Feykir - 25.07.2013, Page 12
Dusty Miller
Hvernig myndir þú/þið lýsa tónlistinni
þinni/ykkar? -Rokk/popp/rótgróin bráðin
framtíðarmúsík.
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt
sér stað á tónleikum hjá þér/ykkur? -Nei.
Hvernig leggst það í þig/ykkur að spila á
Gærunni 2013? -Okkur hlakkar mikið til að
koma, spila og njóta! Afar skemmtileg hátíð
hér á ferð og vel séð um sína.
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
29
TBL
25. júlí 2013 33. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
VEIÐIDAGAR
20% afsláttur
af allri veiðivöru
fimmtudag, föstudag og laugardag
Móttaka
Hesteyri 2 550 Sauðárkróki
Vélaverkstæði KS
veitir alhliða
pípulagnaþjónustu
Sími hjá pípulagnadeild
er 825-4565
Jón Geirmundsson pípulagningameistari
Hvað er á döfinni hjá þér/ykkur? -Gefa út plötu
með tíð og tíma og leika á hljómleikum ásamt því að vinna nýtt efni. /GSG
Kontinuum
Hvernig mynduð þið lýsa
tónlistinni ykkar? -Við erum
rokkhljómsveit. Við spilum indí
slegið rokk málm suðu með
trúarlegri sannfæringu. Rokk,
dulúð, fegurð, draumar, reiði, hávaði
og læti. Bara eins og lífið.
Hefur einhvern tímann eitthvað
skondið átt sér stað á tónleikum hjá
ykkur?
-Á síðustu tónleikum var einn hress
sem grátbað okkur um að fá að
dansa á sviðinu meðan við spiluðum,
nakinn. Nekt hans hefði líklega ekki
gert mikið fyrir okkur, áhorfendur eða orðspor
hans, þannig við afþökkuðum, en hann grét
hinsvegar alla tońleikana í fremstu röð. Alvöru.
Vonandi grenjar einhver á Sauðárkróki líka, af
réttum ástæðum.
Hvernig leggst það í ykkur að spila á Gærunni
2013? -Við hlökkum mikið til að spila. Við höfum
bara heyrt góða hluti um hátíðina og finnst
frábært að sjá hversu fjölbreytileg böndin eru.
Tónlist á að vera landamæra- og fordómalaus,
Gæran er það.
Hvað er á döfinni hjá þér/ykkur? -Við vorum
að koma af Eistnaflugi. Gáfum nýverið út
myndaband við lagið Moonshine, sem var
snögglega bannað í birtingu á daginn í sjónvarpi.
Erum að spila á festivali í Camden London síðar í
sumar og svo Iceland Airwaves í haust. /GSG
TÓNLISTARHÁTÍÐIN GÆRAN
SAUÐÁRKRÓKI 15.-17. ÁGÚST
Hljómsveitir Gærunnar 2013 í spjalli við Feyki