Feykir


Feykir - 19.12.2013, Blaðsíða 4

Feykir - 19.12.2013, Blaðsíða 4
4 Feykir 48/2013 Jóhannes Friðrik Þórðarson, betur þekktur sem Jói Þórðar, varð við græjuáskoruninni frá Ástu Birnu. Jói starfar hjá föður sínum, Þórði Hansen og vinnur á kranabílum, gröfum og allskyns vinnuvélum og tækjum. Jói er í sambúð með Helgu Eyjólfsdóttur og eiga þau eina dóttur saman, hana Maríu Dögg, já og svo einn hund, hann Skugga. „Þetta er fjöl- skyldusport“ Áramótalúkkið 2012 UMSJÓN Guðrún Sif Gísladóttirttir Hvaða græju heldur þú mest upp á og hvers vegna? Í augnablikinu er það Timberslede græjan mín sem er motocross hjól, en í stað afturdekks er belta- búnaður og í stað fram- dekks er skíði. Hvernig kom það til að þú eignaðist þessa græju? Ég fékk hjólið í fertugs afmælisgjöf og fluttum við þetta inn frá USA. Hvernig var fyrsta gerðin af þessari græju sem þú eignaðist? Þetta er í raun fyrsta og eina tækið hér í Skagafirði eins og er. Er græjan jafn vinsæl hjá öðrum fjölskyldumeð- limum? Já, mæðgurnar eru alsælar fyrir mína hönd og svo er þetta fjölskyldusport og í raun allt motorsport. Við hvaða tækifæri nýtist græjan mest? Þegar Timberslede bún- aðurinn er undir þá nýtist hann á veturna og er ég að fara á sömu staði og vélsleðamenn/konur og á sumrin nota ég hjólið í motocross og enduro. Áttu einhverja skemmtilega sögu tengda græjunni? Ég er kannski ekki með neina skemmtisögu en það sem er skemmtilegt við þetta sport er að geta farið á fjöll og notið náttúrunnar í öllu sínu veldi. Hvern vilt þú sjá svara þessum spurningum? Ég myndi vilja að hann Addi vélstjóri á Örvari svari næst, hann er ótrúlega magnaður smiður og ég veit að það leynist ýmislegt í skúrnum hjá honum. Jóla barnaball Lions Verður haldið á sal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki laugardaginn 28. des. kl. 16:00 Allir hjartanlega velkomnir – börn og fullorðnir Nemendur í 10. bekk Árskóla syngja og dansa við jólatréð. Jólasveinarnir koma með glaðning... Hóhó! Öll börn fá kveðjugjöf ÞAKKIR FYRIR STYRK OG STUÐNING: Fisk Seafood - Steinullarverksmiðjan - Aldan stéttarfélag - Kaupfélag Skagfirðinga - Ólafshús - Skagfirðingabúð - Vífilfell - Sveitarfélagið Skagafjörður - Landsbanki Íslands - Árskóli - FNV - Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson - Rögnvaldur Valbergsson - Nýprent - Jólasveinarnir og aðrir - Feykir - Velunnarar Minnum Lions félaga á að mæta til undirbúnings morguninn 28. des. kl. 10:00. LIONSKLÚBBURINN BJÖRK LIONSKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS Græjan mín Í körfu um jólin Áramótalúkkið 2012 Jólamót Molduxa haldið í tuttugasta sinn Annan jóladag ár hvert hefur Jólamót Molduxa í körfubolta verið haldið sl. tvo áratugi. Fyllist þá íþróttahúsið af allskyns körfuboltakempum á öllum aldri sem leika frekar af kappi en forsjá. Mótið er sérstaklega vin- sælt meðal brottfluttra Skagfirðinga sem vilja sýna sig og sjá aðra og um leið rifja upp körfuboltakunn- áttuna sem virðist aldrei gleymast, bara ryðga. Flestir hafa keppendur verið um 160 en oftast taka um 20 – 25 lið þátt í mótinu. Allur ágóði hefur runnið til körfuboltadeildar Tinda- stóls sem séð hefur um dómgæslu og nú ætla yngri flokkar að sjá um ritara- störf. Keppt verður í opnum flokki, kvennaflokki og +35 og fer skráning fram á netfangið pilli@simnet.is eða í síma 8619842 og henni lýkur á hádegi jóla- dags 25. desember. Mótið hefst svo stundvíslega klukkan tólf daginn eftir, þann 26. desember. /PF Systkinin Rannveig, Sigurður, Erla Guðrún og Vilberg á jólamótinu í fyrra.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.