Feykir


Feykir - 19.12.2013, Qupperneq 15

Feykir - 19.12.2013, Qupperneq 15
48/2013 Feykir 15 anum og stórri hljómsveit.“ Eftir tíu ára dvöl Helgu í Þýskalandi, hafði fastráðna fólk- inu við óperuhúsið verið sagt upp í kjölfar þess að nýir yfir- menn tóku við. Hafði hún þá verið að vinna að því að koma sér eitthvað annað, var að syngja fyrir og taka þátt í ýmsum verkefnum utan óperunnar. „Þá veiktist ég mjög illa og ákvað að koma heim. Það var eiginlega alveg heilt ár sem ég var frá söngnum.“ Helga segist hafa reynt að halda þeim samböndum sem hún hafði úti og fór eftir veikindin aftur út að syngja. Skömmu síðar veiktist faðir hennar mjög illa. „Þá var ég laus og gat hjálpað þeim og vildi mjög gjarnan gera það. Svo ákvað ég að fara í leiðsögunám, það var byrjað að kenna leiðsögunám við Endurmenntun HÍ. Ég hef alltaf haft áhuga á ferðamennskunni síðan ég sá um rekstur á Ferðaþjónustu Steinsstaðaskóla nokkur sumur þegar ég var í tónlistarnáminu í Reykjavík. Ég hugsaði með mér að ég gæti nýtt mér tungumálakunnáttuna og verið bæði að leiðsegja og syngja, af því ég er manneskja sem ætlar alltaf að gera allt í einu. Þetta voru þrjár annir, alveg rosalega gaman, þarna komu saman um 40 manns á öllum aldri, úr öllum áttum. Þarna sátum við í tíma þegar hrunið varð,“ rifjar Helga upp. Á sama tíma var Helga að gefa út geisladisk ásamt vinkonu sinni Guðrúnu Dalíu Salómons- dóttur, sem hún hafði kynnst í Stuttgart. „Við vorum svo oft búnar að spá í lögin hennar Jórunnar Viðar, sem varð níræð þetta ár, og okkur langaði að gefa sönglögin hennar út á disk. Það reyndar frestaðist og allt varð helmingi dýrara vegna hrunsins, en við komum þessu á koppinn. Við fengum styrk frá Hlaðvarp- anum, menningarsjóði kvenna. Þetta var alveg frábært, við fengum að hitta hana og vinna með henni, hún var það ern ennþá að hún gat miðlað og sagt okkur til syndanna. Við fórum heim til hennar og sungum og spiluðum. Við fylgdum þessum disk svolítið eftir, fórum út og héldum tónleika í Stuttgart, Berlín og Kaupmannahöfn. Svo er þetta svoleiðis hérna heima að maður verður svolítið að gera hlutina sjálfur, það eru ekki margar hljómsveitir eða tækifæri eins og í Þýskalandi. Ég stóð t.a.m. fyrir tónleikum 2011. Þá hafði ég stjórnað Karlakórnum Heimi í eitt ár, og ég fékk þá í lið með mér ásamt þremur öðrum einsöngvurum og við héldum tónleika í Miðgarði um versl- unarmannahelgina. Síðar varð þetta hluti af Akureyrarvöku, við fórum í Hof og Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands spilaði með okkur. Einnig var þetta hluti af menningarhátíðinni Bergmáli á Dalvík. Það er þó nokkuð mikið að þurfa að vera fram- kvæmdastjóri verkefnisins og syngja í því líka. Sjá um að allt gangi upp og um markaðs- setninguna og standa svo sjálfur klár, stökkva í kjólinn og ætla að „performera“, en það er líka gaman þegar vel gengur.“ Skagafjörður og Þýskaland togast á Helga minnist engra sérstakra vandræðalegra atvika eða óhappa úr bransanum en hún segir aðstæðurnar óneitanlega stundum vera skrýtnar og margt skemmtilegt á bak við tjöldin í leikshúsinu, sem snýr að tækn- inni og starfsfólkinu baksviðs. „Í einu hlutverkinu var ég Evridís í Orfeusi, og þegar hún fór til heljar og hann fékk tækifæri til að ná henni aftur var ég sett í sigband og hífð upp úr sviðinu. Vesenið við að koma sér fyrir og koma manni í þennan búnað var mikið, auk þess sem ég átti að syngja á leiðinni niður aftur. Í Rínardætrunum vorum við þrjár saman og settar á pall með lyftu undir sviðiðinu en síðan var okkur lyft upp til að komast inn í sviðsmyndina. Þetta gat verið mikil líkamsrækt.“ Einu sinni veiktist söngvari í sýningu á Ragnarökunum eftir Wagner, það er fimm klukkutíma stykki. Það var ljóst að hann gæti ekki sungið áfram og því voru góð ráð dýr, en það var hringt í allar áttir og loks fenginn söngvari frá Mannheim sem er í um 40 mínútna fjarlægð frá Stuttgart með lest. Hann skellti sér í kjólfötin á leiðinni og söng síðan frá hliðarvængnum og hinn lék. En gestirnir máttu bíða á meðan.“ Sem lítil stelpa segist Helga hafa sungið með Hönnu Valdísi, Ruth Reginalds, Vilhjálmi og BG og Ingibjörgu og hlustað á RÚV eða kassettutækið í bílnum. Í Þýskalandi vann hún með hinum heimsþekktu Jonas Kaufman og EvuMariu Westbroek , sem hún segir hafa verið gaman að fylgjast með og vera miklar fyrirmyndir. Einnig voru við óperuhúsið miklir reynsluboltar sem mátti mikið læra af. „Það er svo mikið til af hæfileikaríku fólki. Það er bara stórkostlega gefandi og skemmtilegt að vinna með fólki sem kann sitt fag, ég get ekki nefnt neinn einn sem er eftir- minnilegri en aðrir eða mig myndi langa að vinna með.