Feykir - 19.12.2013, Qupperneq 10
10 Feykir 48/2013
Jóladagatal Skagafjarðar er á www.visitskagafjordur.is
Dagskráin um jól og áramót
26. DESEMBER
Jólaball í Ketilási í Fljótum kl. 15:00
28. DESEMBER
Jólaball í Höfðaborg, Hofsósi, kl. 14.
Jólaball Lionsklúbbsins kl. 16:00 í sal FNV á Sauðárkróki.
29. DESEMBER
Jólatrésskemmtun Kvenfélags Lýtingsstaðahrepps í Árgarði kl. 14.
Jólatrésskemmtun Kvenfélags Skarðshrepps í Ljósheimum kl. 15.
Kvenfélag Rípurhrepps býður til jólaballs í félagsheimilinu í Hegranesi kl. 15.
Brennur og flugeldasýningar
í Skagafirði á gamlárskvöld
SAUÐÁRKRÓKUR: Kveikt verður í brennu kl. 20:30.
Flugeldasýning Skagfirðingasveitar kl. 21:00.
VARMAHLÍÐ: Kveikt verður í brennu við afleggjarann upp í Efri-Byggð kl. 20:30.
Flugeldasýning Flugbjörgunarsveitarinnar kl. 21:00.
HOFSÓS: Kveikt verður í brennu á Móhól kl. 20:30.
Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Grettis kl. 21:00.
HÓLAR: Kveikt verður í brennu sunnan við Víðines kl. 20:30.
Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Grettis kl. 21.
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar íbúum Skagafjarðar
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
í Skagafirði 2013
Jólaböll &
áramótabrennur
Óskum íbúum
Norðurlands vestra
GLEÐILEGRA JÓLA
& FARSÆLDAR
Á KOMANDI ÁRI
Maður ársins 2013
Norðurland vestra
Hægt verður að greiða atkvæði á Feyki.
is, þá aðeins einu sinni á sólarhring úr
hverri IP tölu. Þeir sem ætla að greiða
atkvæði á þann hátt skulu þó athuga að
fleiri en ein tölva á heimili eða vinnustað
geta verið tengdar sömu IP tölu. Einnig
er hægt að senda atkvæði bréfleiðis á
Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki.
Kosningin hefst klukkan 13:00
föstudaginn 20. desember og henni
lýkur á hádegi 2. janúar á nýju ári.
Tilnefndir voru:
Elín Ósk Guðmundsdóttir á Blönduósi
Elín Ósk er skólaliði við Blönduskóla en
hún kom samstarfsmanni sínum Ólafi
Sigfúsi Benediktssyni til lífsbjargar
þegar hann var að hlaupa norræna
skólahlaupið með nemendum sínum og
fór í hjartastopp. Með snöru viðbragði
og kunnáttu sinni náði hún að hnoða
hann þar til sjúkralið kom á vettvang.
Geirmundur Valtýsson, hljómlistar-
maður
Geirmundur á að baki 55 ára hljóm-
listarferil en árið 2013 var „comeback“
hjá Geirmundi þar sem lögin hans voru
bæði notuð í leiksýningu á Sauðárkróki
og söngdagskrá með lhjá Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps. Bæði umrædd
verkefni gerðu lukku og vöktu athygli á
Geirmundi sem frábærum lagahöfundi.
Ísólfur Líndal Þórisson, Lækjamóti
Ísólfur Líndal hefur verið sigursæll í
hestamennskunni og unnið til fjölda
verðlauna. Auk þess að bera titilinn
Íþróttamaður USVH var hann valinn
gæðingaknapi ársins 2013 á
uppskeruhátíð hestamanna sem fram
fór á Broadway snemma í nóvember. Þá
réðst Ísólfur í mikla uppbyggingu á
Lækjamóti sem skiptir miklu fyrir
samfélagið í Húnaþingi.
Jóna Halldóra Tryggvadóttir,
Hvammstanga
Jóna Halldóra var nefnd af fleirum en
einum fyrir hjálpsemi. Hún er alltaf
boðin og búin til að hjálpa öðrum og á
skilið mikil lof fyrir. Á það skilið að vera
kosin Maður ársins.
Lárus Ægir Guðmundsson,
Skagaströnd
Lárus Ægir hefur staðið fyrir ýmsum
menningarviðburðum á Skagaströnd
og boðið Húnvetningum að njóta með
sér. Þá gaf hann flygil í Hólaneskirkju í
haust. Stendur vel undir titlinum Maður
ársins.
Selma Björk Stefánsdóttir, Sauðárkróki
Selma Björk er 9 ára stelpa sem býr
ásamt foreldrum sínum og systkinum á
Sauðárkróki. Selma er yndisleg og kát
stelpa, en hún hefur barist við flogaveiki
og lá m.a. inni á Barnaspítala hringsins í
nokkrar vikur í haust. Selma á þennan
titil skilinn þar sem hún er ótrúlega
sterk og dugleg og brosir í gegnum
veikindi sín. Selma Björk er hetja!
Unnur Sævarsdóttir, Hamri í Hegranesi
Unnur á Hamri kom í veg fyrir að fjósið
á Egg í Hegranesi brynni ásamt öllum
gripum sl. sumar. Árvekni og hröð
viðbrögð hennar og hennar heimafólks
varð til þess að ekki fór verr í brunanum
og kom í veg fyrir að að ung hjón sem
voru nýbyrjuð að búa misstu allt sitt
lifibrauð sem þau voru búin að leggja
mikinn metnað og ómælda vinnu í að
koma á fót. /PF
UMSJÓN
Palli@feykir.is
Eins og undanfarin ár geta íbúar á Norðurlandi vestra kosið
mann ársins sem tilnefndir voru af lesendum Feykis og
Feykis.is. Í þetta skiptið fengu sjö aðilar tilnefningu til titilsins
og sumir reyndar fleiri en eina og fleiri en tvær. Þeir sjö sem hér eru nefndir
verða í kjöri sem Maður ársins á Norðurlandi vestra 2013.