Feykir - 19.12.2013, Page 12
12 Feykir 48/2013
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Ólafur B. Guðmundsson sem á fyrstu
vísuna að þessu sinni. Mun hann vera að fjalla
um ógiftan samferðamann.
Hann sem lengi heims um ból
hafnaði blíðu vífsins.
Hlaut að lokum stakan stól
í strætisvagni lífsins.
Kannski hefur Stefán Stefánsson frá
Móskógum verið að hugsa heim í Fljótin er
hann orti svo.
Aldrei breyta árin mér
öls þó neyti glaður.
Drottinn veit það að ég er
alltaf sveitamaður.
Held að það hafi verið fjallaskáldið sem orti
svo.
Ef þú kæra kyssir mig
kætist brjóstið fremur.
Eina skal ég elska þig
- uns önnur skárri kemur.
Hinn þekkti kvæðamaður og Iðunnarfélagi
Ormur Ólafsson var duglegur við að safna
saman vísum. Einhverju sinni er honum hafði
verið vel ágengt orti Jóhannes Benjamínsson
svo.
Löngum vandar grálegt gaman
glettur andinn kaus.
Ógnarblandi safnar saman
segulbandvitlaus.
Þar sem jól og áramót eru nú að segja
má skammt undan rifjast upp ágætur
nýárskveðskapur sem mig minnir að birtist
á mínum unglingsárum í hinu dásamlega
riti Speglinum og var eignaður Böðvari
Guðlaugssyni.
Vætti kverkar vínandinn
uns valt ég útaf í morgunsárið.
Alveg á hausnum hvínandi
heilsa ég upp á nýja árið.
Fólkið blínir beygt og krankt
í blóðugt morgunsárið.
Kurteislega en kynja blankt
kvaddi gamla árið.
Fleira kemur hér sem nokkuð er víst að
tilheyri Böðvari.
Aldrei á strik sér andinn náði
ótuktarlega brást hann mér.
Holdið er þó með réttu ráði
og reiðubúið til hvers sem er.
Í minningu ónefndrar samferðakonu á lífsins
leið orti Böðvar.
Heiðrað veri hennar nafn
þó hún væri talsvert gölluð
og einhvern veginn alltaf jafn
illa fyrirkölluð.
Ekki er til fyrirmyndar að alhæfa um útlit
kvenna og þeirra gengi í ástarmálum. Samt
finnst mér vísan góð og ef ég man rétt mun
Bjarni frá Gröf einhverju sinni hafa laumað
henni á kreik.
Vísnaþáttur 608 Aldrei færðu ástarhót.Alltaf máttu vona.
Undarlega ertu ljót
ekki stærri kona.
Gaman að halda áfram með glettur Bjarna.
Svo ætla ég að óska þess við Drottinn
- eftir langa reynslu og syndabann.
Hann fari ekki að flana í gamla pottinn
og fikta við að skapa nýjan mann.
Held að það hafi verið Sumarliði Grímsson
sem komst svo að orði í næstu vísu.
Gengin leið er góðs á mis
gegnum neyðarhreysi.
Ég er að skreiðast áleiðis
út í reiðuleysi.
Kristján Guðjónsson Schram var með
snjallari hagyrðingum á sinni tíð. Oftast
kallaður Stjáni Schram eða Stjáni í
Gasstöðinni. Ekki mun hann hafa safnað
veraldarauð en skyldi eftir sig mikið
af snjöllum vísum. Vonandi verður
undirritaður aldrei svo vitlaus í þessu lífi að
gleyma nokkurn tímann þessari snilldarvísu
Stjána sem ort var í gleðskap. Hann mun
hafa verið eins og margir snillingar talsvert
hallur undir Bakkus.
Tek ég upp úr töskunni
til að gleðja og bjarga.
Það er fljótt úr flöskunni
fyrir svona marga.
Þegar Stjáni taldi að nálgast færi hans
síðasta augnablik hér á jörð orti hann
þessar mögnuðu vísur um sinn viðskilnað
hér í heimi. Góður kunningi minn sem er
aldraður rútubílstjóri, hefur fullyrt við mig
að þessar vísur séu það síðasta sem hann orti.
Ævi mín er einskins verð
eintómt grjót og klaki.
Allt sem þurfti í þessa ferð
það var skófla og haki.
Sorgunum hef ég saman þjappað
syndanna þegið gólf.
Nú er allt saman klárt og klappað
og klukkan að verða tólf.
