-Aðeins betur en fyrr
á tímabilinu.
ELÍNBORG ERLA
ÁSGEIRSDÓTTIR
-Vonandi bara vel.
MARGRÉT ALDA
MAGNÚSDÓTTIR
-Rooosalega vel.
Feykir spyr...
[SPURT Á KRÓKNUM]
Hvernig heldur
þú að meistara-
flokki kvenna
eigi eftir að
ganga það sem
eftir er af sumri?
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina ætti að
bregða sér á Eld í Húnaþingi og taka hina með sér.
Tilvitnun vikunnar
Lífið hefst þann dag sem þú eignast garð.
- Kínverskt
Sudoku
Þrjú dægur í bjargi
FRÉTTIR FYRRI ALDA : SKAGASTRÖND 1618 GAGN & GAMAN
Ótrúlegt en kannski satt
Maðurinn hefur mismikið litarefni í húðinni og
eins og nærri má geta hafa blökkumenn meira
af því en hinn dæmigerði Íslendingur. En allir
menn eiga það sameiginlegt að hafa ansi lítið
að litarefni í lófum og iljum og verða því ekki
sólbrúnir á þeim stöðum. Ótrúlegt en kannski satt
eru þeir einu prímatarnir sem svo er ástatt fyrir.
Pétur og Bjarney kokka
Bláberjaís á
fimm mínútum
Rækjusalat með
eplum og ananas
1/2 haus jöklasalat
1/2 gúrka
2 græn epli
1 rauð paprika
1/4 ferskur ananas
1/4 blaðlaukur
1/2 poki klettasalat
300 g stórar rækjur
1 1/2 dós sýrður rjómi
1/2 sítróna
salt og nýmalaður pipar
1 dl ferskar kryddjurtir, eftir
smekk (smátt saxaðar)
Aðferð: Rífið niður salatið,
fræhreinsið epli og papriku og
skerið í bita ásamt gúrku og
ananas. Saxið blaðlauk. Raðið
fallega ofaná salatið og hafið
rækjurnar efstar.
Hrærið saman sýrða
rjómann, sítrónusafa, krydd-
jurtir, salt og pipar. Gott að byrja
á að hræra saman dressinguna og
láta bíða í ísskáp þar til salatið er
borið fram.
Kartöflugratín
með spergilkáli
1/2 kg kartöflur
1/2 haus spergilkál
1 stk laukur
1 rif hvítlaukur
1 1/2 dl rjómi
1 1/2 dl mjólk
salt og nýmalaður pipar
u.þ.b. 150 g rifinn ostur
Aðferð: Penslið hæfilega stórt
eldfast mót. Skerið kartöflur í
sneiðar og spergilkál fremur
smátt. Forsjóðið í saltvatni þar til
tæplega meyrt. Laukur saxaður.
Setjið kartöflur, spergilkál og lauk
í mótið. Blandið saman rjóma,
mjólk, pressuðum hvít-lauk, salti
og pipar og hellið yfir. Dreifið
rifna ostinum yfir og bakið í 180°
heitum ofni í u.þ.b. 30 mínútur
eða þar til gratínið hefur fengið
fallega gullin lit. Hér má líka
rífa niður piparost og bræða í
rjómablandinu sem hellt er yfir
og sleppa þá salti og pipar.
Bláberjaís
400 g frosin bláber
200 ml rjómi
1 stk egg
10 dropar stevía
Aðferð: Setjið bláberin í mat-
vinnsluvél og látið vélina snúast
í nokkrar sekúndur. Bætið síðan
útí rjóma, eggi og stevíu. Unnið
saman þar til blandan hefur
fengið þykka og fallega áferð.
Verði ykkur að góðu!
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
Bjarney Alda Benediktsdóttir frá Neðri-Torfustöðum í
Miðfirði. Við búum að Neðri-Torfustöðum ásamt börnum
okkar. Þau eru Ármann, Kristrún og María.
Bústofninn á bænum er blandaður; kýr, kindur og nokkur
hross. Ekki má gleyma að nefna tíkina okkar Millu, örustu
hjálparhellu norðan Alpafjalla, segja hjónin Pétur og Bjarney,
sem eru matgæðingar vikunnar að þessu sinni.
Sumarið er tími uppskeru. Því er ekki úr vegi að uppskriftirnar
innihaldi að einhverju leyti eitthvað af öllu því góða hráefni sem
náttúran og gróðurhús landsins hafa uppá að bjóða. Við deilum
því með ykkur þremur uppskriftum, með þetta í huga. Ferskt
salat sem endalaust er hægt að breyta, allt eftir smekk eða því
hvað til er í ísskápnum hverju sinni. Gratín sem passar vel með
öllum mat, ekki síst grilluðum og að lokum hvernig töfra má
fram yndislegan bláberjaís á aðeins 5 mínútum.
Við skorum á nágranna okkar þau Pálínu Fanneyju
Skúladóttur og Einar Georg Einarsson sem næstu matgæðinga
vikunnar.
-Við erum hjónin Pétur
Hafsteinn Sigurvaldason frá
Litlu-Ásgeirsá í Víðidal og
Bóndi einn á Skagaströnd fór í vor í fuglabjarg með
konu sína... Meðan bóndi var á syllunni, henti það slys
konuna, að hún steyptist fram af brúninni og hrapaði
niður á snös, er var í bjarginu fyrir neðan bóndann. Ekki
hafði annað fólk vitað um ferðir þeirra hjóna, og liðu
svo þrjú dægur að þeim barst ekki hjálp.
> Öldin sautjánda, bls 52