“ Alkomin kom Helga aftur í Skagafjörðinn 2009. Aðspurð segir hún það alltaf togast á í sér að fara aftur út. „Ég var samt búin að velta því fyrir mér áður en ég kom, af því ég hafði verið í Stuttgart allan þennan tíma, hvort ég væri tilbúin að fara eitthvað annað í Þýskalandi og byrja upp á nýtt. Góður maður sagði að íslenskar konur í útlöndum væru alltaf með heim- þrá, það er svolítið til í því. Það er stórkostlegt að taka þátt í og vera hluti af svona teymi eins og er í stóru óperuhúsi. Þetta er þúsund manna vinnustaður með ballet, óperu og leikhús. En svo var stundum svolítið einmanalegt að labba einn heim á kvöldin, þó maður ætti góða vini þarna úti, þá átti ég ekki fjölskyldu. Og að þurfa alltaf að vera að passa sig að verða ekki veikur, það þýddi ekki að vera að þvælast eitthvað úti á kvöldin, maður varð að vera í lagi til þess að halda röddinni og kröfurnar eru miklar. Ég var reyndar mjög heppin að finna kennara sem hjálpaði mér að vinna áfram með röddina mína og kenndi mér líka ákveðin vinnubrögð, en þú verður bara að halda þér í formi, raddlega og líkamlega, því það er engin miskunn. En þetta togast alltaf á í mér,“ segir Helga. Hún segir þó vega sterkara að vera fyrir norðan í náttúrunni heldur en að búa á höfuðborgar- svæðinu, þó það gæfi ef til vill fleiri tækifæri varðandi sönginn. „Svo getur maður bara skroppið suður, ég var að syngja í nóvem- ber stóra tónleika með Gunnari Guðbjörns og Bjarna Thor, ég þurfti að vísu að hagræða hérna í vinnunni af því ég er að kenna, en það er allt hægt.“ Í dag starfar Helga m.a. við kennslu. Hún kennir á píanó við Tónlistarskóla Skagafjarðar og býður upp á einkakennslu í söng, en ekki er starfandi söngdeild við Tónlistarskólann. Helga segir eftirspurnina vera næga, bæði hjá börnum og fullorðnum. Hún stjórnar einnig Skagfirska kammerkórnum og syngur við hina ýmsu viðburði, þar sem hún er ýmist fengin til að syngja, eða á þátt í að standa fyrir viðburðum. Á sumrin kúplar Helga sig mikið til frá tónlistinni og fer sem leiðsögumaður á hestum upp á hálendinu, á vegum Hestasports. Þá gefst gott tæki- færi til að halda þýskunni við og fá næringu fyrir Þýskalandsþrána. Lengstu hestaferðirnar eru 5-6 dagar. Einnig hefur hún farið síðustu sumur í dagstúra í Mývatnssveit með farþega úr skemmtiferðaskipum. Hestamennskunni kynntist Helga Rós sem stelpa í sveitinni. „Maður fór berbakt að reka kýrnar, það þurfti að reka þær frekar langt upp fyrir bæinn hjá okkur, alla leið í Hamarsgerði. Svo var helsta vörnin að loka einu hliði á miðri leið því að þeir tóku auðvitað á stökk heim og þá þurftu að hanga á baki en gott að hafa eitt hlið lokað til að bremsa sig af,“ en maður þjálfaði jafn- vægið með þessu, útskýrir Helga og segist alltaf hafa haft gaman af hestamennsku. „Svo eru kind- urnar, ég er í hlutastarfi sem fjárhirðir hjá foreldrum mínum“ bætir hún við hlæjandi. Tónleikar framundan Nú er stórt verkefni framundan hjá Helgu Rós, en að því standa fimm tónlistarmenn fjórir þeirra af skagfirskum uppruna, auk Helgu þau Ásgeir Eiríksson, Margrét Stefánsdóttir og Sigurjón Jóhannsson en þau fengu til liðs við sig meðleikarann Gróu Hreinsdóttur sem kenndi við Tónlistarskóla Skagafjarðar. Er þetta nokkurs konar „come back“ hluta af hópnum sem flutti svipaða efnisskrá um jólaleytið 1992. Tónleikarnir verða í Miðgarði 28. desember, en forsala er hafin á Ábæ og KS Varmahlíð. Tónskáldin sem þau ætla að gera skil eru ramm- skagfirsk. „Það eru stólparnir þrír í skagfirskri menningu, Eyþór Stefánsson, Pétur Sigurðsson og Jón Björns-son. Þeir sömdu fjölda sönglaga. Pétur er m.a. þekktur fyrir Erla, góða Erla og Eyþór fyrir Lindina, en Jón Björnsson t.d. fyrir Hallar- frúna og fyrir fjölda dúetta. Einhverjir eru kannski að velta fyrir af hverju við höfum þennan magnaða titil, „Þú sem eldinn átt í hjarta,“ en hann er sóttur til ljóðs eftir Davíð Stefánsson sem Jón Björnsson samdi dúett við. En ég held að við eigum öll eld í hjarta, við þurfum bara að halda loganum við og leyfa okkur að kynda eldinn, þá getum við allt sem okkur dettur í hug,“ segir Helga Rós að lokum. Helga Rós ásamt foreldrum sínum í Íslensku óperunni 1999. Með gærðingi á góðri stund. Helga Rós í hlutverki Serlinu úr Don Giovanni.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.