Nú styttist í að árið 2013 syngi sitt síðasta
eins og stundum er sagt. Langar í þessum
síðasta vísnaþætti ársins að þakka ykkur
góðu vísnavinir fyrir ánægjuleg samskipti
á árinu sem brátt hverfur í aldanna
skaut. Kannski býður nýja árið upp á
áframhaldandi samvinnu og margar góðar
vísur. Langar að enda þáttinn með fallegri
vísu sem minn góði vinur Jón Karlsson
bóndi í Gýgjarhólskoti í Biskupstungum
sendi mér á fallegu jólakorti.
Burtu nóttin brunar svört
bráðum hækkar sólin.
Heimili þitt hitti björt
hamingja um jólin.
Endurtek þakkir til ykkar fyrir ánægjulegt
samstarf og bið ykkur að vera sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is
Nýir svínaskankar
- Einn á mann
Skankarnir saltaðir og
geymdir i kæli yfir nótt,
ég nota gróft salt og strái
rausnarlega yfir þá. Ekki skola
skankana áður en þeir verða
soðnir. Kalt vatn sett í pott
ásamt pipar, strái u.þ.b. 1/2
tsk yfir. Allra handa 1 tsk, 3-4
lárviðarlauf. Læt þetta sjóða
í svona klukkutíma. Síðan í
ofn á 170° í 30 mínútur . Með
þessu höfum við rifna ferska
piparrót og rifið epli (rautt eða
grænt, skiptir ekki máli) sem
er blandað saman. Þetta er
sterkt!!! Og gott sinnep. Brauð
nota Tékkarnir með þessu, en
við getum haft kartöflur og
brúna góða sósu.
Djúpsteiktur ostur
Mjólkurostur skorinn í ½ sm
þykkar sneiðar. Mér finnst gott
að hafa sneiðarnar ekki mjög
stórar, en þeir elduðu þetta á
stærð við samlokubrauð.
Egg og mjólk hrært saman.
Hveiti
Rasp, kryddað með salti og
pipar.
Ostinum er velt upp úr hveiti,
síðan egginu, sett í rasp, aftur
egg og vel af raspi. Þarf að
hylja vel. Djúpsteikt.
Tékkarnir borðuðu þetta
sem kvöldmat með soðnum
kartöflum sem voru kryddaðar
með kúmen og Tartarsósu.
En mér finnst þetta gott bara
eitt og sér eða með góðu
sultuhlaupi.
Tartarsósa.
Mæjones 1 bolli
Pickles saxað smátt 1/2 bolli
Laukur ½
Sítrónusafi ½ tsk
Salt og pipar eftir smekk
Salat Soffíu systur
Í lokin: gott salat til að smyrja
á snittubrauð eða kex en þessi
uppskrift kemur frá Soffíu
systur í Ameríku.
1/4 bolli smátt skorinn laukur
1 bolli krabbakjöt, smátt
skorinn humar eða bara
einhver góður fiskur.
1/4 bolli mæjónes
salt og pipar eftir smekk
Steinselja til að skreyta með
Verði ykkur að góðu!
Sigríður Hallgrímsdóttir á Markhöfða í Hrútafirði kokkar
Eldað á Hawaii og í Hrútafirði
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
Ég heiti
Sigríður
Hallgríms-
dóttir (Sirrý) og vinn hjá N1-Staðarskála. Í
Hrútafjörð flutti ég í maí 1991 en keypti síðan
Markhöfða í lok árs 1992. Þar áður bjó ég í
Californíu og á Hawaii.
Ég kom hingað sem ráðskona í vegagerð og hef
unnið við vegagerð og gangnagerð síðan, með
góðum stoppum í Brú og gamla Staðarskála, í
milliverkum, ef svo má segja. Núna er ég endanlega
komin heim. Á þessu flakki mínu hef ég eldað allt
frá Mahimahi (fisktegund ) á Hawaii til allra besta Sirrý við pottana í Staðarskála.
lambakjöts héðan úr Hrútafirði. Synir mínir eru
tveir Eiríkur Ingi Jóhannsson og Hallgrímur
Valgeir Yoakum og barnabörnin átta plús. Þeir eru
miklir matsmenn og verð ég að viðurkenna að þeir
eru miklu betri kokkar en mamma þeirra, en sumt
neyðist ég til að elda vegna vankunnáttu þeirra,
segja þeir. Síðasti vinnustaður minn var
Héðinsfjarðargöng, þar unnu með mér Tékkar
sem ég lærði ýmislegt af og mig langar til að bjóða
ykkur upp á tékkneskar uppskriftir sem ég tel
mjög góðar.
Svanhildur Hlöðversdóttir, stöðvarstjóri hjá N1
Staðarskála ætlar að taka næstu áskorun. Hún er