Feykir


Feykir - 19.12.2013, Side 10

Feykir - 19.12.2013, Side 10
10 Feykir 48/2013 Jóladagatal Skagafjarðar er á www.visitskagafjordur.is Dagskráin um jól og áramót 26. DESEMBER Jólaball í Ketilási í Fljótum kl. 15:00 28. DESEMBER Jólaball í Höfðaborg, Hofsósi, kl. 14. Jólaball Lionsklúbbsins kl. 16:00 í sal FNV á Sauðárkróki. 29. DESEMBER Jólatrésskemmtun Kvenfélags Lýtingsstaðahrepps í Árgarði kl. 14. Jólatrésskemmtun Kvenfélags Skarðshrepps í Ljósheimum kl. 15. Kvenfélag Rípurhrepps býður til jólaballs í félagsheimilinu í Hegranesi kl. 15. Brennur og flugeldasýningar í Skagafirði á gamlárskvöld SAUÐÁRKRÓKUR: Kveikt verður í brennu kl. 20:30. Flugeldasýning Skagfirðingasveitar kl. 21:00. VARMAHLÍÐ: Kveikt verður í brennu við afleggjarann upp í Efri-Byggð kl. 20:30. Flugeldasýning Flugbjörgunarsveitarinnar kl. 21:00. HOFSÓS: Kveikt verður í brennu á Móhól kl. 20:30. Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Grettis kl. 21:00. HÓLAR: Kveikt verður í brennu sunnan við Víðines kl. 20:30. Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Grettis kl. 21. Sveitarfélagið Skagafjörður óskar íbúum Skagafjarðar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári í Skagafirði 2013 Jólaböll & áramótabrennur Óskum íbúum Norðurlands vestra GLEÐILEGRA JÓLA & FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI Maður ársins 2013 Norðurland vestra Hægt verður að greiða atkvæði á Feyki. is, þá aðeins einu sinni á sólarhring úr hverri IP tölu. Þeir sem ætla að greiða atkvæði á þann hátt skulu þó athuga að fleiri en ein tölva á heimili eða vinnustað geta verið tengdar sömu IP tölu. Einnig er hægt að senda atkvæði bréfleiðis á Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki. Kosningin hefst klukkan 13:00 föstudaginn 20. desember og henni lýkur á hádegi 2. janúar á nýju ári. Tilnefndir voru: Elín Ósk Guðmundsdóttir á Blönduósi Elín Ósk er skólaliði við Blönduskóla en hún kom samstarfsmanni sínum Ólafi Sigfúsi Benediktssyni til lífsbjargar þegar hann var að hlaupa norræna skólahlaupið með nemendum sínum og fór í hjartastopp. Með snöru viðbragði og kunnáttu sinni náði hún að hnoða hann þar til sjúkralið kom á vettvang. Geirmundur Valtýsson, hljómlistar- maður Geirmundur á að baki 55 ára hljóm- listarferil en árið 2013 var „comeback“ hjá Geirmundi þar sem lögin hans voru bæði notuð í leiksýningu á Sauðárkróki og söngdagskrá með lhjá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Bæði umrædd verkefni gerðu lukku og vöktu athygli á Geirmundi sem frábærum lagahöfundi. Ísólfur Líndal Þórisson, Lækjamóti Ísólfur Líndal hefur verið sigursæll í hestamennskunni og unnið til fjölda verðlauna. Auk þess að bera titilinn Íþróttamaður USVH var hann valinn gæðingaknapi ársins 2013 á uppskeruhátíð hestamanna sem fram fór á Broadway snemma í nóvember. Þá réðst Ísólfur í mikla uppbyggingu á Lækjamóti sem skiptir miklu fyrir samfélagið í Húnaþingi. Jóna Halldóra Tryggvadóttir, Hvammstanga Jóna Halldóra var nefnd af fleirum en einum fyrir hjálpsemi. Hún er alltaf boðin og búin til að hjálpa öðrum og á skilið mikil lof fyrir. Á það skilið að vera kosin Maður ársins. Lárus Ægir Guðmundsson, Skagaströnd Lárus Ægir hefur staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum á Skagaströnd og boðið Húnvetningum að njóta með sér. Þá gaf hann flygil í Hólaneskirkju í haust. Stendur vel undir titlinum Maður ársins. Selma Björk Stefánsdóttir, Sauðárkróki Selma Björk er 9 ára stelpa sem býr ásamt foreldrum sínum og systkinum á Sauðárkróki. Selma er yndisleg og kát stelpa, en hún hefur barist við flogaveiki og lá m.a. inni á Barnaspítala hringsins í nokkrar vikur í haust. Selma á þennan titil skilinn þar sem hún er ótrúlega sterk og dugleg og brosir í gegnum veikindi sín. Selma Björk er hetja! Unnur Sævarsdóttir, Hamri í Hegranesi Unnur á Hamri kom í veg fyrir að fjósið á Egg í Hegranesi brynni ásamt öllum gripum sl. sumar. Árvekni og hröð viðbrögð hennar og hennar heimafólks varð til þess að ekki fór verr í brunanum og kom í veg fyrir að að ung hjón sem voru nýbyrjuð að búa misstu allt sitt lifibrauð sem þau voru búin að leggja mikinn metnað og ómælda vinnu í að koma á fót. /PF UMSJÓN Palli@feykir.is Eins og undanfarin ár geta íbúar á Norðurlandi vestra kosið mann ársins sem tilnefndir voru af lesendum Feykis og Feykis.is. Í þetta skiptið fengu sjö aðilar tilnefningu til titilsins og sumir reyndar fleiri en eina og fleiri en tvær. Þeir sjö sem hér eru nefndir verða í kjöri sem Maður ársins á Norðurlandi vestra 2013.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.