Feykir - 19.12.2013, Page 17
48/2013 Feykir 17
EHF.
Kæru vinir!
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
Með kveðju, Ásdís og Bjarni
AÐALGÖTU 22 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 453 5124 / 453 5136
VERSLUN
Haraldar Júlíussonar
FEYKIR :: SJÓNHORNIÐ :: FEYKIR.IS
Við sendum viðskiptavinum
okkar nær og fjær bestu óskir um
gleðiríka jólahátíð og bjart nýtt ár.
Þökkum samskiptin á árinu
sem er að líða
Sjáumst hress
starfsfólk Nýprents
Jólakveðja
Jólalögin túlkuð með förðun
Fröken Fabjúlöss skapar: Alþjóðlegt jólasamstarf!
Eitthvað segir okkur hérna í
heimshorni Fabjúlössmans
að sá grunur hafi annað
slagið læðst að hinum
almenna lesanda Fröken Fab
að hún hafi lúmskan áhuga á
förðun. Úti í hinum almenna
förðunarheimi gengur
Frökenin undir nafninu
RavenIce Makeup og heldur
úti förðunarbloggi og
förðunarfacebooksíðu.
Í langan tíma hefur Frökenin
fylgst með stórkostlega hæfi-
leikaríkri norskri stúlku sem
gengur undir nafninu Glitter-
girlC í netheimum, en Cecilie í
raunheimum. Eftir smá um-
hugsun ákvað frökenin um
miðjan október að hafa bara
samband við hana og athuga
hvort áhugi væri á smá
jólasamstarfsverkefni þar sem
nokkrar förðunardömur myndu
taka sig saman í jólaþema.
Hugmyndin var að hver og ein
fengi úthlutað jólalag og myndi
svo gera förðun eftir laginu/
titlinum.
Hún Cecilie tók svona billega
í þetta og var ekki lengi að safna
saman úrvalsteymi og Frök-
eninni bara hreinlega vöknaði
um augun þegar hún áttaði sig á
að nokkrar af stúlkunum sem
Cecilie hafði viðað að sér eru
förðunarfræðingar sem Frök-
enin hefur verið að fylgjast með
í lengri tíma og dáðst að.
Þegar farið var í það að velja
lögin og úthluta var það klassík-
in, fegurðin og innifalda glimm-
erið í laginu Winter Wonderland
sem heltók hjarta Fab. Frökenin
var nú ekki lengi að hrista út úr
erminni þetta glymrandi fína
vetrarlúkk og sendi það til
Cecilie. Eftir nokkurra daga
grasseringu og síendurtekið
áhorf á myndina ákvað Frökenin
þó að hún væri nú ekki allskostar
ánægð með förðunina og settist
því við snyrtiborðið aftur. Eftir
klukkutíma dúllerí var svo
tilbúið hið fínasta vetrarríki á
augnlokinu sem Fabjúlöss gat í
fullri hreinskilni sætt sig við.
Fröken Fabjúlöss er bæði
virkilega ánægð með útkomuna
og stolt af þessu skemmtilega
samstarfsverkefni og hefur það á
tilfinningunni að þetta sé ekki
síðasta samstarfsverkefni henn-
ar í meiköppheimi hins geysi-
stóra internets!
Fröken Fabjúlöss og afgangur
tískuteymis hennar hérna í
heimshorni Fabjúlössmans
óskar ykkur öllum gleðilegra
jóla og gæfu og glimmers á
komandi ári!
COLLABORATION - CHRISTMAS SONGS
1. Glittergirlc– When you wish upon a star
2. MakeupFrenzy– Rocking around the Christmas tree
3. BoldCreations– Santa Claus is coming to town
4. Nijigasumi– Jingle bell rock
5. Tal Peleg- Rudolph the red nosed reindeer
6. KatieAlves– Frosty the snowman
7. RaveniceMakeUp (Fröken Fab) – Winter wonderland
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
Efri myndin er tilraun 1 sem var ekki notuð en sú neðri var tilraun 2 og hún var notuð.